Samningaviðræður við Breta verða „mjög, mjög, mjög erfiðar“

Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að samn­inga­við­ræður um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu verði „mjög, mjög, mjög erf­iðar.“ Juncker ræddi við blaða­menn í Strass­borg í dag og tal­aði meðal ann­ars um ræðu Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um útgöng­una.

Juncker gerði lítið úr full­yrð­ingum um að ræða May hafi verið hótun gagn­vart ESB, og sagð­ist leggja áherslu á það að sam­komu­lag um útgöng­una þurfi að vera með hags­muni Breta og ESB í huga.

Juncker sagði jafn­framt að hann hefði rætt við Theresu May á þriðju­dags­kvöld og sagt henni að fram­kvæmda­stjórnin væri ekki fjand­sam­leg. „Við viljum sann­gjarnt sam­komu­lag við Bretland, og sann­gjarnt sam­komu­lag fyrir Bretland, en sann­gjarnt sam­komu­lag þýðir að það sé sann­gjarnt fyrir Evr­ópu­sam­bandið.“

Hann bætti því við að samn­inga­við­ræð­urnar yrðu „mjög, mjög, mjög erf­iðar“ vegna þess að Bretland verði nú álitið sem erlent og utan­að­kom­andi ríki gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu.

Juncker hefur sagst heita því að gera hvað sem hann getur til að sjá til þess að samn­inga­við­ræð­urnar verði eftir bók­inni og skili góðri nið­ur­stöðu. „Þeir sem telja að nú sé kom­inn tím­inn til að hluta sundur Evrópu gætu ekki haft meira rangt fyrir sér.“

Af hverju eruð þið ennþá hérna?

Nú er fundað á Evr­ópu­þing­inu í Strass­borg, en litlum tíma hefur verið varið í umræður um Brexit. Mest hefur verið rætt um flótta­manna­vand­ann og svo örygg­is­mál og varnir gegn hryðju­verkum.

Engu að síður voru Evr­ópu­þing­menn Breska sjálf­stæð­is­flokks­ins, UKIP, gagn­rýndir af öðrum Evr­ópu­þing­mönnum. Guy Ver­hof­stadt, full­trúi Evr­ópu­þings­ins í Brexit-málum, spurði meðal ann­ars hvað þeir væru enn að gera á Evr­ópu­þing­inu. „Af hverju eruð þið ennþá hérna? Ég spyr mig. Farið til Banda­ríkj­anna. Verið við­staddir inn­setn­ing­ar­at­höfn Trump í stað þess að vera hér.“

Donald Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seti, hefur sem kunn­ugt er sagt að útganga Bret­lands úr ESB hafi verið gáfu­legt skref. „Banda­rískur for­seti segir opin­ber­lega öðrum ríkjum að kljúfa sig frá Evr­ópu­sam­band­inu. Ég hef aldrei séð annað eins, aldrei heyrt annað eins.“ Ver­hof­stadt sagði einnig að kosn­ing Trump ætti að vera vakn­ing fyrir Evrópu. „Horfumst í augu við það, vendi­punkt­ur­inn er hér, Banda­rískur for­seti, Trump, sem er opin­ber­lega á móti Evr­ópu­sam­band­inu og segir að önnur ríki muni snúa sér burt. Hvaða vendi­punkt þurfum við annan?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár