Mynd: Hafliði Breiðfjörð

Það sem KSÍ gerði vitlaust og sýndi „merki þöggunar- og nauðgunarmenningar“

KSÍ fékk upp­lýs­ingar um meinta hópnauðgun tveggja lands­liðs­manna fyrir ell­efu árum síðan í byrjun júní síð­ast­lið­inn. Eftir til­kynn­ingu þar um frá starfs­manni sam­bands­ins, tengda­móður þol­and­ans, var meðal ann­ars rætt við annan ger­and­ann.

Sunnu­dag­inn 9. maí síð­ast­lið­inn birt kona frá­sögn á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram um að tveir ónafn­greindir, en þekktir, menn hefðu beitt hana kyn­ferð­is­of­beldi árið 2010. Síðar var stað­fest að atburð­ur­inn hafi átt sér stað eftir lands­leik Íslands og Dan­merkur þann 7. sept­em­ber 2010 í Kaup­manna­höfn. Um meinta nauðgun er að ræða og hún var kærð til lög­reglu á sínum tíma. Sú kæra var dregin til baka en lög­reglan tók rann­sókn máls­ins upp að nýja í haust.

Tveir þáver­andi lands­liðs­menn, Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins um margra ára skeið, og Eggert Gunnþór Jónsson, hafa stað­fest með opin­berum yfir­lýs­ingum að þeir séu menn­irnir tveir sem grun­aðir eru um verkn­að­inn. Þeir neita báðir stað­fast­lega sök.

Í frá­sögn­inni á Instagram sagði konan meðal ann­ars: „Til að gera langa og ömur­lega sögu stutta að þá ældi ég yfir annan þeirra í leigu­bílnum á leið á hót­elið þeirra, svo aftur í rúmið á hót­el­inu en þeir létu það ekki stoppa sig og skipt­ust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúm­inu ber að neðan með ælu í hár­inu, and­lit­inu og föt­unum.“

Einhverjir vissu eitthvað

Úttekt­ar­nefnd sem Íþrótta­sam­band Íslands (ÍSÍ) skip­aði fyrr á árinu að beiðni Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), til að gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands, skil­aði af sér skýrslu í dag. Þar er með­ferð þessa máls innan KSÍ rakin með ítar­legri hætti en nokkru sinni áður.

Í skýrsl­unni kemur meðal ann­ars fram að úttekt­ar­nefndin hafi rætt við ein­stak­linga sem tengd­ust karla­lands­lið­inu á þeim tíma sem hið meinta brot átti sér stað. Í þeim við­tölum hafi komið fram að ein­hverjir hefðu „fengið vit­neskju um „að eitt­hvað hefði gerst í ferð­inni sem átti ekki að ger­ast“, eins og einn þeirra orð­aði það, og að það hefði lotið að því að tveir lands­liðs­menn hefðu verið með stelpu uppi á her­bergi hjá sér. Þeir ein­stak­lingar sem nefndin ræddi við báru þó ekki að þeir hefðu heyrt frá­sagnir um að kyn­ferð­is­brot hefði átt sér stað en lögð hafi verið áhersla á að leyna atvik­inu með vísan til þess að annar leik­mað­ur­inn hefði átt kær­ustu sem ekki hefði mátt kom­ast að því hvað hefði gerst.“

Geir Þor­steins­son, þáver­andi for­maður KSÍ, greindi nefnd­inni frá því í við­tali að hann hafi ekki heyrt af þessu máli fyrr en í ágúst 2021, löngu eftir að hann hætti störfum hjá KSÍ.

Síðan lá málið í lama­sessi í næstum ell­efu ár.

Tengdamóðir þolanda greinir frá

Þann 3. júní 2021 barst nafn­laust bréf til Guðna Bergs­sonar, þáver­andi for­manns KSÍ, Klöru Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóra KSÍ, og Arnars Þórs Við­ars­sonar, lands­liðs­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins.

Bréfið var eft­ir­far­andi:

„Varðandi val ykkar á lands­liðs­hópnum fyrir næsta verk­efni lang­aði mig að athuga hvort þið hjá KSÍ hefðuð hug­mynd um hverja þið væruð í raun og veru að velja í lið Íslands. Ég efast um að gjörðir og hegðun ákveð­inna aðila í hópnum hafi farið fram­hjá öllum þeim sem vinna fyrir ykkar hönd þar sem þessir ákveðnu aðilar eru sagðir vera kyn­ferð­is­af­brota- og ofbeld­is­menn. Ég velti því fyrir mér hver afstaða ykkar í málum sem þessum er? Viljið þið virki­lega að fyr­ir­myndir allra barna sem hafa áhuga á fót­bolta séu kyn­ferð­is­af­brota- og ofbeld­is­menn? Þar á meðal barn­anna ykkar? Viljið þið vera með­sek í að gefa þessum ein­stak­lingum góða stöðu í sam­fé­lag­inu til þess að auð­velda þeim að kom­ast upp með að mis­nota aðra? Þið hafið öll völdin til að velja í liðið og því miður sér maður þessa aðila valda fyrir hönd Íslands aftur og aftur. Kveðja, Aðili sem krefst góðra fyr­ir­mynda fyrir börnin okkar.“

Bréfið var meðal annars stílað á landsliðsþjálfarann Arnar Þór Viðarsson.
Bréfið var meðal ann­ars stílað á lands­liðs­þjálf­ar­ann Arnar Þór Við­ars­son.

Starfs­maður KSÍ, kona sem starfað hafði hjá sam­band­inu í á þriðja ára­tug, tók á móti bréf­inu, skann­aði það og sendi áfram á þá sem það var stílað á.

Eftir að Klara opn­aði póst­inn og las bréfið spurði hún kon­una hvort hún vissi eitt­hvað. Sagði konan henni þá „að tengda­dóttir hennar hefði greint sér frá því tveimur árum áður að tveir leik­menn A-lands­liðs­ins [...] hafi í sam­ein­ingu nauðgað sér í kjöl­far lands­leiks Dan­merkur og Íslands á þjóð­ar­leik­vangi Dana í knatt­spyrnu árið 2010.“ Klara greindi for­manni KSÍ, sem hafði þegar heyrt af mál­inu en vissi ekki af tengsl­unum við starfs­mann sam­bands­ins, frá stöðu mála í kjöl­farið.

Frá þeim degi, 3. júní 2021, var því form­leg vit­neskja um málið hjá æðstu stjórn­endum KSÍ.

Guðni ræddi málið við Aron Einar í júlí

Í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar segir að í við­tali Guðna Bergs­sonar við hana hafi Guðni greint frá sím­tali sem hann hafi átt við Aron Einar í júlí­mán­uði, eftir að að fréttir bár­ust af rann­sókn á meintum kyn­ferð­is­brotum Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, ann­ars lands­liðs­manns, gegn barni sem eru til rann­sóknar í Bret­landi. Í því sím­tali minnt­ist Aron Einar að fyrra bragði á frá­sögn kon­unnar sem ásakað hafði hann um nauðgun.

Aron Einar Gunnarsson var fyrirliði íslenska landsliðsins um árabil og leiddi það meðal annars á tvö fyrstu stórmót þess í sögunni.
Aron Einar Gunn­ars­son var fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins um ára­bil og leiddi það meðal ann­ars á tvö fyrstu stór­mót þess í sög­unni.

Í skýrsl­unni er Aron Einar auð­kenndur með bók­stafnum C og konan með bók­stafnum Z. Þar segir: „Að sögn Guðna sagði C að hann hefði átt kyn­ferð­is­legt sam­neyti við Z ásamt öðrum leik­manni en hafn­aði því alfarið að þeir hefðu brotið á henni. Mun C hafa látið svo um mælt við Guðna að lýs­ingin væri ekki í sam­ræmi við hans upp­lifun og að hann ætl­aði ekki að játa á sig eitt­hvað sem hann hefði ekki gert.“

Guðni sagði síðar hafa komið til tals að máls­að­ilar hitt­ust mögu­lega þegar konan léði máls á því sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá tengda­móður hennar en Guðni kvaðst „ekki hafa talið rétt að KSÍ hefði óum­beðið milli­göngu um það né sátta­ferli í máli sem þessu.“

Varaformaður verður fyrir áfalli

Arnar Þór Við­ars­son sagði í við­tali við úttekt­ar­nefnd­ina að hann hefði „fyrst rætt málið við C í ágúst. C hefði þá greint honum frá sinni hlið máls­ins sem hafi verið önnur en þol­anda. Arnar Þór kveðst á þessum tíma hafa haft í hyggju að velja C í liðið enda hafi hann þá ekki vitað annað en að um væri að ræða óstað­festa frá­sögn á inter­net­inu.“

Starfs­maður KSÍ, tengda­móðir þol­anda, sem er auð­kennd með bók­stafnum Y í skýrsl­unni sagði við nefnd­ina að hún hafi fengið „á til­finn­ing­una á þessum tíma að Guðni, Klara og Arnar Þór hafi verið búin að ákveða að þau gætu ekki gert neitt í mál­inu. Greindi Y þá til­teknum sam­starfs­mönnum innan KSÍ frá þeirri til­finn­ingu sinni.“

Stjórn KSÍ var ekki gerð grein fyrir mál­inu á þessum tíma og fram­vinda þess var engin fram að versl­un­ar­manna­helgi. Þá heyrði Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir, einn vara­for­manna KSÍ, af því í gegnum dóttur sína. Og varð fyrir áfalli.

Í við­tali við nefnd­ina sagði Borg­hildur frá því að hennar fyrsta hugsun væri sú að tengda­móðir stúlkunnar sem greindi frá því að hún hefði verið beitt ofbeldi væri starfs­maður sam­bands­ins. Borg­hildur sagð­ist hafa áhyggjur af því hversu mikið álag það hlyti að hafa verið fyrir kon­una að hafa vitað af mál­inu og vera að vinna fyrir lands­liðið á sama tíma.

Hanna Björg opinberar málið

Ellefu dögum síðar, 13. ágúst, sprakk málið svo upp á opin­berum vett­vangi. Þá birt­ist grein á Vísi eftir Hönnu Björg Vil­hjálms­dóttur sem fjall­aði um mál ungu kon­unnar. Þar sagði meðal ann­ars: „Lýs­ingin á ofbeld­inu er hroða­leg og glæp­ur­inn varðar við margra ára fang­elsi. Það hafði þó ekki meiri áhrif á ger­end­urna (lands­liðs­menn­ina) en svo að þeir gerðu grín að nauðg­un­inni dag­inn eft­ir. For­herð­ingin algjör. Í frá­sögn­inni kemur fram hvaða afleið­ingar þessi unga kona hefur þurft að burð­ast með. Lýs­ingin er þyngri en tárum taki. Þol­and­anum var ein­dregið ráð­lagt að kæra ekki, við ofurefli væri að etja.

Fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna. Þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henni.“

Úttekt­ar­nefndin tók við­tal við Hönnu Björgu. Þar sagð­ist hún hafa þekkt kon­una sem lýst hefði ofbeld­inu í færsl­unni á Instagram. Hún hafi haft sam­band við hana og sagt henni frá áformum sínum um að skrifa grein. Að sögn Hönnu Bjargar hafi hvert skref sem hún hefur stigið í mál­inu verið tekið með vit­und og í sam­ráði við kon­una, og hún hafi boðið henni að lesa allt sem hún skrif­aði.

KSÍ hringir í KOM

Stjórn KSÍ varð mjög áhyggju­full eftir að pistill­inn birt­ist og skeyta­send­ingar í gegnum tölvu­póst gengu manna á milli.

Guðni Bergsson gerði stjórn­inni grein fyrir að von væri á við­brögðum. Í tölvu­pósti sem hann sendi sagði: „Við erum að und­ir­búa svar í til­kynn­ingu sem við sendum á ykkur á eftir áður en hún birt­ist. Við myndum síðan funda í kjöl­farið og ræða þessi mál. Það sem ég get þó sagt er að þessi pist­ill er ósannur og ómak­legur. Engin mál okkar keppn­is­fólks hafa borist okkur form­lega eða verið á okkar borði síðan ég tók við sem for­maður.“

Í við­tölum stjórnar og starfs­fólks KSÍ við úttekt­ar­nefnd­ina kom fram að Guðni hefði reiðst yfir grein­inni og farið í að und­ir­búa svar við henni ásamt almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM. Þaðan hafi þeir Gísli Freyr Val­dórs­son og Friðjón R. Frið­jóns­son, núver­andi vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, komið að ritun yfir­lýs­ing­ar­innar fyrir hönd KOM ásamt Guðna. Aðrir innan KSÍ fengu drög að henni til yfir­lestrar og gagn­rýni á yfir­lýs­ing­una var sett fram.

Friðjón R. Friðjónsson, einn eigenda KOM.
Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­enda KOM.

Yfir­lýs­ingin var birt 17. ágúst á heima­síðu KSÍ. Enginn var skrif­aður fyrir henni. Þar sagði meðal ann­ars: „​​Rétt er þó að ítreka að KSÍ gerir engar til­raunir til að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­end­um. Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug.“

Grennslast fyrir um sáttarmeðferð

Í við­tali við nefnd­ina lýsti tengda­móðir þol­and­ans, starfs­maður KSÍ, því að henni hefði þótt gott að mál tengda­dóttur sinnar væri komið upp á yfir­borðið. Hún lýsti því jafn­framt í við­tali við nefnd­ina að Guðni hefði haft sam­band við sig að fyrra bragði um miðjan ágúst til að spyrja hana hvað þol­and­inn í mál­inu vildi gera en honum hafi skilist að hún hefði ekki hug á því að nafn­greina Aron Einar. „Að sögn Y mun Guðni einnig hafa grennsl­ast fyrir um það í sam­tal­inu hvort ein­hvers konar sátta­með­ferð milli leik­manns­ins og þol­and­ans kæmi til greina. Samkvæmt Y mun hug­myndin að sáttum hafa komið frá Guðna.“

Konan sagði í við­tali við nefnd­ina að tengda­dóttir sín hefði síðar verið til­búin að hitta Aron Einar og ræða málið en þó aðeins augliti til auglits til að ræða reynslu sína og sárs­auka við hann og alls ekki í gegnum síma.

Ósátt með hvernig Guðni hélt á málinu

Guðni lýsti sam­tal­inu þannig hann hefði talið að frum­kvæðið að þessu þyrfti að koma frá aðilum máls­ins og hann ekki verið viss um að svona mál væri hægt að sætta.

Í við­tali við nefnd­ina greindi tengda­móð­irin frá því að hún hefði spurt Guðna að því í sam­tal­inu hvort hann væri búinn að ræða við ein­hverja aðra en Aron Einar sem hefðu verið innan KSÍ á þessum tíma og gætu hafa vitað eitt­hvað um málið. „Guðni hefði sagt henni að hann hefði rætt við ein­stak­ling sem hefði verið úti með lands­lið­inu á þeim tíma sem frá­sögn Z snerti. Y taldi hins vegar ljóst af sam­tal­inu að Guðni hefði á þessum tíma hvorki rætt við Geir Þor­steins­son, sem var for­maður KSÍ á þeim tíma sem leik­ur­inn fór fram í Kaup­manna­höfn, né Ólaf Inga Skúlason, sem lék með lands­lið­inu í leiknum en væri nú starfs­maður KSÍ. Y kvaðst síðan hafa spurt Guðna aftur síðar hvort hann hefði rætt við fólk og aflað sér frek­ari upp­lýs­inga um málið en skilist að svo væri ekki.“

Í við­tali við nefnd­ina greindi konan frá því að hún hefði verið ósátt við hvernig Guðni hélt á mál­inu.

Ófullnægjandi svör

Nú gerð­ust hlut­irnir hratt og fyr­ir­spurnum frá fjöl­miðlum fór að rigna inn. Ein slíkt var frá Kjarn­anum.

Frá 18. ágúst var ítrekað spurt hvort sam­bandið hefði ein­hvern tím­ann haft vit­neskju um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta, hvort KSÍ hafi ein­hvern tím­ann haft afskipti af málum sem tengj­ast slíkum ásök­unum gegn lands­liðs­manni og hvort KSÍ hafi hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda eða leitað aðstoðar hjá sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála ef og þegar grunur hafi verið um lög­brot?

Þá var spurt sér­stak­lega hvort KSÍ hefði vit­neskju um meint atvik eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gegn ungri konu og ef svo væri, í hvaða verk­ferla það mál hefði far­ið?

Fyrstu svör sam­bands­ins við fyr­ir­spurn­unum voru ófull­nægj­andi og í raun svör við öðrum spurn­ingum en spurt var. Þar sagði meðal ann­ars að „kvart­anir um meint brot leik­manna hafa ekki borist inn á borð KSÍ.“

KOM látið svara Kjarnanum

Í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að KOM hafi aftur verið kallað til. Þar segir að af gögnum og upp­lýs­ingum sem úttekt­ar­nefndin afl­aði „verður ráðið að upp­leggið að svar­inu hafi komið frá almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­inu KOM sem sinnti ráð­gjöf um málið að beiðni Guðna Bergs­sonar. Ómar [Smárason, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar KSÍ] mun aftur á móti hafa lagt til að KSÍ segði frá mál­inu nákvæm­lega eins og það væri, m.a. um að for­svars­menn KSÍ hefðu frétt af umræddri frá­sögn af meintu ofbeldi lands­liðs­manns snemm­sum­ars á þessu ári en ekki borist form­legt erindi um málið. Á þá til­lögu var hins vegar ekki fall­ist.“

Ómar svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans á end­anum sjálfur rúmum mán­uði eftir að hún var upp­haf­lega lögð fram, eða 23. sept­em­ber. Fyr­ir­spurnin hafði þá verið marg­ít­rekuð. Í því svari stað­festi Ómar að ábend­ing um meint atvik eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber 2010 þar sem tveir lands­liðs­menn voru ásak­aðir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi hefði borist 2. eða 3. júní síð­ast­lið­inn.

Staðfest fyrir stjórn að meintir gerendur væru landsliðsmenn

Sama dag og svarið sem lagt var upp af KOM var sent til Kjarnans, þann 20. ágúst, var hald­inn óform­legur fundur hjá stjórn KSÍ. Í við­tali við úttekt­ar­nefnd­ina greindi stjórn­ar­mað­ur­inn Ingi Sig­urðs­son frá því að á þessum fundi hefði í fyrsta sinn verið stað­fest að í frá­sögn kon­unnar á Instagram væri verið að vísa til Arons Einars og Eggerts. „Guðni hafi hins vegar gert lítið úr mál­inu og sagt að þetta væri bara á sam­fé­lags­miðlum. Stjórn­ar­fólk hafi hins vegar bent á hvernig tekið væri á svona hlutum á vinnu­stöðum þar sem ekki væri óal­gengt að kalla til utan­að­kom­andi ráð­gjafa til að aðstoða við málin.“

Tengda­móðir þol­and­ans hafði sagt sam­starfs­fólki sínu á þessum tíma að hún myndi hætta hjá KSÍ ef Aron Einar yrði val­inn í næsta lands­liðs­hóp, sem átti að til­kynna 25. ágúst.

Konan og Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari ræddu í kjöl­farið saman. Hún sagði í við­tali við nefnd­ina að fyrstu við­brögð Arnars Þórs hefðu verið að það væru tvær hliðar á hverju máli og hann gæti illa dæmt um hvað gerð­ist. Hún hefði upp­lifað hlut­ina innan KSÍ eins og ekki væri vilji til að taka þetta alvar­lega.

Í við­tali Arnars Þórs við nefnd­ina lýsti hann því að hann hefði í sam­tali sínu við kon­una gert sér grein fyrir hversu alvar­legt málið væri fyrir fjöl­skyldu hennar og hversu þungt það lægi á henni. Á þeim tíma hafi verið umræða um að Aron Einar myndi tala við þol­anda, hugs­an­lega í gegnum milli­göngu ann­arra. Aron Einar hafi hins vegar greinst með COVID-19 í aðdrag­anda land­s­leikj­anna og var af þeim sökum ekki val­inn í lands­liðs­hóp­inn.

Sögðu að ekki væri hægt að treysta RÚV til að gæta hlutlægni

Þrýst­ing­ur­inn á KSÍ óx og óx þessa daga. Þann 26. ágúst fór Guðni í við­tal við Kast­ljós þar sem hann sagði að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot að hálfu leik­manns í lands­liði karla í knatt­spyrnu.

KOM veitti Guðna enn og aftur ráð­gjöf, í þetta sinn þau ráð að hann ætti ekki að fara í við­talið. Þá ráð­gjöf huns­aði Guðni. „Í tölvu­pósti til úttekt­ar­nefnd­ar­innar sagði Guðni að KOM hafi ráðið honum frá því að mæta í við­talið hjá RÚV þar sem ekki hafi ríkt traust um að RÚV myndi gæta hlut­lægni og hlut­leysis í sínum frétta­flutn­ingi. Lýsti Guðni jafn­framt þeirri afstöðu að miðað við efn­is­tökin mætti segja að það hefði komið í ljós, bæði í vöntun RÚV á að afla sér upp­lýs­inga um málið og hunsun þeirra upp­lýs­inga sem hann lét í té sem skiptu veru­legu máli að hans viti.“

Guðni Bergsson í viðtali við RÚV seint í ágústmánuði. Mynd: RÚV/Skjáskot
Guðni Bergsson í við­tali við RÚV seint í ágúst­mán­uði. Mynd: RÚV/Skjáskot

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem úttekt­ar­nefndin fékk við athugun sína á mál­inu mun Ómar Smárason, deild­ar­stjóri sam­skipta­deildar KSÍ, hafa dregið sig út úr allri ráð­gjöf um málið í kjöl­far þeirrar ákvörð­unar Guðna að fara í við­talið.

Tilkynning barst árið 2018

Sú full­yrð­ing Guðna að engin til­kynn­ing hefði borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot leik­manns reynd­ist ekki sann­leik­anum sam­kvæm.

Það opin­ber­að­ist dag­inn eftir Kast­ljós­við­talið þegar Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir steig fram og greindi frá sinni sögu. Þar kom fram að frá 19. mars 2018 hið minnsta hefur legið fyrir að full vit­neskja var um ofbeld­is­hegðun lands­liðs­manns­ins Kolbeins Sig­þórs­sonar innan KSÍ. Þá sendi faðir Þór­hildar Gyðu tölvu­póst á KSÍ, for­mann sam­bands­ins og fjöl­marga lyk­il­starfs­menn þar sem hann greindi frá því að dóttir hans hefði kært Kolbein til lög­reglu fyrir lík­ams­árás og grófa kyn­ferð­is­lega áreitni. Yfir­skrift tölvu­pósts­ins var: „Of­beldi og Lands­liðið í fót­bolta á enga sam­leið“.

Kolbeinn samdi síðar við Þórhildi Gyðu og aðra konu um mála­lok og greiddi þeim og Stíga­mótum sex millj­ónir króna gegn því að þær myndu draga kæruna til baka. Kolbeinn bað þær einnig afsök­unar.

Guðni ​​sagði það hafi verið mis­tök að segja að engin til­kynn­ing hafi borist sam­band­inu um kyn­ferð­is­brot af hálfu leik­manns í lands­liði karla í knatt­spyrnu. „Mig minnti að þetta brot hefði verið ofbeld­is­brot og ekki af kyn­ferð­is­legum toga.“

Tengdamóðirin sendir formlega tilkynningu

Sama dag, föstu­dag­inn 27. ágúst, hafði tengda­móðir þol­and­ans í mál­inu sem snerti Aron Einar og Eggert sent tölvu­póst á stjórn KSÍ um frá­sögn sína sem starfs­maður KSÍ undir yfir­skrift­inni „Að gefnu til­efni – ÁBENDING!“.

póst­inum sagði: „Þar sem frá­sögn mín sem starfs­manns KSÍ til að verða 25 ára og tengda­móður þol­and­ans, flokk­ast ekki sem ábend­ing í eyrum og augum for­manns KSÍ sam­kvæmt við­tali í Kast­ljósi sem og fleiri fjöl­miðlum, sendi ég hér með form­lega ábend­ingu um meint kyn­ferð­is­of­beldi tveggja lands­liðs­manna eftir lands­leik Dan­merkur og Íslands á Parken 7. sept­em­ber 2010. Með­fylgj­andi er frá­sögn tengda­dóttur minnar sem ég er marg búin að ræða um við Guðna og einnig fylgja með skila­boð sem tengda­dóttir mín fékk nýverið frá fyrrum vin­konu þess­ara leik­manna.“

„Mér finnst ógeðslegt að hugsa til þess hvernig ég tók afstöðu með þeim gegn þér“

Í skjali sem fylgdi tölvu­póst­inum var að finna frá­sögn tengda­dóttur starfs­manns­ins sem sett hafði verið á Instagram í maí og annað við­hengi sem var skjá­skot af Instagram-skila­boðum til hennar frá ótil­greindum aðila.

Þau voru svohljóð­andi: „Sæl [Z], Ég er búinn að skrifa þessi skila­boð cirka 100 sinnum og stroka út því ég veit í raun­inni ekk­ert hvað ég get sagt. Ég trúi samt á það að við­ur­kenna mis­tök sín og taka ábyrgð og ætla þess vegna að henda þessu til þín.

Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar ég fékk sím­tal frá vini mínum út af þessu atviki sem þú lentir í 2010.

Þetta voru vinir mínir sem gerðu þér þetta. Það hafði spurst út að þú ætl­aðir að kæra þá og vina­hóp­ur­inn átti að fara á fullt að reyna að koma í veg fyrir það til þess að skemma ekki þeirra mann­orð.

Alger bilun ég veit.

Þessir strákar höfðu allt valdið í höndum sér. Frægð og frama, pen­inga, vin­sældir og voru ekk­ert eðli­lega sann­fær­andi þegar þeir sögðu að þú hefðir viljað þetta allan tím­ann og að þetta væri kjaftæði. Þeir gátu ekki einu sinni staðið saman heldur bentu á hvorn annan og sögðu að hinn hefði gert þetta. Ég var alger­lega heila­þvegin og tók með þeim stöðu. Þú dróst þetta svo til baka og þeir héldu bara áfram með lífið einsog ekk­ert hefði gert, dauð­fegnir að þurfa ekki að taka neina ábyrgð.

Ég hef svo oft hugsað um þetta atvik, og nú mörgum árum seinna þegar ég er búin að slíta öllum mínum sam­skiptum við þá fyrir löngu út af svo mörgum furðu­legum atvikum þar sem ég var neydd til að ljúga fyrir þá og taka með þeim stöðu þá sé ég [...]

Mér finnst ógeðs­legt að hugsa til þess hvernig ég tók afstöðu með þeim gegn þér.

Mig lang­aði bara að biðja þig afsök­unar þó að þú hafir fullan rétt á að kasta því út á hafs­auga. Ég er stolt af þér að koma með þetta fram, ég trúi þér og ég stend með þér ef þú ætlar með þetta mál lengra.“

Guðni svar­aði póst­inum sagð­ist telja að um mis­skiln­ing væri að ræða. „​​Það var aldrei ætlun mín [Y] að neita fyrir til­vist þessa máls. Þessi svör sneru að því hvernig það komst til okkar vit­undar og að við værum ekki að hylma yfir einum né neinum í svona málum. Mér þykir það leitt að þér hafi sárnað yfir þessu svari.“

Átti að sópa málinu undir teppið

Í skýrsl­unni er haft eftir Þor­steini Gunn­ars­syni, stjórn­ar­manni í KSÍ, að þessi tölvu­póstur hefði verið algjör sprengja. „Hann liti svo á að Y hafi til­kynnt þetta og ekk­ert annað. Stjórnin hefði aldrei verið látin vita af þessu heldur hafi bara átt að sópa mál­inu undir teppið.“

Íslenska karlalandsliðið naut gríðarlegrar lýðhylli vegna árangurs þeirra, sérstaklega á árunum 2016 til 2018. Þeir landsmenn sem komust ekki út á lokakeppnir hópuðust margir hverjir saman við stóra skjái til að fylgjast með leikjum liðsins.
Íslenska karla­lands­liðið naut gríð­ar­legrar lýð­hylli vegna árang­urs þeirra, sér­stak­lega á árunum 2016 til 2018. Þeir lands­menn sem komust ekki út á loka­keppnir hóp­uð­ust margir hverjir saman við stóra skjái til að fylgj­ast með leikjum liðs­ins.

Á stjórn­ar­fundi sem hald­inn var 28. ágúst var tölvu­póst­ur­inn til umræðu.

Í skýrsl­unni segir: „Á fund­inum lýsti stjórn­ar­fólk miklum áhyggjum af því hvort yfir­lýs­ingar og upp­lýs­ingar sem birtar höfðu verið opin­ber­lega fyrir hönd KSÍ hefðu verið réttar. Þannig mun stjórn­ar­mað­ur­inn Ingi Sig­urðs­son hafa spurt Guðna sér­stak­lega hvenær þeim Klöru hefðu fyrst borist upp­lýs­ingar um mál Z, tengda­dóttur Y. Greindi Guðni stjórn þá frá nafn­lausa bréf­inu frá 3. júní og að í kjöl­farið hafi verið rætt við Y.“

Í við­tali við úttekt­ar­nefnd­ina lýsti stjórn­ar­mað­ur­inn Valgeir Sig­urðs­son því að stjórn­ar­fólk KSÍ sem sat fund­inn þennan dag hefði orðið fyrir gríð­ar­legum von­brigðum. „Fólki hafi liðið eins og það hefði orðið fyrir lest og það hefði spurt sig hvar það væri eig­in­lega statt. Trú­verð­ug­leiki KSÍ út á við væri fok­inn út um glugg­ann og hið sama gilti um traustið til for­manns frá stjórn.“

Stjórn­ar­mað­ur­inn Orri Hlöðvers­son tók í sama streng í við­tali sínu við nefnd­ina. „Þessa helgi hafi um 80–90% stjórnar upp­lifað það að þeim væri haldið full­kom­lega í myrkr­inu af hálfu for­manns og fram­kvæmda­stjóra. Orri taldi að í máls­með­ferð­inni hefðu aug­ljós­lega átt sér stað stjórn­un­ar­leg mis­tök sem fólust í því að stjórn var ekki höfð með í ráðum fyrr í ferl­inu.“

Daginn eftir var hald­inn annar stjórn­ar­fundur. Þar þurfti Guðni að segja af sér sem for­maður KSÍ vegna þess að stjórn sam­bands­ins treysti honum ekki lengur.

Sama dag var send út ný yfir­lýs­ing sem hófst á orð­unum: „Kæru þolendur, við í stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands trúum ykkur og biðjum ykkur inni­lega afsök­unar.“

Þar var einnig fjallað um yfir­lýs­ing­una frá 17. ágúst, sem KOM hafði lagt upp, og allir þeir sem „stóðu í fram­línu þess að benda á ofbeldið innan KSÍ afsök­unar á yfir­lýs­ing­unni sem gerði lítið úr þeirra ásök­unum og var laus við alla ábyrgð og ein­lægni.“

Klara ræddi við forsetann

Guðni ræddi aldrei við þol­and­ann síð­ast­liðið sumar þrátt fyrir að tengda­móðir hennar hafi komið því á fram­færi við Guðna að tengda­dóttir hennar væri reiðu­búin að tala við hann.

Í kjöl­far afsagnar Guðna ætl­aði Klara Bjartmarz að gera það. Hún hefði hins vegar orðið fyrir miklu áreiti og fengið fjöl­margar hót­anir í kjöl­far afsagnar stjórnar og fjöl­miðlaum­fjöll­unar og meðal ann­ars verið ráð­lagt að sækja ekki barn sitt á leik­skóla. Í skýrsl­unni segir: „Þriðju­dag­inn 31. ágúst 2021 mun Klara hafa yfir­gefið höf­uð­stöðvar KSÍ og til­kynnt stjórn að hún væri farin og vissi ekki hvort hún kæmi aftur. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem nefndin fékk mun það hafa gerst í beinu fram­haldi af sam­tali Klöru við Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands. Jörundur Áki Sveins­son, þjálf­ari U-17 ára lands­liðs drengja, mun hafa hlaupið á eftir Klöru og séð til þess að hún yrði sótt í vinn­una.“

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ.
Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ.

Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir, annar vara­for­manna KSÍ mun síðan, að beiðni starfs­fólks KSÍ, hafa hringt í þol­and­ann í mál­inu og varð þannig fyrsti stjórn­andi eða stjórn­ar­maður sam­bands­ins til að ræða við hana beint.

Tengdamóðirin sagði upp störfum hjá KSÍ

Í nið­ur­stöðum úttekt­ar­nefnd­ar­innar um með­ferð KSÍ á máli ungu kon­unnar sem birti frá­sögn­ina á Instagram, um kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu tveggja lands­liðs­manna árið 2010, segir að hún telji sýnt að Guðni og Klara hafi, ásamt Arnari Þór Við­ars­syni, þjálf­ara A-lands­liðs­ins, 3. júní 2021 fengið upp­lýs­ingar í gegnum tengda­móð­ur­ina að menn­irnir í frá­sögn­inni væru leik­menn lands­liðs karla í knatt­spyrnu.

Úttekt­ar­nefndin telur jafn­framt liggja fyrir að Guðni og tengda­móðir þol­and­ans hafi rætt málið ítrekað og að Guðni hafi einnig rætt málið við Aron Einar, annan leik­mann­anna.

Af við­tölum nefnd­ar­innar við tengda­móð­ur­ina og annað starfs­fólk KSÍ telur hún fyr­ir­liggj­andi að Guðni og Klara hafi verið ráð­villt um hvernig taka ætti á mál­inu.

Nefndin taldi óheppi­legt að tengda­móðir þol­and­ans hafi sem almennur starfs­maður KSÍ verið sett í þá stöðu að hafa milli­göngu um boð til og frá tengda­dóttur sinni sem greint hafði frá ofbeldi af hálfu leik­manna lands­liðs­ins til KSÍ og for­manns. Það hafi verið til þess fallið að vekja hjá henni ótta um starfs­ör­yggi sitt. Slíkt gat enn fremur skapað þrýst­ing á bæði hana og tengda­dóttur hennar um að halda mál­inu í þagn­ar­gildi og fara ekki með það lengra.

Tengda­móðir þol­and­ans sagði upp störfum hjá KSÍ eftir að vinna úttekt­ar­nefnd­ar­innar hófst eftir að hafa starfað í meira en tvo ára­tugi hjá sam­band­inu.

Villandi yfirlýsingar

Nefndin telur að ekki verði hjá því kom­ist að „benda á það að Guðni Bergsson lét sem for­maður sam­bands­ins ítrekað frá sér yfir­lýs­ingar um að KSÍ hefði ekki fengið neinar til­kynn­ingar eða ábend­ingar af þessum toga inn á sitt borð síðan hann tók við for­mennsku [...] Ljóst er að þessar yfir­lýs­ingar sem for­maður gaf í nafni KSÍ til fjöl­miðla og almenn­ings voru vill­andi, enda var for­maður KSÍ á sama tíma með á borði sínu til­kynn­ingu Y um ofbeldi gagn­vart tengda­dóttur sinni, auk þess sem for­mað­ur­inn var á sama tíma í sam­skiptum við leik­mann lands­liðs­ins vegna máls­ins.“ Þá hafði KSÍ fengið upp­lýs­ingar um mál Kolbeins sem hafði þær afleið­ingar að hann var sendur heim úr æfinga­ferð lands­liðs­ins.

Auk þess telur nefndin að full­yrð­ing, sem birt­ist í til­kynn­ingu frá KSÍ 17. ágúst 2021, um að tryggt væri þegar mál sem tengd­ust ofbeldi færu í við­eig­andi ferli ef þau kæmu inn á borð sam­bands­ins og að ávallt væri hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda þegar grunur væri um lög­brot „hafi ekki heldur gefið rétta mynd af með­ferð þess­ara mála innan KSÍ [...] Úttekt­ar­nefndin telur að fram­an­greindar yfir­lýs­ingar sem fram komu fyrir hönd sam­bands­ins í máli for­manns og í opin­berum til­kynn­ingum hafi verið til þess fallnar að gera lítið úr málum þeirra kvenna sem greint höfðu frá ofbeldi í sinn garð. [...] Að mati nefnd­ar­innar má til sanns vegar færa að yfir­lýs­ing­arnar hafi borið með sér ákveðin merki þögg­unar- og nauðg­un­ar­menn­ingar, þar sem því var í reynd hafnað í yfir­lýs­ing­unum að mál kvenn­anna hefðu komið til vit­undar KSÍ.“

Guðni Bergs­son segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í dag að hann hafi borið ábyrgð á við­brögðum sam­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­mála sem komu upp í for­mann­s­tíð hans. Sömu sögu sé að segja um miðlun upp­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert bet­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár