Andersson biðst lausnar og segir Kristersson að hennar dyr standi ávallt opnar

Talningu atkvæða í Svíþjóð er lokið og stjórnar­myndunar­viðræður hægra megin við miðjuna hafnar. Fráfar­andi forsætis­ráðherra segir að Ulf Kristersson geti leitað til Sósíal­demókrata um samstarf ef viðræður við Svíþjóðar­demókrata sigli í strand.

Hér eru þau saman, Ulf Kristersson formaður Hægriflokksins (Moderatarna) og Magdalena Andersson formaður Sósíaldemókrata. Ulf mun á næstunni nær örugglega taka við embætti forsætisráðherra af Magdalenu.
Hér eru þau saman, Ulf Kristers­son for­maður Hægri­flokks­ins (Moder­atarna) og Magda­lena And­ers­son for­maður Sós­í­alde­mókrata. Ulf mun á næst­unni nær örugg­lega taka við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra af Magda­lenu. Mynd: EPA

Magdalena Andersson formaður Sósíal­demókrata­flokksins í Svíþjóð baðst lausnar frá embætti forsætis­ráðherra í morgun, eftir að hafa játað ósigur í þing­kosningunum sem fram fóru í sunnudag. Henni hefur verið falið að sitja áfram í embættinu þar til ný ríkis­stjórn hefur verið mynduð.

Úrslit kosninganna urðu endanlega ljós í gær og ljóst er að borgara­legu flokkarnir þrír, auk Svíþjóðar­demókrata, fara með þriggja sæta meirihluta í sænska þinginu – eru með 176 þingmenn gegn 173 þing­mönnum frá flokkum frá miðju og til vinstri.

Þreifingar um myndun ríkis­stjórnar eru hafnar á milli flokkanna fjögurra á hægri vængnum. Ljóst virðist að Ulf Kristersson, leiðtogi Hægri­flokksins (Moderatarna), verði næsti forsætis­ráðherra landsins en ekki hefur verið ákveðið hvernig ríkis­stjórn undir hans forsæti verður samsett.

Eftir að hún baðst lausnar frá embætti ræddi Andersson við fjölmiðla og færði Ulf Kristersson þau skilaboð að Sósíal­demókratar væru opnir fyrir því að koma að stjórnar­samstarfi sem teygði sig yfir miðjuna.

Það er ljóslega ekki fyrsti kostur Kristersson og Hægri­flokksins en Andersson sagði að ef Hægri­flokkurinn skipti um skoðun og vildi starfa með henni í stað Svíþjóðar­demókrata þá stæði það til boða.

Spurð um hvernig hún sæi slíkt samstarf fyrir sér sagði Andersson fátt annað en að hún væri reiðubúin að ræða við bæði Kristersson og aðra flokka um mögulega samvinnu. „En Ulf Kristersson hefur augljós­lega valið Svíþjóðar­demókratana sem sína helstu samstarfs­menn. Og það verð ég að sætta mig við. En ef það samstarf gengur ekki, þá standa mínar dyr opnar,“ sagði Andersson.

Tveggja flokka minnihlutastjórn talin líkleg

Þrátt fyrir að flokkarnir fjórir á hægri vængnum í Svíþjóð hafi þing­meirihluta er ljóst að það gæti orðið erfitt að ná saman um ríkis­stjórnar­samstarf. Svíþjóðar­demókratar hafa látið sig dreyma um beina aðkomu að stjórn og þar með ráðherra­stóla en ljóst er að slíka stjórn myndi Frjáls­lyndi flokkurinn hið minnsta ekki samþykkja.

Stjórnmála­skýrendur í Svíþjóð reikna því margir með því að Ulf Kristersson horfi til þess að mynda tveggja flokka minnihluta­stjórn Hægri­flokksins og Kristilegra demókrata, en síðarnefndi flokkurinn er leiddur af Ebbu Busch. Þessir tveir flokkar fengu samanlagt innan við 25 prósent atkvæða í kosningunum á sunnudag og töpuðu báðir fylgi frá kosningunum árið 2018.

Annie Lööf hættir sem formaður

Kosningarnar á sunnu­daginn og úrslit þeirra hafa þegar haft nokkrar afleiðingar. Annie Lööf, sem setið hefur sem formaður Miðflokksins undan­farinn rúman áratug, tilkynnti í dag að hún væri hætt sem formaður flokksins.

Lööf, sem var einungis 29 ára gömul er hún varð flokks­formaður, tekur þar með ábyrgð á dræmum árangri flokksins í kosningunum, en Miðflokkurinn tapaði tæpum tveimur prósentu­stigum frá kosningunum árið 2018 eftir að hafa undir stjórn Lööf kosið að stilla sér upp með flokka­bandalaginu vinstra megin miðjunnar og útiloka þátttöku í stjórn til hægri sem þyrfti á stuðningi Svíþjóðar­demókrata að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár