Leiftursnögg árás - Fjöldahandtökur í Tyrklandi

Leiftur­snöggt hófst áhlaup uppreisnar­hóps innan tyrkneska hersins, og voru valin skötmörk hjá sérsveit lögreglunnar í Ankara og Istanbul fyrstu skot­mörkin, eftir að uppreisnar­menn komust yfir þyrlur og herþotur. Síðan voru samgöngu­æðar stöðvaðar með hervaldi, Ataturk-flug­völlurinn í Istanbúl hertekinn og lokaður, og árás gerð á þinghús og fleiri opinberar byggingar. Yfir­lýsingar bárust svo frá hernum, á internetinu, um að herinn hefði nú náð völdum í Tyrklandi.

Upplýsingar berast jafn óðum frá vettvangi, en nú liggur ljóst fyrir að valda­ránið misheppnaðist, og stjórn­völd í Tyrklandi, með forsetann Erdogan í broddi fylkingar, hafa náð valda­þráðunum aftur í sínar hendur.

En hvað er vitað um þessu sögulegu valda­ránstilraun?

Samkvæmt upplýsingum sem breska ríkis­útvarpið BBC hefur miðlað, þá er tala látinna nú komin upp í 265, stærstur hluti úr hópi uppreisnar­manna.Tæplega 1.440 hafa særst og 2.843 verið hand­teknir. Tölurnar hafa hækkað hratt, svo heildar­myndin á enn eftir að skýrast.

Tyrkneska þingið og forseta­höllin í Ankara voru meðal skotmarka uppreisnar­manna, strax í upphafi valda­ráns­tilraunarinnar. Um 200 óvopnaðir hermenn sáust yfirgefa höfuð­stöðvar hersins í Ankara í morgun þar sem þeir höfðu gefist upp fyrir lögreglu. Þá gáfust um 50 uppreisnar­menn, sem haldið höfðu annarri tveggja meginbrúa yfir Bosporussundið, upp í nótt.

Ennþá er ekki orðið ljóst, hver eða hverjir, skipulögðu tilraunina en augljós­lega hefur mikill tími farið í að skipuleggja aðgerðina, og fjöldi hermanna sem hefur verið hand­tekinn, tæplega þrjú þúsund, sýnir að stór hópur hermanna var tilbúinn að taka þátt í valdaráni gegn ríkjandi yfir­völdum. Þetta sýnir glögglega hversu eldfimt ástand er í Tyrklandi þessi misserin.

Binali Yild­irim, for­sæt­is­ráðherra Tyrk­lands, segir 15. júlí vera „svartan dag“ í sögu landsins. Valda­ráns­tilraunin muni marka sögu landsins, og að þeir sem að „árásinni á lýðræðið“ stóðu, eins og hann komst að orði, muni fá að finna fyrir réttlætinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár