Geti ákveðið að leikmenn sem hlotið hafa dóm – eða hafa stöðu sakbornings – komi ekki til greina í landsliðið

Úttekt­ar­nefnd ÍSÍ telur KSÍ hafa veru­legt svig­rúm um hvaða sið­ferði­legu reglur eða við­mið sam­bandið setur um val á leik­mönnum sem spila fyrir hönd KSÍ.

Nefnd Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bandi Íslands (ÍSÍ) telur Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) hafa veru­legt svig­rúm um hvaða sið­ferði­legu reglur eða við­mið sam­bandið setur um val á leik­mönnum sem spila fyrir hönd KSÍ. KSÍ geti þannig ákveðið að leik­menn sem hafa hlotið dóm fyrir kyn­ferð­is­legt eða kyn­bundið ofbeldi komi ekki til greina í lands­lið Íslands. Þá geti KSÍ einnig mælt fyrir um að hið sama gildi um leik­menn á meðan þeir hafa stöðu sak­born­ings í sams konar málum í refsi­vörslu­kerf­inu.

Þetta kemur fram í skýrslu nefnd­ar­innar en nið­ur­stöður hennar voru kynntar fyrr í dag.

Þá gæti KSÍ að öllum lík­indum einnig sett sér það við­mið að ef fram kemur frá­sögn þol­anda um brot leik­manns sem KSÍ telur trú­verð­uga komi hann heldur ekki til greina í lands­lið.

KSÍ hefur ekki frjálsar hendur varðandi persónuupplýsingar

„Að sama skapi er mik­il­vægt að hafa í huga að KSÍ hefur ekki frjálsar hendur um hvernig það aflar og vinnur með upp­lýs­ingar þar sem fram koma full­yrð­ingar eða grun­semdir um að ein­stak­lingar, þar á meðal leik­menn, hafi gerst sekir um refsi­verða hátt­semi.

[links]Þegar KSÍ fær inn á sitt borð til­kynn­ingar og ábend­ingar um refsi­verða hátt­semi á borð við kyn­ferð­is­brot verður sam­bandið að fylgja þeim lögum og reglum sem í gildi eru við með­ferð slíkra upp­lýs­inga. Ef með­ferð upp­lýs­inga fellur undir gild­is­svið per­sónu­vernd­ar­laga er KSÍ skylt að gæta að meg­in­reglum lag­anna um að vinnslan sé sann­gjörn og gagnsæ, og að upp­lýs­ing­arnar séu áreið­an­legar. Þá er veru­legur vafi um að KSÍ geti gert þeim sem koma til greina í lands­lið Íslands skylt að leggja fram upp­lýs­ingar um kærur úr mála­skrá lög­reglu eða sam­þykkja að KSÍ geti aflað slíkra upp­lýs­inga,“ segir í skýrsl­unni.

Sambandið getur ekki unnið með nafnlausar upplýsingar

Það leiði af þessum reglum per­sónu­vernd­ar­laga að KSÍ geti að jafn­aði ekki unnið með upp­lýs­ingar sem sendar eru inn nafn­laust eða í öðrum þeim bún­ingi þar sem ekki sé unnt að kanna frekar hvert sann­leiks­gildi upp­lýs­ing­anna er. Þá kunni að vera tak­mark­anir á því að hvaða leyti KSÍ gæti átt frum­kvæði að opin­berri umfjöllun um að leik­maður hafi ekki verið val­inn í lands­liðs­hóp vegna þess að hann hafi ann­að­hvort verið kærður fyrir kyn­bundið eða kyn­ferð­is­legt ofbeldi eða að KSÍ hafi borist frá­sögn um slíkt brot.

Úttekt­ar­nefndin telur að draga megi þann lær­dóm af við­brögðum KSÍ við þeim frá­sögnum sem bár­ust um kyn­ferð­is­legt og kyn­bundið ofbeldi leik­manna að það hafi veru­lega þýð­ingu við með­ferð þess­ara mála að ákveðin grund­vall­ar­at­riði liggi fyrir í aðgengi­legum reglum eða leið­bein­ingum. Þannig telur nefndin mik­il­vægt að KSÍ geri upp við sig hvaða afleið­ingar slíkar upp­lýs­ingar geti haft fyrir stöðu leik­manns og hvaða við­mið séu sett í því sam­bandi.

Yrðu að geta sannreynt upplýsingarnar

Að öðrum kosti sé óvíst í hvaða til­gangi KSÍ vinni með slíkar upp­lýs­ingar sem sé til þess fallið að gera við­brögð sam­bands­ins ómark­viss og ófyr­ir­sjá­an­leg, þar sem bæði til­kynn­anda og þeim sem til­kynn­ingin bein­ist að sé það óljóst hvers vænta megi í fram­hald­inu. Slík með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga án skýrs til­gangs kunni enn fremur að orka tví­mælis út frá per­sónu­vernd­ar­lögum.

Nefndin telur einnig ljóst að ef KSÍ setur sér reglur eða við­mið um með­ferð til­kynn­inga um kyn­bundið og kyn­ferð­is­legt ofbeldi verði að liggja fyrir hvaða kröfur verði gerðar til efnis upp­lýs­inga til þess að KSÍ geti fjallað um málið í sam­ræmi við áreið­an­leik­a­reglu per­sónu­vernd­ar­laga. Í því fælist þá að KSÍ myndi ekki taka til með­ferðar upp­lýs­ingar sem sendar væru inn nafn­laust eða í öðrum þeim bún­ingi að KSÍ hefði ekki tök á að stað­reyna þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár