Ísland þarf að kaupa losunarheimildir

Ísland stóð ekki við skuld­bind­ingar sínar á grund­velli Kyoto-bók­un­ar­innar. Kaupa þarf los­un­ar­heim­ildir fyrir um 3,4 millj­ónir tonna af CO2-ígildum. Óljóst er hver kostn­að­ur­inn verður.

Mengunarvaldur
Meng­un­ar­valdur Bruni á jarð­efna­elds­neyti, til að mynda frá bíla­flot­anum, fellur undir skuld­bind­ingar Íslands. Mynd: Shutterstock

Íslenska ríkið mun neyð­ast til að kaupa los­un­ar­heim­ildir til að mæta losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á fjórðu milljón tonna af CO2-ígildum. Í fjár­laga­frum­varpi næsta árs er gert ráð fyrir fjár­heim­ild upp á 800 millj­ónir króna til að kaupa umræddar los­un­ar­heim­ildir. Alls óvíst er þó hvað þær muni kosta.

Í svari Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Valgerði Árna­dóttur, vara­þing­konu Pírata, kemur fram að Ísland eigi ekki nægar heim­ildir til los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sam­kvæmt skuld­bind­ingum sínum vegna Kyoto-bók­un­ar­innar. Samkvæmt svar­inu er um að ræða tæpar fjórar millj­ónir tonna CO2-ígilda en sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin afl­aði hjá Umhverf­is­stofnun er magnið nokkru minna, um 3,4 millj­ónir tonna.

Sú losun sem fellur undir beinar skuld­bind­ingar Íslands eru einkum vegna bruna jarð­efna­elds­neytis, vegna los­unar frá land­bún­aði, jarð­varma­virkj­unum, með­ferð úrgangs auk ann­ars. Losun frá stór­iðju fellur undir evr­ópskt við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ildir (ETS) og fellur því utan skuld­bind­inga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár