Ekki vitað hvaðan 142 þúsund ferðamenn sem komu hingað í fyrra eru

Ekki er vitað hverrar þjóðar 142 þús­und þeirra ferða­manna sem heim­sóttu Íslands á árinu 2014 eru. Það þýðir að sjö­undi hver erlendur ferða­maður sem fer í gegnum vopna­leit í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar er flokk­aður í flokk­inn „Aðrir“ þar sem ekki er gert ráð fyrir þjóð­erni þeirra í taln­ing­unni. Þetta kemur fram í frétt á túristi.is.

Þar segir að allir far­þegar séu látnir sýna vega­bréf við vopna­leit á flug­stöð­inni. Sú taln­ing er fram­kvæmd að und­ir­lagi Ferða­mála­stofu sem heldur utan um opin­berar upp­lýs­ingar um fjölda erlendra og íslenskra flug­far­þegar sem fara um Kefla­víkuflug­völl.

Sem stendur er hægt að flokka erlendu far­þeg­anna (þeir sem milli­lenda eru ekki taldir með) eftir 17 mis­mundi þjóð­ernum. Sjöundi hver útlend­ingur sem kemur til lands­ins er ekki hluti af þeim þjóðum sem flokk­unin býður upp á og lendir því í flokknum „Aðrir“. Á árinu 2014 flugu 969 erlendir ferða­menn um Kefla­vík­ur­flug­völl og þar af lentu 142 þús­und í þessum óskil­greinda þjóð­ern­is­hóp.

Óskilgreindum fjölgar hraðar en öðrum


Fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2015 hafa 28 þús­und erlendir ferða­menn lent í óskil­greinda hópnum. Það er um helm­ingi fleiri en lentu í þeim flokki á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra. Ferða­menn eru 31 pró­sent fleiri á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins í ár en þeir voru á sama tíma­bili árið 2014.

Ferða­mönnum frá óskil­greindum löndum fjölgar því hraðar en sem nemur hlut­falls­legri heild­ar­fjölgun þeirra sem heim­sækja landið. Á Túrista.is er bent á að á lista yfir þjóðir sem eru sér­stak­lega taldar í dag eru aðeins tvö Asíulönd en ekk­ert land frá S-Ameríku, Afríku eða Eyjaálfu. Einnig vantar Evr­ópu­þjóðir eins og Belgíu og Aust­ur­ríki og einu full­trúar Austur-Evrópu á list­anum eru Pólland og Rússland.

Flug­fé­lögin halda lík­lega hvert fyrir sig utan um upp­lýs­ingar um þjóð­erni sinna far­þega en þær upp­lýs­ingar eru ekki opin­berar öfugt við taln­ingu Ferða­mála­stofu.

Búið að óska eftir breytingum, ótti við raðir


Í frétt Túrista.is er rætt við Ólöfu Ýrr Atla­dóttur ferða­mála­stjóra um málið. Hún segir að Ferða­mála­stofa hafi fyrir nokkru síðan óskað eftir því við Isavia, sem rekur Kefla­vík­ur­flug­völl, að ráð­ist verði í aðgerðir til að fjölga þjóð­unum í taln­ing­unni. „Þrátt fyrir ítrek­anir höfum við ekki fengið end­an­leg svör frá þeim um það með hvaða hætti þetta getur orðið, hver kostn­að­ur­inn yrði eða hvenær unnt verði að ráð­ast í þessar breyt­ingar."

Guðni Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi Isavia, segir í sam­tali við síð­una að ef list­inn yfir þjóð­erni yrði stækk­aður þá gæti það lengt raðir. „Auk þess aukast skekkju­mörk í taln­ing­unni eftir því sem þjóð­löndum fjölgar á list­anum. En við erum með verk­efni í gangi þar sem við erum að kanna alla mögu­leika og reynum eftir fremsta megni að finna lausn sem er áreið­an­leg og verður ekki til þess að auka raðir."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár