Valdamenn í viðskiptalífinu falla hver af öðrum vegna ásakana um kynferðisbrot

Ung kona hefur sakað Ara Edwald, for­stjóra Ísey Skyr, Hreggvið Jónsson, stjórn­ar­for­mann og aðal­eig­anda Veritas, og Þórð Má Jóhann­es­son, stjórn­ar­for­mann Festi, um kyn­ferð­is­of­beldi. Í dag hafa allir menn­irnir stigið til hliðar úr ábyrgð­ar­stöðum.

Seint í októ­ber birti kona, Vítalía Lazareva, frá­sögn á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram. Frá­sögnin var af kyn­ferð­is­of­beldi sem hún sagði sig hafa orðið fyrir af hendi þriggja manna. Í frá­sögn­inni lýsti konan því ofbeldi sem hún sagði menn­ina hafa beitt sig í heitum potti og í sum­ar­bú­stað, aðdrag­anda þess að hún hefði endað með þeim þennan dag og í lok hennar nefndi hún þá alla þrjá með nafni. Auk þess nefndi hún á nafn giftan mann, einka­þjálf­ar­ann Arnar Grant, sem hún átti í ást­ar­sam­bandi við og fékk hana til að koma á þann stað sem meint brot fóru fram.

Færslan var síðar tekin niður af Instagram en hluti hennar er enn aðgengi­legur á twitter-síðu Vítalíu. Þar voru nöfn mann­anna hins vegar ekki birt. Þar segir meðal ann­ars að henni hafi verið ráðið frá „því að segja frá og leita lengra vegna þess að aðilar þessir eru valda­miklir í sam­fé­lag­inu og allir fjöl­skyldu­menn“.

Mikið hvíslað en lítið sagt opinberlega

Skjáskot af frá­sögn kon­unnar fóru sem eldur í sinu um íslenskt sam­fé­lag. Í stórum hópum var fátt annað rætt í margar vikur á eftir en hvar þetta mál stæði. Ekkert var hins vegar fjallað um málið í fjöl­miðlum, þrátt haft hafi verið sam­band við menn­ina fjóra, meðal ann­ars frá blaða­manni Kjarnans. Við­brögðin voru engin. Þeir svör­uðu ekki.

Heim­ildir Kjarnans herma að það hafi verið gert að ráði almanna­teng­ils sem hafi sagt mönn­unum að segja að þetta væri kjafta­saga. Best væri að þegja málið af sér.

Þann 17. nóv­em­ber birt­ist hins vegar frétt í Stund­inni þar sem Eggert Krist­ó­fers­son, for­stjóri Festi, stað­festi að félag­inu, sem er almenn­ings­hluta­fé­lag að stórum hluta í eigu líf­eyr­is­sjóða, hefði borist óform­legt erindi vegna máls sem stjórn­ar­for­maður Festi, Þórður Már Jóhann­es­son, var sagður tengj­ast. Festi rekur N1, Krónuna, Elko og Bakkann vöru­hótel og er einn stærsti smá­sali á Íslandi.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til vara­for­manns stjórnar Festi, Guðjóns Reyn­is­sonar, fyrst þann 25. nóv­em­ber og spurði hvort vit­neskja væri innan stjórnar varð­andi þessar ásak­anir og hvort hún hygð­ist bregð­ast við þeim. Hann svar­aði ekki þeirri fyr­ir­spurn. Fyr­ir­spurnin var ítrekuð og 17. des­em­ber barst efn­is­legt svar. Þar stað­festi Guðjón að um mál kon­unnar væri að ræða.

Í svari hans sagði: „Það er rétt að umfjöll­unin sem spurt er um hefur verið til skoð­unar, en við getum ekki tjáð okkur að svo stöddu.“

Konan birti svo annan skammt af skiltum á Instagram í byrjun des­em­ber. Þar sagð­ist hún standa við það sem hún sagði og að við­brögð fyr­ir­tækj­anna sem tengd­ust mönn­unum hefði verið „hreint bull og eru einu rökin sem eru færð fyrir máli þeirra að fólk spyr sig hvort um kjafta­sögu sé að ræða þar sem ég hef ekki gefið frá mér við­tal. Þetta er ósætt­an­legt og und­ir­strikar spill­ing­una sem við sem þjóð­fé­lag lifum í.“

Síðan sagði hún: „Mér finnst ég skyldug til að þess að segja frá því að málið fer lengra og verður kært. Þótt þetta verði það síð­asta sem ég geri þá sé ég til þess að skila mínu af mér.“

Til skoðunar og því treyst að stjórn skoði ítarlega

Þegar engin svör bár­ust frá vara­for­manni stjórnar Festi við fyrstu fyr­ir­spurn Kjarnans leit­aði hann til stærstu eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins en allt eru það íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) á 11,24 pró­sent í Festi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (LIVE) á 10,32 pró­sent, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 9,61 pró­sent og Birta líf­eyr­is­sjóður á 5,75 pró­sent.

Kjarninn spurði meðal ann­ars hvort stjórnir líf­eyr­is­sjóð­anna hefðu vit­neskju um ásak­anir á hendur Þórði Má Jóhann­essyni um meint kyn­ferð­is­of­beldi og vís­aði í frétt Stund­ar­innar.

Í svari LSR frá 14. des­em­ber kom fram að stjórnin hefði ekki frek­ari vit­neskju um þetta mál umfram þá frétt Stund­ar­innar sem vísað var til í fyr­ir­spurn­inni.

Einnig spurði Kjarninn hvort stjórnin hefði brugð­ist með ein­hverjum hætti við þessum ásök­unum. Ef ekki, ætl­aði stjórnin að bregð­ast við með ein­hverjum hætti?

„Stjórn LSR treystir því að stjórn Festi muni skoða þetta mál ítar­lega og bregð­ast við því með við­eig­andi hætti. Stjórn LSR mun fylgj­ast með fram­vindu þessa máls og bregð­ast við ef þurfa þykir,“ sagði í svari LSR.

Stjórn Gildis líf­eyr­is­sjóðs svar­aði þann 14. des­em­ber og sagð­ist ekki hafa haft vit­neskju um málið og það hefði því ekki verði tekið til umfjöll­unar innan stjórnar sjóðs­ins. Ekki kom fram í svar­inu hvort stjórnin hygð­ist taka málið fyrir.

Svar stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna barst þann 17. des­em­ber en í því sagði að henni væri kunn­ugt um þá umfjöllun sem vísað er til í fyr­ir­spurn­inni.

„Málefni Festi hf. eru á for­ræði stjórnar félags­ins sem fer með æðsta vald í mál­efnum þess innan ramma sam­þykkta. Í sam­ræmi við hlut­hafa­stefnu líf­eyr­is­sjóðs­ins á hann á hverjum tíma ýmis sam­skipti við for­svars­menn félaga sem sjóð­ur­inn á hlut í. Viðbrögð líf­eyr­is­sjóðs­ins sem hlut­hafa í Festi hf. eru til skoð­unar og hafa sam­skipti átt sér stað við stjórn félags­ins í sam­ræmi við hlut­hafa­stefnu sjóðs­ins.“

Stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs svar­aði þann 22. des­em­ber en í svar­inu sagði að stjórnin hefði ekki haft vit­neskju um meint kyn­ferð­is­of­beldi Þórðar þegar grein Stund­ar­innar frá 17. nóv­em­ber og spurn­ingar Kjarnans frá 10. des­em­ber voru til umræðu á stjórn­ar­fundi Birtu þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn. „Stjórn Birtu sendi stjórn Festar bréf þar sem hvatt er til þess að hún bregð­ist við mál­inu á fag­legan hátt og upp­lýsi hlut­hafa þegar það á við með sann­fær­andi hætti, því til stað­fest­ingar,“ segir í svari Birtu.

Svöruðu ekki fyrirspurnum

Kjarninn sendi einnig fyr­ir­spurn á Þórð Má og spurði hvort hann vissi af til­vist þess­ara ásak­ana og hvort hann hefði brugð­ist við þeim með ein­hverjum hætti. Einnig hvernig hann svar­aði þessum ásök­unum og hvort þær hefðu ein­hver áhrif á störf hans fyrir Festi. Engin svör hafa borist.

Heim­ildir Kjarnans herma að ásak­anir á hendur Þórði Má hafi ítrekað verið ræddar í stjórn Festi en hann hefur ekki viljað stíga til hliðar sem stjórn­ar­for­maður þrátt fyrir þrýst­ing þar um. Auk þess hafa hlut­hafar í félag­inu verið í sam­bandi við stjórn­ar­menn og þrýst á aðgerðir, en án árang­urs.

Stjórn­ar­fundur í Festi átti upp­haf­lega að hefj­ast klukkan fjögur síð­degis í dag en var flýtt um klukku­tíma vegna atburða dags­ins. Á honum voru mál Þórðar Más rædd, en hann sjálfur tók þátt í fund­inum í gegnum fjar­fund­ar­búnað þar sem hann er staddur í Banda­ríkj­unum.

Nið­ur­staðan lá fyrir að stjórn­ar­fundi loknum rétt rúm­lega fjögur og greindi stjórnin frá því að Þórður Már hefði óskað eftir því að láta af störfum sem stjórn­ar­maður í félag­inu og um leið sem stjórn­ar­for­maður. „Stjórn féllst á erindið. Í kjöl­farið skipti stjórn með sér verkum upp á nýtt. Guðjón Reyn­is­son var kjör­inn nýr for­maður stjórnar og Margrét Guð­munds­dóttir vara­for­maður,“ segir í til­kynn­ingu frá Festi.

Kjarninn sendi einnig sam­hljóða fyr­ir­spurnir um málið og send var á Þórð til Hregg­viðs Jóns­sonar og Ara Edwald þann 25. nóv­em­ber 2021. Auk þess voru sendar fyr­ir­spurnir á æðstu stjórn­endur í fyr­ir­tækjum innan sam­stæðu Veritas, sem Hregg­viður á stærstan hlut í og situr sem stjórn­ar­for­maður, og á stjórn­ar­for­mann MS og Ísey útflutn­ings, en Ari Edwald er for­stjóri Ísey Útflutn­ings. Allar fyr­ir­spurnir voru ítrek­aðar en eina svarið sem barst úr þess­ari átt, þann 17. des­em­ber 2021 eftir ítrek­anir, var frá Elínu M. Stef­áns­dóttur, stjórn­ar­for­manni MS og Ísey útflutn­ings. Í svar­inu stóð: „Stjórn Ísey útflutn­ings ehf. hefur vit­neskju um það efni sem birt­ist á sam­fé­lags­miðli og þú vísar til. Ekkert mál hefur verið til­kynnt til stjórnar Ísey útflutn­ings ehf. og við höfum ekki vit­neskju um að starfs­maður okkar hafi verið kærður. Það er því ekki til­efni til við­bragða af hálfu stjórnar að svo stöddu.“

Hún sagði einnig að stjórnin hefði við­bragðs­á­ætlun til að bregð­ast við vegna svona mála ef ástæða þætti til að bregð­ast við.

Viðtal hleypti málinu upp

Í lið­inni viku, nánar til­tekið á þriðju­dag, breytt­ist síðan málið. Konan, Vítalía Lazareva, steig fram í við­tali við Eddu Falak í hlað­varp­inu Eigin konur og rakti það sem komið hefði fyrir hana. Hún nefndi menn­ina ekki á nafn og setti auk þess fram ásökun á hendur öðrum manni vegna atviks sem átti sér stað síðar. Hægt er að lesa það helsta sem kom fram í við­tal­inu hér að neðan.

Þrýst­ingur á aðgerðir vegna stöðu mann­anna jókst og fyrr í dag greindi Stundin frá því að Ari Edwald​​ hefði sjálfur óskað eftir því að fara í leyfi í gær en nafn hans var meðal þeirra sem Vítalía birti á Instagram-­síðu sinni seint á síð­asta ári þar sem hún tjáði sig um kyn­ferð­is­of­beld­ið. Ari Edwald sat einnig í stjórn Icelandic Provisions, banda­rísks fyr­ir­tæk­is­ins sem fram­leiðir skyr eftir aðferðum sem MS hefur þróað, og er að hluta í eigu MS. Hann sagði sig úr stjórn Icelandic Provisions 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, nokkrum dögum eftir að frá­sögn Vitaliu birt­ist fyrst á sam­fé­lags­miðlum. Sæti hans í stjórn­inni tók Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, en Kaup­fé­lagið á fimmt­ungs­hlut í MS og félagi utan um erlenda starf­semi þess.

Nú gerð­ust hlut­irnir hratt. Einum og hálfum tíma eftir að frétt Stund­ar­innar birt­ist barst fjöl­miðlum yfir­lýs­ing frá lög­manni, sem sendi hana fyrir hönd Hregg­viðar Jóns­sonar. Þar sagði: „Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­miðl­um. Það er afar þung­bært að heyra um hennar reynslu.“

Hregg­viður sagð­ist í yfir­lýs­ing­unni líta þetta mál alvar­legum augum og þrátt fyrir að hann hefði „ekki gerst brot­legur við lög“ þá myndi hann stíga til hliðar úr stjórn Veritas og stjórnum tengdra fyr­ir­tækja „til að raska ekki þeirra mik­il­vægu starf­sem­i“.

Hálftíma síðar birti Vísir frétt um að Arnar Grant væri kom­inn í tíma­bundið leyfi frá störfum sínum sem einka­þjálf­ari hjá World Class.

Frétta­skýr­ing­unni var breytt eftir að stjórn­ar­fundi Festi lauk og til­kynn­ing um afsögn Þórðar Más var send út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár