Guðni Bergsson: Ég hefði getað gert betur

Úttekt­ar­nefnd­ gerði athuga­semdir við að upp­lýs­ingar sem fyrr­ver­andi for­maður KSÍ veitti um vit­neskju sam­bands­ins af frá­sögn um ofbeld­is­mál hefðu verið vill­andi. Hann seg­ist hafa „ein­blínt um of á formið og trúnað við máls­að­ila“.

Guðni Bergsson.
Guðni Bergsson. Mynd: Skjáskot/RÚV

Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) segir í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér nú síð­degis að hann hafi borið ábyrgð á við­brögðum sam­bands­ins, vegna þeirra ofbeld­is­mála sem komu upp í for­mann­s­tíð hans. Sömu sögu sé að segja um miðlun upp­lýs­inga til fjöl­miðla og almenn­ings. „Þar hefði ég getað gert betur.“

[links]Guðni seg­ist hafa ein­blínt um of á formið og trúnað við máls­að­ila. „Ég reyndi þó eftir bestu getu í þeim tveimur málum sem komu til minnar vit­undar að finna þeim réttan far­veg. Annað var leyst með sátt á milli máls­að­il­anna sjálfra en hitt málið er nú loks komið í far­veg hjá lög­reglu. Sem sam­fé­lag erum við að stíga erfið en mik­il­væg skref í sam­tal­inu um kyn­ferð­is­brot og hvernig við tök­umst á við þau. Verk­efnið framundan hjá knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni er að taka umræðu og fræðslu um það hvernig við fyr­ir­byggjum kyn­ferð­is­of­beldi, og að brugð­ist verði við þeim málum sem upp kunna að koma af festu.“

Í nið­ur­stöðum nefndar sem fengin var til gera úttekt á við­brögðum og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is­mála sem tengst hafa leik­mönnum í lands­liðum Íslands, og kynnt var í dag, kom fram að vit­neskja hafi verið innan KSÍ um alls fjórar frá­sagnir um að leik­menn eða aðrir sem starfa fyrir sam­bandið hefðu beitt kyn­bundnu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi árin 2010 til 2021. Í nefnd­inni sátu Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari, Rán Ingv­ars­dóttir og Hafrún Krist­jáns­dóttir.

Nefndin taldi ljóst að KSÍ hafi brugð­ist strax við þremur þess­ara frá­sagna. Ann­að­hvort með því að leik­mað­ur­inn sem átti í hlut hafi verið sendur heim úr lands­liðs­verk­efnum eða þannig að við­kom­andi hafi ekki starfað aftur fyrir hönd KSÍ.

[adspot]Í skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar eru gerðar athuga­semdir við að upp­lýs­ingar sem Guðni veitti fjöl­miðlum og almenn­ingi í ágúst síð­ast­liðnum um vit­neskju KSÍ af frá­sögn um ofbeld­is­mál hafi verið vill­andi enda hafi for­mað­ur­inn á sama tíma vit­neskju um frá­sögn starfs­manns KSÍ um alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi gagn­vart tengda­dóttur starfs­manns.

Yfirlýsing Guðna Bergssonar í heild sinni:

„Skýrsla úttekt­ar­nefndar ÍSÍ er nú komin út. Þau mál sem þar eru tekin fyrir hafa reynt á knatt­spyrnu­hreyf­ing­una og alla við­kom­andi. Við viljum öll berj­ast gegn ofbeldi í hvaða mynd sem það birt­ist, og ekki síst kyn­ferðis- og kyn­bundnu ofbeldi.

Þessi mál eru alltaf erfið og ég sem for­maður KSÍ bar ábyrgð á við­brögðum sam­bands­ins í þessum málum og miðlun upp­lýs­inga um þau til fjöl­miðla og almenn­ings. Þar hefði ég getað gert betur. Ég ein­blíndi um of á formið og trúnað við máls­að­ila. Ég reyndi þó eftir bestu getu í þeim tveimur málum sem komu til minnar vit­undar að finna þeim réttan far­veg. Annað var leyst með sátt á milli máls­að­il­anna sjálfra en hitt málið er nú loks komið í far­veg hjá lög­reglu.

Sem sam­fé­lag erum við að stíga erfið en mik­il­væg skref í sam­tal­inu um kyn­ferð­is­brot og hvernig við tök­umst á við þau. Verk­efnið framundan hjá knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni er að taka umræðu og fræðslu um það hvernig við fyr­ir­byggjum kyn­ferð­is­of­beldi, og að brugð­ist verði við þeim málum sem upp kunna að koma af festu.

Að lokum vil ég segja þetta: Við getum verið stolt af því starfi sem unnið er í knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni. Á sama tíma og við erum ávallt gagn­rýnin á okkar starf innan vallar sem utan þá er líka mik­il­vægt að til­einka sér jákvæðni og bjart­sýni sem drífur okkur áfram til betri árang­urs og í þessu sam­hengi til betra sam­fé­lags.

Ég mun ekki tjá mig frekar um skýrslu úttekt­ar­nefnd­ar­innar að svo stöddu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár