Hluta af áfangaheimilinu Betra líf lokað vegna brunavarna

Búið er að loka efri hæð áfanga­heimilisins Betra líf í Fannborg 4 í Kópavogi sökum þess að hæðin uppfyllti ekki kröfur slökkvi­liðsins á höfuð­borgar­svæðinu um bruna­varnir. Nú mega aðeins tíu skjól­stæð­ingar leigja herbergi á neðri hæðinni.

Betra líf
Betra líf Efri hæð á gömlu bæj­ar­skrif­stofu Kópavogs, sem nú hýsir starf­semi áfanga­heim­ilis, hefur verið lokað sem gisti­rými. Mynd: Heiða Helgadóttir

Efri hæð áfanga­heimilisins Betra lífs í Fannborg fjögur í Kópavogi hefur nú verið lokað sem gistirými vegna þess að Arnar Hjálm­týsson, eigandi og rekstrar­aðili áfanga­heimilisins, uppfyllti ekki kröfur slökkviliðs höfuð­borgar­svæðisins um bruna­varnir og í stað þess að uppfylla þær fyrir ákveðin tíma ákvað hann að loka hæðinni. Fyrst fékk Arnar frest til þess að uppfylla bruna­varnir í húsnæði í maí 2021 en svo var honum ítrekað gefinn lengri frestur þar til að hann lokaði efri hæðinni nú í gær. Nú mega því aðeins tíu íbúar leigja herbergi í húsinu, á neðri hæð hússins. Húsið hafði pláss fyrir 24 einstaklinga og þurfa þeir sem komast ekki fyrir á neðri hæðina nú að leita annað. 

Arnar sagði nýverið í samtali við Stundina að ástæða þess að hann ákvað að breyta ekki húsnæðinu úr atvinnu­húsnæði í íbúðar­húsnæði væri vegna þess að til stæði að rífa húsið um næstu áramót. Í húsnæðinu leigja í flestum, ef ekki öllum, tilfellum einstaklingar með fjölþættan vanda, þá vímuefna- og geðrænan vanda auk húsnæðis­leysis.

Eins og Arnar orðar það sjálfur rekur hann „blautt úrræði“ sem hann segir sjálfur vera áfanga­heimili þar sem heimilis­fólki er heimilt að vera í virkri vímuefna­neyslu, margir þeirra hafa til að mynda notað vímuefni um æð. Þrátt fyrir það eru engir starfs­menn á áfanga­heimilinu og því ekkert eftirlit. Fjórir íbúar Betra lífs hafa látist úr ofneyslu lyfja þar síðan 2020, síðast nú í febrúar. Fyrr­verandi íbúar Betra lífs lýsa í viðtali við Stundina aðstæðum þar sem hættu­legum og óboðlegum þar sem aðbúnaður í húsinu er slæmur upp á hreinlæti og öryggi að gera. Ekkert eftirlit er með starfsemi sjálfstætt rekinna áfanga­heimila og ekkert regluverk til í kringum það hver má stofna til slíkra úrræða og því engar kröfur gerðar til forstöðu­manna eða rekstur þeirra. 

Ekki náðist í Arnar við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Eva skrifaði
    Segi eins og Sigurrós sem er systir hans sem lést í feb . SKAMMIST YKKAR !!!!
    0
  • Sigurrós Yrja ÍslandsPía skrifaði
    Umræðan er þörf og þessi staður er stórhættulegur !

    En ég kann alls ekki að meta fullyrðingar sem ekki eru á rökum reistar ! Gunnar bróðir er sá heimilismaður sem lést þarna í febrúar, það var ekki haft samband við neinn í fjölskyldunni til að fá þessar upplýsingar réttar.

    Gunnar bróðir lést EKKI úr ofneyslu, aka overdose. Ekki að það skipti öllu máli, en það er ólíðandi að fjölmiðlar hafi ekki staðreyndir á hreinu um viðkvæm málefni sem þessi !

    Gunnar á dóttur, foreldra, systkini og vini ♥️ Hann er nýlega látinn og ef það á að draga andlát hans á einn eða annan hátt inn í fréttaefni skulu heimildir vera réttar ! Við erum mörg að syrgja bróður minn og þetta er ekki að hjálpa !

    Skammist ykkar !!
    1
  • Omar Sigurjónsson skrifaði
    Þetta er ljóta ruglið það getur bara hver sem er opnað àfangaheimili og sem er eftirlitslaust allan sólarhringinn og þetta eru manneskjur
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár