Jódís: Af hverju eiga listamenn síður að sæta ábyrgð?

Þing­maður Vinstri grænna spyr hvað sé öðru­vísi við lista­menn en fót­bolta­menn eða valda­menn í við­skipta­líf­inu varð­andi mál tengd meintum kyn­ferð­is­brotum.

Jódís Skúladóttir þingmaður VG.
Jódís Skúla­dóttir þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Jódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og nefnd­ar­maður í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, varp­aði fram tveimur spurn­ingum undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Hvað er öðru­vísi við lista­menn en fót­bolta­menn eða valda­menn í við­skipta­líf­inu? Af hverju eiga lista­menn síður að sæta ábyrgð?“

Tilefnið var að nú hefur nefndin hafið end­ur­skoðun á lögum um heið­urs­laun lista­manna en mál tón­list­ar­manns­ins og skálds­ins Megasar komst í hámæli í nóv­em­ber á síð­asta ári þegar Stundin greindi frá meintu kyn­ferð­is­broti gegn ungri konu árið 2004. Megas hefur lengi verið á heið­urs­launum lista­manna og tók alls­herjar- og mennta­mála­nefnd þá ákvörðun í des­em­ber að hann skyldi áfram hljóta heið­urs­launin.

Óljós tilgangur heiðurslauna

Jódís sagði á þingi í dag að það sem slægi hana við vinnu nefnd­ar­innar væri hinn óljósi til­gangur með heið­urs­laun­unum.

„Annars vegar eru það þau félags­legu sjón­ar­mið að lista­menn eigi tak­mörkuð líf­eyr­is­rétt­indi og því sé verið að styðja við þá lista­menn sem hafa varið starfsævi sinni til lista­starfa. Hins vegar eru það sjón­ar­mið um heiður sem lista­manni er veittur fyrir mik­inn árangur, jafnt á Íslandi og jafn­vel á erlendri grundu. Þessi sjón­ar­mið fara ein­fald­lega ekki alltaf saman og ég hefði talið mik­il­vægt að um annað yrði barist á vett­vangi stétt­ar­fé­laga, inni í þeim hluta.

En hins vegar er það þetta gild­is­hlaðna orð, heiður, þegar við erum að veita heið­urs­laun. Mig langar að koma inn á þann fjölda pósta sem við fengum hér fyrir jólin er vörð­uðu veit­ingu heið­urs­launa. Sögu heið­urs­launa má rekja allt til 1890 eða þar um bil og við búum vissu­lega í öðru sam­fé­lagi í dag en við gerðum þá. Bylgjur metoo-hreyf­ing­ar­innar hafa gengið yfir und­an­farin ár og því ber að fagna. Nú hef ég fengið marga pósta og margar ábend­ingar um að ekki sé við­eig­andi að sú bylgja nái inn í lista yfir heið­urs­laun lista­manna.“ Spurði hún spurn­ing­anna sem áður voru nefndar í kjöl­farið: „Hvað er öðru­vísi við lista­menn en fót­bolta­menn eða valda­menn í við­skipta­líf­inu? Af hverju eiga lista­menn síður að sæta ábyrgð?“

Sagði hún að end­ur­skoðun lag­anna væri mik­il­væg. „Fyrstu skrefin hafa verið stigin og ég vona að við komumst að ásætt­an­legri nið­ur­stöðu,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár