Forsíðumynd Nýs Lífs hluti af auglýsingaherferð Lindex

Einakviðtal við leik­konuna Siennu Miller kom til í gegnum Lindex, fyrirtæki sem leikkonan mærir í viðtalinu. Forsíðu­myndin er úr auglýsinga­herferð fyrir­tækisins, en þess er hvergi getið í blaðinu. Framkvæmda­stjóri Birtings þvertekur fyrir að um kostaða umfjöllun sé að ræða en svarar ekki spurningum blaða­manns.

Forsíðu­viðtal Nýs Lífs við stór­stjörnuna Siennu Miller varð til fyrir milli­göngu tísku­risans Lindex, án þess að þess sé getið í blaðinu. Ritstjóri verst fregna, en slík birting gæti hæglega flokkast sem dulbúin auglýsing sem er brot á fjölmiðla­lögum. 

Í nýjasta tölublaði Nýs Lífs prýðir stór­stjarnan Sienna Miller forsíðu undir yfir­skriftinni „Femínisti með sterkar skoðanir.” Það er blaða­maðurinn Anna Brynja Baldurs­dóttir sem tekur viðtalið við leik­konuna, en þess skal getið að fundur þeirra fór fram í upphafi árs. Í inngangi að viðtali tekur blaða­maður fram að viðtals­staðurinn sé í London, í „stúdíó” hvar mynda­tökur, á leik­konunni, fyrir auglýsinga­herferð Lindex var í gangi. 

„Viðtals­staðurinn er í stúdíó í norður­hluta London. Þegar þangað er komið tekur við skráningar­ferli,” segir í viðtalinu. Þegar inn var komið lýsir blaða­maðurinn, Anna Brynja fyrstu kynnum af viðmælanda sínum, Sienna. „Hún segist vera dálítið þreytt eftir annasaman dag í mynda­tökum fyrir Lindex herferð og spyr hvort að það sé ekki kominn tími á einn góðan kaffi­bolla.”

Athygli vekur að allt myndefni af leik­konunni í Nýju Lífi er úr téðri herferð, sem hrundið var af stað einmitt fyrir fáeinum dögum, á sama tíma og viðtalið var birt, mörgum vikum eftir að það var tekið. Þetta stað­festir ritstjórinn Erna Hreins­dóttir meðal annars í leiðara blaðsins.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár