Átta aðilar hafa áhuga á United Silicon

Afar ólíklegt er að sala á United Silicon klárist áður en að greiðslu­stöðvunar­frestur fyrir­tækisins rennur út 22 janúar.

Alls hafa um átta aðilar áhuga á kaupum á verksmiðju United Silicon í Helguvík, samkvæmt heimildum Kjarnans. Að mestu er um að ræða erlenda fagfjárfesta. Afar ólíklegt er að salan nái fram að ganga áður en greiðslu­stöðvun fyrir­tækisins rennur út 22. janúar næst­komandi.

Karen Kjartans­dóttir, talsmaður United Silicon, segir að ekki sé setið að formlegum viðræðum og því sé erfitt að segja til um fram­haldið. Hún segir að viðræður við áhugasama aðila hefjist að fullu á næstu dögum.

Rekstur kísilmálm­verksmiðju United Silicon í Helguvík var stöðvaður af Umhverfis­stofnun þann 1. september síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur farið fram ítarleg skoðun á búnaði fyrir­tækisins á vegum norska ráðgjafa­fyrir­tækisins Multiconsult.

Karen segir fjármagns­þörfina hafa verið vanreiknaða frá upphafi. Mat sérfræðinganna sýni að um 25 milljónir evra þurfi til að fyrir­tækið verði eins og best verður á kosið og áætlanir gengu út á. Í skýrslu úttektar­aðila komi fram að grunn­hönnun ofnsins sjálfs sé góð en augljóst sé að ódýr og óvandaður jaðar­búnaður sé orsök tíðra bilana sem bæði skapaði erfið­leika í fram­leiðslu og rekstri auk þess sem sérfræðingarnir telji þau vandkvæði megin­orsök lykta­mengunar á svæðinu.

Kjarninn hefur áður greint frá því að Arion banki hafi afskrifað a.m.k 4,8 millj­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn hefur að mestu tekið yfir hlutafé í United Silicon en útistand­andi skuld­bind­ingar nema enn þá 5,4 millj­­örð­um, sam­­kvæmt síð­­asta birta upp­­­gjöri bank­ans. Arion banki hefur auk þess ábyrgst rekst­­ur­inn á greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­­anum en hann hefur borgað um 200 millj­­ónir króna á mán­uði vegna hans, frá því greiðslu­­stöðv­­un­­ar­­tím­inn hófst í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár