Vísir til að meta réttindi og stöðu hinsegin fólks

Í velferðar­ráðuneytinu er unnið að því að móta vinnustaða­vísi, til að meta hvort íslensk fyrirtæki tryggi réttindi og velferð hinsegin starfs­fólks. Eygló Harðar­dóttir, fráfar­andi félagsmála­ráðherra, vonast til þess að vísirinn verði íslenskum fyrir­tækjum hvatning.

Frá Gay Pride 2016
Frá Gay Pride 2016 Hug­myndin að inn­leið­ingu vinnu­staða­vísis kvikn­aði hjá félags­mála­ráð­herra eftir þátt­töku á IDAHO-ráð­stefn­unni í Kaup­manna­höfn, sem er til­einkuð bar­átt­unni gegn for­dómum gagn­vart hinsegin fólki. Að þessu sinni var áherslan á stöðu hinsegin fólks á vinnu­mark­aði. Mynd: Press photos

Í velferðar­ráðuneytinu er nú unnið að því að móta svokallaðan vinnustaða­vísi, sem nota má til að meta hvort íslensk fyrirtæki tryggi réttindi og velferð hinsegin starfs­fólks. Frétta­miðillinn Gay Iceland greinir frá þessu. Unnið er að gerð vísisins í samstarfi við Samtökin ‘78 en hann byggir á evrópskri fyrirmynd.  

Í viðtali við Gay Iceland segist Eygló Harðar­dóttir félagsmála­ráðherra vonast til þess að notkun slíks vísis á vinnu­stöðum verði atvinnu­rekendum hvatning til að skoða eigin starfsmanna­stefnu og tryggja réttindi og velferð hinsegin fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár