Mætti jafnvel takmarka eða skattleggja utanlandsferðir fremur en að hækka vexti

Stefán Ólafsson segir að í stað þess að Seðla­bankinn hækki vexti til að bregðast við einka­neyslu væri eðlilegra að stjórn­völd hækkuðu skatta á efnaðri hópa samfélagsins, til að hemja ofneyslu. Jafnvel mætti takmarka utan­landsferðir eða skatt­leggja þær.

Stefán Ólafsson prófessor emeritus og sérfræðingur hjá Eflingu.
Stefán Ólafsson pró­fessor emeritus og sér­fræð­ingur hjá Eflingu. Mynd: Hringbraut

Stefán Ólafsson, prófessor emeritus við HÍ og sérfræðingur hjá Eflingu, gagnrýnir vaxta­hækkanir Seðla­bankans og röksemdir Ásgeirs Jónssonar seðla­bankastjóra fyrir þeim harðlega í grein sem hann ritar á Vísi í dag.

Í greininni segir Stefán að „ofneysla efnaðri hluta þjóðarinnar“ sé vanda­málið sem við sé að etja hvað varði mikla einka­neyslu lands­manna. Vaxta­hækkanir, með auknum byrðum á almennt launafólk, séu ekki svarið við þessari ofneyslu.

„Það sem væri eðlilegra að gera væri að setja strax á aukna skatta á hærri tekjuhópa og stóreigna­fólk, til að hemja ofneyslu þeirra sem eru að skapa þennan vanda. Jafnvel mætti takmarka utan­landsferðir eða skatt­leggja þær sérstak­lega til að hemja óhófið,“ skrifar Stefán í grein sinni.

Að sama skapi segir hann að þessi staða verði að ráða því hvernig gengið verður frá kjara­samninga­viðræðunum sem nú standa yfir. „Hækkanir launa þurfa að verða meiri í lægri launa­hópum og ríkið þarf að lækka skatta á lægri tekjuhópa og auka húsnæðis­stuðning stórlega og aðrar tekju­tilfærslur til heimila,“ skrifar Stefán.

Seðlabankastjóri með hugann við eyjuna grænu

Á kynningar­fundi peninga­stefnu­nefndar í morgun, þar sem farið var yfir forsendur tíundu vaxta­hækkunarinnar frá því í maí í fyrra, kom spænska eyjan Tenerife fyrir í máli Ásgeir Jónssonar seðla­bankastjóra, sem benti á að vöxtur einka­neyslu hefði verið umfram það sem Seðla­bankinn hefði gert ráð fyrir. Það hefði komið fram meðal annars í lækkun á gengi krónunnar.

„Þegar þjóðin er að fara á Tene, það kost­ar gjald­eyri,“ sagði seðla­bankastjóri á fundi morgunsins og setti ferðir lands­manna til Tenerife í samhengi við inngrip bankans á gjaldeyris­markaði – Seðla­bankinn gæti „ekki fjár­magnað Tene-ferðir úr forðanum“.

Í grein sinni segir Stefán Ólafsson að það sé „fólkið sem er með hærri tekjurnar og á meiri eignir sem skapar vandann.“

„Það eru þau sem fara fimm sinnum til Tenerife á ári. Síðan tekur Seðla­bankinn að sér að leggja verulega auknar vaxta­byrðar á skuldugt fólk í lægri tekju­hópunum – til að draga úr neyslu þeirra. Það er verið að hengja verkafólk fyrir hátekju­fólk,“ skrifar Stefán.

Stýri­vextir voru hækkaðir um 0,25 prósentu­stig í morgun og eru nú 6 prósent. Hafa þeir nú ekki verið hærri síðan haustið 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár