Draga þurfi úr losun næringarefna í Mývatn

Hreinsa þarf fráveitu­vatn, efla fræðslu til íbúa og ferða­manna og láta ferðamanna­tekjur renna til verndunar­aðgerða. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri skýrslu á vegum starfs­hóps sem skipaður var um málefni Mývatns.

Mývatn og Laxá eru talin með dýrmætustu náttúruperlum Íslands vegna margbrotinnar náttúrufegurðar og auðugs lífríkis.
Mývatn og Laxá eru talin með dýr­mæt­ustu nátt­úruperlum Íslands vegna marg­brot­innar nátt­úru­feg­urðar og auð­ugs líf­ríkis.

Hreinsa þarf bæði nitur og fosfór úr fráveitu­vatni til að minnka álag á Mývatn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem samstarfs­hópur sem skipaður var um málefni Mývatns skilaði af sér á dögunum. Hópurinn varar þó við væntingum um að hægt sé að snúa neikvæðri þróun lífríkisins á skömmum tíma. Neikvæðar breytingar á lífríki Mývatns benda til næringar­efna­auðgunar að mati RAMÝ, Náttúru­rannsóknar­stöðvar við Mývatn. Hópurinn segir að sporna þurfi við þessari þróun. Í skýrslunni kemur fram að þótt ekki teljist sannað að næringar­efna­auðgun sé helsta orsök vandans sé nauðsynlegt að draga úr losun slíkra efna í vatnið.

Samkvæmt starfs­hópnum þarf líka að auka rann­sóknir og vöktun á lífríki Mývatns og Laxár og hann telur að tekjur af ferðamanna­straum eigi að renna að einhverju leyti til þessara aðgerða. Efla þurfi einnig fræðslu til íbúa og ferða­manna.

Miklar umræður hafa skapast um ástand og lífríki vatnsins undan­farið. Kjarninn fjallaði meðal annars um ályktun Veiði­félags Mývatns í maí, þar sem félags­menn skoruðu einmitt á stjórn­völd að beita sér fyrir auknum framlögum til rannsókna og aðgerða vegna áfalla í lífríki Mývatns og Laxár.

Ríkið og Skútustaðahreppur vinni að útbótum saman

Í skýrslunni segir að gera þurfi heild­stæða áætlun um úrbætur í fráveitu­málum en þær þurfi að ná til nokkurra staða við vatnið. Rétt sé að ríkis­valdið og Skútu­staða­hreppur vinni saman að umbótum við hreinsun vatns og öðrum aðgerðum til að draga úr innstreymi næringar­efna í Mývatn. Starfs­hópurinn mælir með að víðtæk greining á lausnum í fráveitu­málum taki eins skamman tíma og unnt er.

Nauðsynlegt að efla frekari rannsóknir

Í skýrslunni kemur einnig fram að nauðsynlegt sé að efla rann­sóknir og vöktun á Mývatni og Laxá og lífríkinu þar. Í ljósi vandans nú sé mikilvægt að fá betri mynd af innstreymi næringar­efna, vexti þörunga og blábaktería og ferlum í fæðu­keðjum vatnsins. Einnig þurfi að huga að mögulegum eituráhrifum bakteríanna í Mývatni. Jafnframt sé æskilegt að fylgjast með svipuðum ferlum í öðrum vötnum á svæðinu.

Mikilvægt sé að efla enn frekar samstarf vísinda­manna sem koma að vöktun og rann­sóknum og miðlun á niður­stöðum þeirra til stjórn­valda, íbúa svæðisins og almennings.

Ferðamannatekjur ættu að renna til aðgerða

Tekjur af stór­auknum ferðamanna­straumi ættu að renna að einhverju leyti til aðgerða til að vernda helstu náttúru­perlur og tryggja aðdráttarafl þeirra og sýna fram á að Íslendingar hlúi vel að þeim, að mati skýrslu­höfunda. Fjölgun ferða­manna séu taldar auka álag á lífríki Mývatns og ljóst sé að Mývatn og Laxá eru meðal helstu og þekktustu náttúru­perla Íslands. Sem slíkar hafi þær mikið fjárhagslegt virði fyrir þjóðar­búið, auk ómetanlegs gildis einstakrar náttúru og lífríkis á heimsvísu.

Efla þarf fræðslu

Æskilegt þykir að efla fræðslu til íbúa og ferða­manna sem getur reynst skjótvirk leið til bættrar umgengni og að halda áhrifum manna í lágmarki, að mati skýrslu­höfunda. Fræðsla til íbúa um lífríkið, vatns­sparandi lausnir sem draga úr álagi á skólp­hreinsi­kerfi og um notkun vistvænna hreinsi­efna séu dæmi um brýn málefni. Fræðsla til ferða­manna um umgengni og aukið eftirlit með því að frið­lýsingar­skilmálum laga um Mývatn og Laxá sé fylgt leiði einnig til bættrar umgengni.

Hlutverk hópsins að draga saman bestu fáanlega þekkinguna

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlinda­ráðherra skipaði samstarfs­hópinn 17. maí síðastliðinn og óskaði eftir því að hann skilaði samantekt um ástand mála í Mývatni, orsakir þess vanda sem þar er nú við að búa og hugsanlegar aðgerðir til að bæta þar úr. Hópinn skipuðu átta fulltrúar frá stofnunum, hagsmuna- og umhverfis­verndar­samtökum, Skútu­staðahreppi og ráðuneytinu. Þetta kemur fram í frétt Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytisins.

Tilgangur saman­tektarinnar var að aðstoða stjórn­völd við ákvarðana­töku varðandi mögulegar aðgerðir sem gætu komið að gagni til að draga úr álagi af manna völdum á lífríki vatnsins. Auk saman­tektar á þeim upplýsingum sem ráðherra óskaði eftir setti hópurinn einnig fram nokkrar ábendingar sem stjórn­völd gætu haft til hliðsjónar varðandi næstu skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár