Í þá tíð… Bakslag í baráttu fyrir kvenpeningi í Bandaríkjunum

Áður en Donald Trump tók við embætti forseta Banda­ríkjanna hafði verið ákveðið að hressa aðeins upp á dollara­seðlana vestanhafs. Þorgils Jónsson kynnti sér baráttu­konuna Harriet Tubman og vonina um að hún fái að prýða seðil.

Harriet Tubman er ein af frægustu baráttukonum nítjándu aldar. Hún barðist fyrir réttindum blökkumanna og kosningarétti kvenna og frelsaði hundruð manna úr þrældómi. Fyrirhugað var að mynd af henni yrði á næstu útgáfu 20$ seðilsins.
Harriet Tubman er ein af fræg­ustu bar­áttu­konum nítj­ándu aldar. Hún barð­ist fyrir rétt­indum blökku­manna og kosn­inga­rétti kvenna og frels­aði hund­ruð manna úr þræl­dómi. Fyr­ir­hugað var að mynd af henni yrði á næstu útgáfu 20$ seð­ils­ins. Mynd: Thorgils Jonsson

Lengi hefur verið þrýst á um að kona fái sess á bandarískum seðlum. Í fyrra var ákveðið að baráttu­konan Harriet Tubman færi á næstu útgáfu 20$ seðilsins, en þær fyrir­ætlanir eru í uppnámi á meðan núverandi forseti er við völd.

Bandaríkja­dalur er sennilega það sem kemst næst því að heita alþjóð­legur gjald­miðill. Varla er sá staður á jarðríki sem „bucks“ eru ekki gjald­gengir og „greenbacks“, eins og dollara­seðlar eru oft kallaðir, eru nokkurs konar alþjóðlegt tákn fyrir peninga.

Félags­skapurinn á þessum seðlum er frekar einsleitur – jafnvel fábreyttur – þar sem þar eru á fleti sjö karlar, ýmist forsetar eða hluti af hópi „Lands­feðranna“. Elstur er fræði­maðurinn og sjálfstæðis­forkólfurinn Benjamin Franklin, sem fæddist 1706 og prýðir 100$ seðilinn. Yngsti meðlimurinn er hins vegar Ulysses S. Grant, sem er á 50$ seðlinum, en hann var herforingi í borgara­styrjöldinni og síðar forseti og lést 1885. Þar á milli eru George Washington (f. 1782), fyrsti forseti lýðveldisins, sem er á 1$ seðlinum, Abraham Lincoln á 5$, Alexander Hamilton, fyrsti fjármála­ráðherra Banda­ríkjanna, á 10$, Andrew Jackson á 20$ og – nokkuð sem er flestum ókunnugum dulið – Thomas Jefferson á 2$ seðlinum. (Síðastnefndi seðillinn er afar lítið notaður meðal almennings.)

(Þess ber þó að geta að enn eru í umferð fullgild eintök af stærri seðlum, 500$, 1.000$, 5.000$ og 10.000$, en þeir hafa ekki verið prentaðir frá 1934 og eru því afar lítið notaðir. Þess utan er fyrirsætu­galleríið þar sótt í sama pott, þrír forsetar og einn fjármála­ráðherra, allir frá 19. öld.)

Þessi uppstilling hefur haldist óbreytt í hartnær öld þrátt fyrir að breytingar hafi vissulega komið til tals.

Umdeildur forseti settur af seðli

Í tíð Baracks Obama á forseta­stóli fór að rofa til í þessum málum. Í júní 2015 hóf fjármála­ráðuneytið vinnu við að koma konu á seðil. Fyrst var talað um 10$ seðilinn, en mörgum fannst illa að Hamilton vegið með því, enda er hann allt að því skilgetinn faðir bandaríska efnahags­kerfisins (og varla hefur spillt fyrir hans málstað að í upphafi þess árs sló söng­leikur, byggður á ævi hans, rækilega í gegn á Broadway og lyfti nafni hans upp í áður óþekktar hæðir.)

Hins vegar voru fáir að fara að rísa upp til varnar fyrir Jackson sem var á 20$, enda var hann um flest frekar ósjarmerandi persónu­leiki, harður og durts­legur herforingi sem hefur verið afar umdeildur síðustu áratugina. Hans er nú helst minnst fyrir að hafa fyrir­skipað brott­rekstur frum­byggja, meðal annars af Cherokee- og Seminólaættum, frá löndum sínum í Suðaustri, vestur yfir Missis­sippi-fljótið til að rýma fyrir landtöku hvítra manna. Þessi feigðarför reif tugi þúsunda upp með rótum og þúsundir létust á leiðinni.

Þannig tilkynnti Jack Lew, fjármála­ráðherra Obama-stjórnarinnar, þá ákvörðun um mitt síðasta ár, að baráttu­konan Harriet Tubman hefði verið valin til þess að prýða nýjan 20$ seðil sem yrði kynntur árið 2020 og komið í umferð á árunum eftir það.

Baráttukona í húð og hár

En hver var Harriet Tubman og hvað afrekaði hún til að eiga heima á stalli með hinum háu herrum í seðla­genginu (pun intended) með forsetum og ráðherrunum fyrri alda?

Alveg hreint fjölmargt, þegar að er gáð.

Tubman fæddist í ánauð í Maryl­andríki einhvern tíma í kringum árið 1820. Hún vann fyrst á heimili „eigenda“ sinna og síðar á ökrunum. Árið 1849 flúði hún úr ánauðinni og komst við ramman leik til Philadelphiu, um 150 km leið, þar sem hún fékk vinnu og kom sér fyrir. Haft er eftir henni að þegar hún komst yfir ríkis­mörkin til Pennsylvaniu hafi hellst yfir hana mikill léttir. „Ég horfði í hendur mér til að athuga hvort ég væri ennþá sama manneskjan. Það var svo mikil dýrð yfir öllu; gylltir sólar­geislar bárust gegnum trén og yfir akrana og mér fannst eins og ég væri komin til himna­ríkis.“

Hún lét sér ekki nægja að hafa höndlað eigið frelsi, heldur hélt aftur suður á bóginn árið eftir og frelsaði systur sína og börn hennar úr þrældómi, og síðar bróður sinn og fleiri. Næstu tíu árin fór hún alls nítján ferðir og frelsaði hundruð blökku­manna úr þrældómi. Hún var einn af forsprökkunum í Underground Railroad, félags­skap sem vann ötullega að því að ferja þræla úr ánauð til norður­ríkjanna, og jafnvel allt til Kanada. Hún varð fljótt þekkt meðal þræla­haldara, sem settu fé til höfuðs hennar.

Upp úr 1860 þegar mótstaðan gegn þræla­haldi í Banda­ríkjunum fór á flug fyrir alvöru tók hún virkan þátt í því starfi og eftir að borgara­styrjöldin braust út gerðist hún njósnari fyrir her sambands­sinna.

Tubman var ekki bara umhugað um réttindi þræla, heldur vann hún líka ötullega að réttindum kvenna og fór víða til að tala fyrir kosninga­rétti kvenna, í samvinnu við þekktar súffragettur líkt og Susan B. Anthony.

Tubman lést í hárri elli árið 1913, umkringd ástvinum, en hún hafði verið mjög veik síðustu árin, sem mátti rekja til ofbeldis sem hún mátti þola á árunum í þrældómi.

Hún skildi eftir sig stór­merkilegt ævistarf sem annar frumkvöðull í réttinda­baráttu blökku­manna, Barack Obama, hafði hug á að viðurkenna með ofan­greindum heiðri. Jackson hefði mögulega fengið að vera áfram á bakhlið seðilsins.

Bakslagið

Þá gerist hið óvænta. Donald nokkur Trump er kjörinn forseti Banda­ríkjanna og ekki hið einasta er hann borinn til embættis á höndum fólks sem er síst gefið um blökku­fólk og aðra minnihluta­hópa, heldur er hann beinlínis – og viðbúið – talsverður aðdáandi Jacksons, sem Tubman hefði rutt úr rúmi. Hann hengdi upp málverk af Jackson í skrif­stofu forseta og skemmst er líka að minnast samhengis­lausrar lofrullu Trumps um Jackson fyrr á árinu, sem studdist ekki nema að takmörkuðu leyti við veru­leikann eins og flest fólk skynjar hann.

Þannig er kven­peningur í Banda­ríkjunum kominn á bið, um stundar­sakir hið minnsta. Steve Mnuchin, núverandi fjármála­ráðherra sagði í síðasta mánuði að ekkert lægi fyrir um hvort unnið verði áfram í málinu. Fleiri og meira aðkall­andi verkefni lægju fyrir stjórn­völdum þessi dægrin. Trump sjálfur útilokaði ekki – fyrir kosningar, vel að merkja – að Tubman fengi einhvern tíma sess á seðli, en hann væri ekki tilbúinn að láta Jackson víkja.

Mögulega yrði hún sett á 2$ seðilinn.

„Það væri meira við hæfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár