Menningarpólítísk nýbreytni

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Endalausa þræði eftir sviðslista­hópinn Streng.

Strengur: Endalausir þræðir

Höfundur: Leik­hópurinn ásamt Unu Torfa­dóttur

Leik­stjórn: Óðinn Ásbjarnarson

Leikmynd og búningar: Katrín Guðbjarts­dóttir

Hljóðmynd: Magnús Thorlacius

Leikendur: Magnús Thorlacius, Urður Bergs­dóttir, Katrín Guðbjarts­dóttir

Leik­hópurinn Strengur samanstendur af ungu sviðs­listafólki sem enn er í BA-námi við Lista­háskóla Íslands, tvö á sviðs­höfunda­braut, þau Magnús Thorlacíus og Katrín Guðbjarts­dóttir, en Urður Bergs­dóttir á sviðs­listabraut. Þau þrjú eru leikarar hópsins, en Óðinn Ásbjarnarson, sem einnig er í BA-námi á sviðs­höfunda­braut LHÍ, er leik­stjóri sýningarinnar; hann mun hafa átt frumkvæði að því að þau mynduðu í sumar­byrjun leik­hópinn Streng, sem starfar á grund­velli sérstaks samkomu­lags um átaks­verkefni á vegum Velferðar­sviðs Reykja­víkurborgar.

Markmiðið er að skapa sviðs­listaverk þar sem lögð er áhersla á rannsóknar­vinnu útfrá „þarfri samfélags­umræðu“ eins og segir á heimasíðu hópsins. Hugmyndin er að töfrar leik­hússins færi áhorf­andann nær flytjandanum, umbreyti hversdags­lífinu í dálitla stund og gefi færi á að gleðjast yfir lífinu. Leik­hópurinn Strengur á að leiða saman gamalt og nýtt, bera hugmyndir á borð fyrir fólk, finna hvað tengir okkur saman.

Þetta eru vissulega háleit markmið og göfug og er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ungt listafólk hefur sett sér slík markmið – vestræn menning hefur að geyma sögu aragrúa slíkra hópa ungs fólks sem hafa í upphafi ferils síns reynt að koma orðum að því sem breyta skal – því það mun óhætt að segja að það sem sameiginlegt er öllum þeim hópum sem lista- og leiklistar­saga Vestur­landa kann að segja frá, sem orðið hafa til frá lokum seinni heims­styrjaldar eða svo og sem hafa lagt vinnu í að skilgreina samtíð sína, er að til stendur að breyta heiminum, að minnsta kosti þeim heimi sem næstur er, nánasta umhverfinu.

Leik­hópurinn Strengur virðist þó dálítið öðruvísi að því leyti að hið unga listafólk sem hann skipar leitar samstarfs við Velferðar­svið Reykja­víkur og ég hygg það muni vera næsta fátítt að ungt listafólk hefji þannig feril sinn undir sérstökum verndar­væng hins opinbera, en hér mun byggt á starfi Óðins leik­stjóra sem dagskrár­stjóra félags­starfs eldri borgara í Norður­brún í Reykjavík. Þannig ber kannski að líta á Leik­hópinn Streng sem hluta af þróun félags­starfs eldri borgara þar sem ætlunin er að skapa og bera á borð leik­sýningar, en einnig námskeið í leiklist fyrir eldri borgara.

Það mun því óhætt að segja að hér sé um að ræða menningar­pólítíska nýbreytni, sem er allrar virðingar verð. Hvað sem líður háleitum markmiðum á heimasíðu er hér á ferð eins konar „nytja­leikhús“, þar sem Velferðar­svið kýs að fjármagna hópinn, væntanlega markhópi sínum, eldri borgurum, til aukinnar gleði og afþreyingar. Vert er því að veita athygli starfi og afdrifum hópsins; það væri vissulega gaman ef Velferðar­svið myndi smám saman auka við starfsemina og þá væri ekki síður magnað ef önnur sveitar­félög tækju sér þetta framtak Velferðar­sviðs sér til fyrir­myndar.

„Nytja­leikhús“ segi ég og er kannski ónákvæmlega orðað; það er nefnilega til sérstakur straumur í þerapísku starfi sem byggir á aðferða­fræði leik­listarinnar – kúnstinni að segja sögu – og sem miðar að því að valdefla einstaklinginn, gefa honum færi á að öðlast vald yfir og vald á eigin æfi, eigin tilfinningum og minningum. Það má jöfnum höndum heimfæra það undir nytjar og list og verður jafnvel ekki greint þar á milli svo vel fari. Og það er kannski í ætt við þá rannsóknar­vinnu, sem leik­hópurinn Strengur vill hafa sem grundvöll síns listræna starfs og kristallast í sýningunni Enda­lausir þræðir.

Rannsóknar­vinnan fólst í því að farið var á fund eldri borgara, sem síðar skyldu verða áhorf­endur og leitað til þeirra um minningar. Þessar minningar voru síðan soðnar niður í handrit þar sem minningarnar mynda þræði – endalausa þræði – sem tvinnast saman og verða að einhvers konar hugmynd um veru­leikann eins og hann var. Sýningin snýst því um hvort tveggja í senn, að hefja frásagnar­listina til vegs og virðingar en einnig að varðveita minningar – og ekki sérlega auðvelt að greina þar á milli, því það fléttast líka saman, rétt eins og minningarnar.

Um leið verður til fjarska heillandi og aðlaðandi sýn á manneskjurnar og tengsl þeirra, nefnilega sú, að í frásagnar­stundinni verði til eitthvað sem kalla má hamingju þegar tvær manneskjur (eða fleiri) hittast og fara að rifja upp minningar og segja sögur. Dýnamíkin sem verður á slíkri stund gerir manneskjurnar einmitt að manneskjum.

Sýningin Enda­lausir þræðir er þannig byggð. Í henni mætast þrír einstaklingar, fjarlægir hver öðrum í upphafi, en hver og einn lumar á sögu, frásögn, minningu og áður en varir fara þær að fléttast saman og til verður eitthvað sem kalla má sam-félag. Það er, eins einfalt og það virðist, bæði fallegt og hugljúft.

Það má við bæta, að þessi hugmynd er styrkt með einfaldri leikmynd þar sem heilmikið kaðalverk myndar bakgrunn sviðsins og með því er minnt á hversu flókinn sá vefur getur verið sem fléttaður er af minningum og sögu­brotum. Látlausir búningar vinna vel við leik­myndina sem og einföld lýsingin.

Sem áður sagði er leik­hópurinn enn við nám. Það vekur því ósvikna ánægju undir­ritaðs að hér er texta­flutningur með ágætum, skýr og skilmerki­legur og fram­burður með góðu móti. Handritið er enda vel skrifað og í því er fremur hátíð­legur tónn sem krefst skýrleika og vandaðs flutnings.

Það er vonandi að Leik­hópurinn Strengur nái víða með sýningu sína og enn frekar er ástæða til að óska þess að samstarf hópsins og Velferðar­sviðs Reykja­víkurborgar nái að dafna og eflast. Sú menningar­pólítík sem það samstarf ber vitni um er ekki einasta virðingar­vert, það er æskilegt hvernig sem á það er litið – ekki síst þegar kemur að því að auka velferð og lífsgæði eldri borgara samfélags vors.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár