Rússar og Norður-Kóreumenn fagna nýrri brú

Samband ríkjanna styrkist enn frekar við opnun nýrrar brúar á milli landanna.

Rússland og Norður-Kórea halda í dag athöfn til að fagna fyrsta áfanga vegabrúar á milli landanna, en til stendur að opna fyrir umferð yfir brúnna í sumar.

Brúin liggur yfir Tumen-fljótið sem markar landamæri ríkjanna og getur borið allt að 300 ökutæki og 2.850 manns á dag, samkvæmt samgöngu­ráðuneyti Rússlands.

Ríkin sæta bæði þungum alþjóð­legum refsiaðgerðum, en tengsl þeirra hafa styrkst verulega vegna stríðs Rússlands í Úkraínu. Á sviði efnahags­mála, stjórn­mála, menningar og hermála hefur samstarf Moskvu og Pyongyang aukist.

Blása lífi í hagkerfið

Í síðustu viku varaði Suður-Kórea við því að stuðningur frá Kína og Rússlandi hjálpi til við að blása lífi í norður­kóreska hagkerfið, sem hefur átt erfitt uppdráttar um árabil vegna víðtækra refsiaðgerða, nær algerrar alþjóðlegrar einangrunar og mikillar fjár­festingar í hernaði.

Norður-Kórea birtir ekki opinber gögn um stærð hagkerfis síns.

Að mati yfirvalda í Seoul nam verg lands­framleiðsla Norður-Kóreu um 30 milljörðum bandaríkja­dala árið 2024, sem er aðeins brot af hagkerfi Suður-Kóreu, einu þróaðasta hagkerfi heims.

Norður-Kórea hefur lengi glímt við skort. Hungurs­neyð um miðjan tíunda áratuginn varð hundruðum þúsunda að bana og skýrslur benda til þess að Covid-19 heims­faraldurinn hafi einnig ýtt mörgum út í mikla hungurs­neyð.

Tímamót í samskiptum ríkjanna

Rússland og Norður-Kórea undir­rituðu varnar­samning árið 2024 sem kveður á um hernaðar­stuðning ef annað hvort landið verður fyrir árás. Sama ár sendi Norður-Kórea þúsundir hermanna til Rússlands til að styðja stríðið í Úkraínu. Þeir voru sendir til vestur­hluta Kursk-héraðsins til að hjálpa við að verjast margra mánaða gagnsókn úkraínskra hersveita.

Nýlega hafa nokkrir hátt­settir rússneskir embættis­menn heimsótt Norður-Kóreu, þar á meðal innan­ríkis­ráðherrann, sem er nú staddur þar í landi.

Utan­ríkis­ráðuneyti Rússlands sagði að opnun brúarinnar „verði sannarlega tímamót í samskiptum Rússlands og Kóreu. Þýðing hennar nær langt út fyrir það að vera verk­fræðilegt afrek.“ Hún myndi stuðla að „þróun viðskipta, efnahagslegra tengsla og mannúðar­samskipta“ milli Rússlands og Norður-Kóreu.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár