Ást, öryggi og kærleikur getur fundist ótrúlega víða

Kristín Helga Gunnars­dóttir segir frá því hvernig handritið að Ótemjum varð til á undan bókinni, sem fjallar um stúlku sem er að skríða inn á unglings­árin á mölbrotnu heimili.

Bók

Ótemjur

Höfundur Kristín Helga Gunnarsdóttir
Bjartur
293 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Fyrst ætla ég að segja ykkur að ótemjur eru kannski flokkuð sem unglingaleg fullorðinsbók eða fullorðinsleg unglingabók eða bara fjölskyldubók, þetta er allavega mjög dramatísk fjölskyldu­saga um unglings­stúlku sem er að skríða upp á unglings­árin frá mölbrotnu heimili,“ segir rithöfundurinn Kristín Helga Gunnars­dóttir. „Þessi saga hefur sérstöðu af mínum bókum vegna þess að venjulega kannski þróast bækur yfir í kvikmynda­handrit en ég skrifaði drög að kvikmynda­handriti ásamt vini mínum, Ottó Geir Borg, og þessi bók byggir á þeim drögum. Þannig að handritið varð til á undan.“ 

Könnuðust ekki lengur við eigið verk

Uppruna­lega fór hún að vinna í hand­ritinu því að það komu konur að máli við þau Ottó sem vildu gera sögur um hesta. „Við byrjuðum að vinna í því og við vorum búin að gera alls konar persónur, skrifa og endur­skrifa og hætta við og umturna og snúa við og snara, og á endanum fannst okkur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu

Í bókinni Allir fuglar fljúga í ljósið riðlast tilvera ráfarans Bjartar og lífssaga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rithöfundur og skapari sögunnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hugleiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draumurinn kominn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár