WOW og Icelandair banna Samsung Note 7 um borð

Íslensku flug­félögin WOW air og Icelandair bættust í hóp fjölda flug­félaga sem banna farþegum sínum að koma með Samsung Galaxy Note 7 síma um borð véla sinna, hvort sem farþeginn er með símann á sér, í hand­farangri eða tösku sem sett er í farangurs­rými.

WOW tilkynnti þetta á Facebook síðu sinni í gærkvöldi og Icelandair sagði frá banninu á heimasíðu sinni. Í tilkynningunni kemur fram, að þeir sem reyni að ferðast með slíka síma til Banda­ríkjanna og Kanada verði vísað frá borði.

Bandarísk samgöngu­yfirvöld bönnuðu símana um borð í bandarískum flugvélum um liðna helgi og fleiri flugfélög bættust í hópinn í gær. Þar á meðal Air Berlin, Virgin og Singapore Airlines. Bannið tekur strax gildi.

Samsung kallaði inn um tvær og hálfa milljón síma í síðasta mánuði eftir kvartanir viðskipta­vina um að rafhlaða þeirra ætti það til að springa. Nýir símar voru þegar settir í fram­leiðslu en henni var síðan hætt fljótlega, þegar kom í ljósi að gallinn var alvarlegri en talið var í fyrstu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár