Fjöldi ferðamanna á Íslandi í júlí hefur fjórfaldast frá 2002

Alls sóttu 180.679 ferða­menn Ísland heim í nýliðnum júlí. Það eru 25 pró­sent fleiri en komu hingað í þessum stærsta ferða­manna­mán­uði árs­ins árið áður og tæp­lega helm­ingi fleiri en heim­sóttu Ísland í júlí 2011. Þegar litið er lengra aftur er aukn­ingin enn meiri. Árið 2002 voru erlendir gestir okkar Íslend­inga í júlí alls 46.015 tals­ins. Fjöldi þeirra hefur því fjór­fald­ast síðan þá. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Ferða­mála­stofu.


Aukning það sem af er ári 27,7 prósent


Það sem af er ári hafa 697.716 ferða­menn heim­sótt landið. Það eru 151.363 fleiri en á sama tíma í fyrra. Á öllu árinu 2014 komu 969 þús­und ferða­menn hingað til lands. Ljóst er að mikil fjölgum verður á milli ára með sama áfram­haldi.

Það sem meira er þá hefur fjöldi erlendra ferða­manna auk­ist mikið í hverjum ein­asta mán­uði. Alls nemur aukn­ingin frá byrjun jan­úar til loka júlí 27,7 pró­sentum. Þessi mikla aukn­ing, ásamt spreng­ingu í fram­boði á flugum sem eiga við­komu á Íslandi, gerir það að verkum að við sem sam­fé­lag græðum sífellt meira á ferða­mennsku.

Í Morg­un­blað­inu í morgun er haft eftir Helgu Árna­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, að gjald­eyr­is­tekjur af ferða­þjón­ustu í maí, júní og júlí hafi numið 104 millj­örðum króna. Á sama tíma­bili í fyrra námu tekj­urnar um 80 millj­örðum króna og því hafa þær hækkað um 24 millj­arða króna á milli ára á þessu þriggja mán­aða tíma­bili. Vert er að taka fram að í töl­unum er eru ekki með­taldar gjald­eyr­is­tekjur íselnskra fyr­ir­tækja sem starfa í ferða­þjón­ustu utan Íslands.

Bandaríkjamenn flykkjast til Íslands


Aukning ferða­manna sem koma frá Norður-Ameríku er 44,4 pró­sent á milli ára og ljóst að mesta spren­ingin er að eiga sér stað á þeim mark­aði. Aukning er í fjölda ferða­manna frá flestum öðrum mörk­uðum líka. Um 27,5 pró­sent fleiri koma frá Bret­landi í ár en í fyrra, 21 pró­sent fleiri frá Mið- og Suður-Evrópu og 40,9 pró­sent frá öðrum löndum sem eru ekki talin sér­stak­lega og flokk­ast undir „annað“. Um sjö­undi hver ferða­maður er flokk­aður í þennan flokk.

Eina mark­aðs­svæðið sem stendur nokkurn veg­inn í stað eru Norð­ur­löndin. Frændur okkar virð­ast ekki vera að taka þátt í tísku­bylgj­unni sem heim­sókn til Íslands er orðin. Raunar fækk­aði gestum frá Svíþjóð og Noregi í júlí­mán­uði á milli ára.

Ef horft er ein­ungis á á hvaðan ferða­menn í júlí koma þá sést að lang­flestir ferða­menn sem heim­sækja Ísland eru Banda­ríkja­menn. Raunar hefur fjöldi ferða­manna frá Norður-Ameríku meira en sjö­fald­ast frá árinu 2002 á sama tíma og fjöldi allra ferða­manna hefur fjór­fald­ast. Það er því ljóst hvaðan mesta aukn­ingin er að koma.

Og það virð­ist ekki ætla að verða neitt lát á. Í fyrra komu 22.998 ferða­menn frá Banda­ríkj­unum til Íslands í júlí. Í ár voru þeir 37.235 tals­ins og fjölg­aði því um 62 pró­sent á milli ára. Banda­ríkja­menn voru enda um fimmt­ungur allra sem heim­sóttu Íslands í nýliðnum júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár