Lagarde: Bretar þurfa að búa sig undir vandamál vegna Brexit

Christine Lagarde, framkvæmda­stjóri Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, segir Bretar þurfi að búa sig undir erfið­leika og vandamál vegna útgöngu úr Evrópu­sambandinu. Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, hefur sagt með ákveðnum hætti að Bretland muni yfirgefa innri markað Evrópu­sambandsins hratt og örugglega. Reynt verði að hraða því ferli eins og mögulegt er.

May sagði í ræðu fyrr í vikunni, að Bretar myndu ráða sér sjálfir eftir útgönguna, þar með talið landa­mærum sínum, og þá myndi Bretland geta gert viðskipta­samninga á frjálsum grund­velli við helstu viðskipta­þjóðir. Útgangan ætti ekki að ógna efnahag Bretlands, þvert á móti að efla hann til lengdar litið.

Óhætt er að segja að ekki séu allir sammála þessar greiningu May. Frá því fyrir um hálfu ári, þegar almenningur í Bretlandi kaus með Brexit í þjóðar­atkvæða­greiðslu, þá hafa efnahags­horfur í Bretlandi ekki styrkst neitt. Dýfan hefur hins vegar ekki verið eins slæm og svörtustu spár gerðu ráð fyrir, meðal annars frá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðnum. Gengi pundsins gagnvart helstu viðskipta­myntum heimsins hefur hins vegar hrapað.

Lagarde sagði í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC að þrátt fyrir að May hafi svarað skýrt mikil­vægum spurningum, eins og að Bretar ætluðu sér út úr innri markaði Evrópu­sambandsins, þá væri ekki ljóst á hvaða grund­velli viðskipti frá Bretlandi við Evrópu­sambands­ríki ættu að eiga sér stað þannig að allt gæti gengið vel fyrir sig. Hlutirnir væru ekki einfaldir, heldur flóknir.

Hún sagðist óttast að enginn samningur yrði jafn góður fyrir Bretland eins og að vera hluti af reglu­verki innri markaðarins.

Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að samn­inga­við­ræður um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu verði „mjög, mjög, mjög erf­ið­ar.“ Juncker ræddi við blaða­menn í Strass­borg í gær og tal­aði meðal ann­ars um ræðu Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um útgöng­una. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár