Kvika, TM og Lykill sameinast

Trygg­ing­ar­mið­stöðin hf., Kvika banki og fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lykill hafa ákveðið að sam­ein­ast eftir tveggja mán­aða við­ræður.

Marínó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku
Marínó Örn Tryggva­son, for­stjóri Kviku Mynd: Aðsend

Stjórnir Kviku banka, TM og Lykils sam­þykktu fyrr í dag að sam­eina félögin, með fyr­ir­vara um að Fjár­mála­eft­ir­litið, Sam­keppn­is­eft­ir­litið og hlut­hafar sam­þykki sam­run­ann. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá félög­unum á vef Kaup­hall­ar­innar.

Kjarninn hefur áður fjallað um sam­runa­við­ræður fyr­ir­tækj­anna, en þær hófust form­lega í lok sept­em­ber­mán­aðar. Frétta­blaðið greindi hins vegar fyrst frá fyr­ir­hug­aðri sam­ein­ingu í byrjun júlí síð­ast­liðnum, en þar sagði að stjórnir félag­anna beggja hafi staðið í sam­ræðum í nokkrar vikur, þótt enn hefði ekki náðs sam­komu­lag um að hefja form­legar við­ræður.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni í dag hafa stjórnir allra félag­anna nú farið yfir nið­ur­stöður við­ræðn­anna og sam­þykkt sam­runa­samn­ing. Samn­ing­ur­inn felur í sér að TM færi vátrygg­inga­starf­semi sína í dótt­ur­fé­lag sitt, TM trygg­ingar hf, sem verður svo í kjöl­farið dótt­ur­fé­lag nýs sam­ein­aðs félags af Kviku, TM og Lykli.

Í sam­runa­samn­ingnum eru eft­ir­taldir fimm fyr­ir­varar við að að sam­run­anum verði:

  1. FME veiti sam­þykki fyrir sam­run­anum, sbr. 106 gr. laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki nr. 161/2002;
  2. FME veiti Kviku sam­þykki fyrir eign­ar­haldi á virkum eign­ar­hlut í TM trygg­ingum hf., TM líf­trygg­ingum hf. og Íslenskri end­ur­trygg­ingu hf., sbr. 58 gr. laga um vátrygg­inga­starf­semi nr. 100/2016;
  3. Sam­keppn­is­eft­ir­litið ógildi ekki sam­run­ann eða setji íþyngj­andi skil­yrði að mati sam­runa­að­ila, sbr. V. kafla sam­keppn­islaga nr. 44/2005;
  4. Hlut­hafar sam­þykki sam­run­ann í sam­ræmi við 93. gr. laga um hluta­fé­lög nr. 2/1995 á lög­lega boð­uðum hlut­hafa­fundum Kviku, TM og Lykils; og
  5. Yfir­færsla vátrygg­inga­stofns TM til TM trygg­inga hafi verið fram­kvæmd í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi áætl­anir sam­runa­að­ila.

Marinó Örn Tryggva­son og Sigurður Við­ars­son, for­stjórar félag­anna, munu áfram gegna stöðum sínum. Marinó Örn Tryggva­son verður for­stjóri Kviku og Sigurður Við­ars­son verður for­stjóri TM trygg­inga. Fjármála- og rekstr­ar­sviði Kviku verður skipt upp í tvö svið eftir sam­run­ann; Ragnar Páll Dyer mun gegna starfi fram­kvæmda­stóra fjár­mála­sviðs og Ólöf Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Lykils, mun hefja störf hjá Kviku og gegna starfi fram­kvæmda­stjóra rekstrar- og þró­un­ar­sviðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár