Vantraust á dómsmálaráðherra: Logi býst við stuðningi stjórnarliða

Stjórnar­andstaðan undirbýr vantrausts­tillögu gegn Sigríði Á. Andersen dómsmála­ráðherra, sem braut lög við skipan dómara í Landsrétt. Formaður Samfylk­ing­ar­innar býst við stuðningi frá einhverjum stjórnar­liða.

Sigríður Andersen
Sigríður Andersen Van­traust á dóms­mála­ráð­herra verður lík­lega til umræðu á Alþingi. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Fulltrúar stjórnar­andstöðunnar á Alþingi hyggjast á næstunni leggja fram vantrausts­tillögu á Sigríði Á. Andersen dómsmála­ráðherra. Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niður­stöðu í desember að hún hafi brotið lög við skipun dómara við Landsrétt.

„Það er hlutverk forsætis­ráðherra að vera með innanborðs fólk sem hún treystir og ég átta mig ekki á því hvernig hún getur treyst ráðherra sem í tvígang hefur verið dæmd,“ segir Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og vísar þar í að embættis­færsla ráðherra var metin ólögleg á tveimur dóms­stigum.

Fulltrúar stjórnar­andstöðunnar hafa fundað um málið og hyggjast hittast aftur til að ræða hvernig standa skuli að tillög­unni. Vonast þeir eftir breiðri samstöðu um vantrausts­tillöguna, að sögn Loga.

„Varðandi stuðninginn, þá býst ég við því að það hljóti að vera stuðningur líka frá einhverjum stjórnar­liða,“ segir Logi. „Málið er bara þannig að það er bara næstum því óhugsandi að það muni allir bíta á jaxlinn og láta önnur sjónarmið en réttlætið ráða atkvæði sínu.“

Flokkarnir sem standa að ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur innihalda 34 þingmenn af 63, en tveir þingmanna Vinstri grænna, Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, studdu ekki stjórnar­sáttmálann. Því er ljóst að hvert atkvæði stjórnar­liða mun skipta máli í að verja dómsmála­ráðherra vantrausti.

Óvissa verði dómurum gert að víkja

Umboðs­maður Alþingis lýsti því yfir í bréfi til stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar fyrir helgi að hann teldi ekki tilefni til að hefja frumkvæðis­rannsókn á ákvörðunum dómsmála­ráðherra vegna skipun dómara við Landsrétt. Nefndin hafði gert hlé á umfjöllun um málið 6. febrúar til þess að gefa umboðs­manni rými til að taka afstöðu til þess hvort hefja ætti slíka rannsókn.

Búist er við niður­stöðu Hæstaréttar í vikunni varðandi vanhæfnis­kröfu Vilhjálms H. Vilhjálms­sonar lögmanns gegn Arnfríði Einars­dóttur, eins þeirra dómara sem Sigríður skipaði við Landsrétt. Arnfríður er eiginkona Brynjars Níels­sonar, þingmanns Sjálfstæðis­flokks, sem vék úr oddvita­sæti í Reykja­víkur­kjördæmi suður fyrir Sigríði.

Verði Arnfríði gert að víkja mun töluverð óvissa skapast um þá fjóra dómara sem Sigríður skipaði en ekki voru taldir með þeim hæfustu að mati dómnefndar. Telji Hæstiréttur hana ekki þurfa að víkja er möguleiki á að málinu verði skotið til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu.

„Ætlum við að horfa upp á það að allir dómar sem einstakir dómarar kveða upp á þeim tíma verði dæmdir ólöglegir?“

„Það er ljóst að hún stóð ekki rétt að þessu,“ segir Logi. „Í ljósi fordæma frá Evrópu, bæði frá EFTA og Mann­réttinda­dómstólnum, í málum er varða skipan dómara og eru á engan hátt jafn alvarleg og þetta mál er, þá mun þetta mál geta skaðað okkur stórkost­lega. Ætlum við að horfa upp á það að allir dómar sem einstakir dómarar kveða upp á þeim tíma verði dæmdir ólöglegir? Mun það kosta íslenska ríkið skaða­bætur? Lágmarkið er auðvitað að dómsmála­ráðherra víki þá.“

Sigríður nýtur trausts Katrínar

Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis, vakti máls á þessu og bréfi umboðs­manns í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í dag. Hún spurði forsætis­ráðherra hvort hún hefði áhyggjur af dóms­kerfinu og bæri traust til þess. „Nýtur dómsmála­ráðherra trausts forsætis­ráðherra sem yfirmaður dómsmála á Íslandi?“ spurði Helga Vala. Hún taldi að ríkið gæti orðið skaða­bótaskylt, fari málið alla leið fyrir Mann­réttinda­dómstól Evrópu.

„Ég ber almennt traust til dóms­kerfisins í landinu, ég geri það,“ svaraði Katrín. „Hvað varðar traust mitt á dómsmála­ráðherra hæstvirtum þá ber ég fullt traust til allra ráðherra í þessari ríkis­stjórn.“

Hún taldi að öðru leyti ekki ástæða til að framkvæmda­valið tjái sig um dómsmál áður en niður­stöður liggja fyrir. Katrín hefur áður gefið út að hún líti ekki á Lands­réttarmálið sem afsagnarsök fyrir Sigríði Andersen. Í sama streng hafa tekið Bjarkey Olsen, formaður þing­flokks Vinstri grænna og Kolbeinn Óttarsson Proppé, fulltrúi flokksins í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Landsréttarmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár