„Það væri okkur Íslendingum mikill álitshnekkir að bregðast ekki fljótt og vel við“

Félags­fundur Veiði­félags Mývatns, sem haldinn var í gær, skorar á „þartilbær yfirvöld að beita sér fyrir auknum fjár­framlögum til rannsókna og aðgerða vegna síendurtekinna áfalla í lífríki Mývatns og Laxár.“ Þetta segir í ályktun sem félags­fundur samþykkti, en Helgi Héðinsson á Geitar­eyjarströnd sendi ályktunina til fjölmiðla í dag.

Í henni segir enn fremur, að frekari rann­sóknir á svæðinu þoli enga bið. „Vatnið sýnir skýr einkenni ofauðgunar. Það ástand er lítt þekkt í vötnum hér á landi en hins vegar mikið og alvarlegt vandamál víða erlendis. Á síðustu árum hefur þörunga­blómi (leirlos) í Mývatni aukist mjög mikið og líftími hans fram á haustið lengst. Afleiðingin er mikil eyðing á botn­gróðri. Formlega er viðurkennt að kúlu­skíturinn sé útdauður úr vatninu og annar gróður á hröðu undan­haldi. Arður af silungs­veiðum hefur enginn verið í mörg ár og flestum anda­tegundum fækkar. Af viðbrögðum innlendra vísinda­manna er ljóst að rann­sóknir á þessum aukna þörunga­blóma, orsökum hans, afleiðingum og hvað er til úrbóta, eru allt of skammt á veg komnar,“ segir í ályktuninni.

Þá er á það minnt að Mývatn og Laxá séu vernduð með sérlögum. „Mývatn og Laxá eru vernduð með sérlögum og voru ásamt Þjórsár­verum fyrstu svæðin sem Íslendingar tilnefndu á alþjóð­legan verndar­lista Ramsar. Svæðið er þekkt um allan heim sem náttúru­gersemi sem standa beri séstakan vörð um. Það væri okkur Íslendingum mikill álits­hnekkir að bregðast ekki fljótt og vel við í þessu viðkvæma máli. Nauðsynlegar rann­sóknir og aðgerðir eru dýrari en svo að 400 manna samfélag standi undir kostnaðinum. Því heitir Veiði­félag Mývatns á Alþingi og ríkis­stjórn að axla sinn hluta ábyrgðarinnar og sýna að lögin um vernd Mývatns og Laxár séu meira en orðin tóm. Heimamenn þurfa aðstoð, bæði í formi fjár og fagþekkingar til að möguleiki sé á að snúa þessari óheilla­þróun við,“ segir í ályktun veiði­félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár