Gerir grín að fánaræðu Miðflokksins: „Ætlum að hlæja að hatrinu“

Sindri Sparkle stígur á svið um helgina og ætlar að gera grín að fána­upphlaupi Miðflokksins en vara­formaðurinn kveinkaði sér undan sýnileika hinsegin­fánans í grunn­skólum Reykja­víkurborgar.

Sindri Sparkle
Sindri Sparkle Segir að ef það er hægt að fá fólk til þess að hlæja, þá sé hægt að fá fólk til þess að læra.

Uppi­standarinn og fána­áhugakvárið Sindri Sparkle Freyja verður með uppistand á laugar­daginn næst­komandi, 25. apríl, um þar sem hún ætlar að fara yfir sögu hinsegin­fánans. Uppi­standið fer um víðan völl og afrakstur loka­verkefnis Sindra í grafískri hönnun tengt fánum auk þess sem hán hyggst gefa út bók um efnið samhliða sem hefur verið í þróun í þrjú ár. 

„Bókin fjallar um sögu hinsegin fólks á meiri svona akademískan hátt, en það er vel hægt að gera uppistand upp úr þessu,“ segir Sindri. Hán segist hafa orðið að stökkva á augna­blikið en stefndi á að sýna uppi­standið í júní samhliða útgáfu bókarinnar, en Snorri Másson kemur óneitanlegan við sögu, þar sem hann hefur nú fléttað sig inn í sögu fánans.

„Svo fer þessi umræða í gang, einhver náungi sem var einhvern tímann lélegur frétta­maður og er núna slappur stjórn­málamaður er eitthvað að reyna að triggera libbana,“ segir Sindri hlæjandi. Þarna …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár