Filippseyjar vilja líka kjarnorku

Írans­stríðið og boð Banda­ríkj­anna til Sádí-Arabíu um kjarn­orku hefur áhrif víðar.

Ferdinand Marcos
Ferdin­and Marcos Sonur sam­nefnds fyrr­ver­andi for­seta Fil­ipps­eyja, sem kom á ein­ræði, hefur verið for­seti frá árinu 2022. Mynd: Forsetaembætti Filippseyja

Ferdin­and Marcos, for­seti Fil­ipps­eyja, sem lýsti yfir neyð­ar­á­standi í orku­málum á þessu ári, sagði í dag að kjarn­orka gæti verið svarið fyrir landið sem greiðir hæsta raf­orku­verð á svæð­inu.

„Kannski er kom­inn tími til að við end­ur­skoðum kjarn­orku­fram­leiðslu,“ sagði hann á sam­eig­in­legum þing­fundi í ræðu sem var sjón­varpað á lands­vísu.

„Við munum tryggja að hún sé örugg. Við munum tryggja að góður ávinn­ingur kjarn­orku verði útskýrður almenni­lega fyrir almenn­ingi.“

Sharon Garin, orku­mála­ráð­herra, sagði í mars að eyja­klas­inn, sem er háður inn­flutn­ingi, hygð­ist auka afköst kola­orku­vera sinna til að halda raf­orku­kostn­aði niðri þar sem stríðið í Mið-Aust­ur­löndum olli usla í gas­flutn­ingum.

Bataan-kjarn­orku­verið – eina kjarn­orku­verið á Fil­ipps­eyjum – var full­gert á níunda ára­tugnum en aldrei tekið í notkun vegna spill­ingar og örygg­is­á­hyggna.

Fil­ipps­eyjar hafa átt í könn­un­ar­við­ræðum um kjarn­orku við fjöl­mörg lönd, þar á meðal Japan, Frakk­land, Rússland og Banda­ríkin.

Þrátt fyrir að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár