Samrunaviðræður Kviku og TM hafnar

Stjórnir Kviku banka og TM hafa sam­þykkt að hefja við­ræður um sam­ein­ingu félag­anna tveggja.

Eftir samrunan er búist við að TM verði dótturfélag Kviku.
Eftir sam­runan er búist við að TM verði dótt­ur­fé­lag Kviku. Mynd: Kvika banki

Kvika banki og TM hafa ákveðið að hefja form­legar við­ræður um sam­ein­ingu bank­ans við Lykil og að trygg­ing­ar­fyr­ir­tækið verði dótt­ur­fé­lag bank­ans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Lykils, sem birt­ist á Kaup­höll­inni í kvöld.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni sam­þykktu bæði fyr­ir­tækin að hefja sam­runa­við­ræð­urnar í dag, en gert er ráð fyrir TM verði dótt­ur­fé­lag Kviku banka og að Lykill sam­ein­ist Kviku banka. Þá er gert ráð fyrir að hlut­hafar í TM fái sem end­ur­gjald fyrir hluta­bréfin sín í TM 55 pró­senta hlut í sam­ein­uðu félagi.

Búist er við því að við­ræð­urnar muni fara fram á næstu vikum, en auk þess verði áreið­an­leikakann­anir fram­kvæmdar fyrir bæði fyr­ir­tækin. Þar sem bæði TM og Kvika banki eru skráð í Kaup­höll­inni og búi því við upp­lýs­inga­skyldu segir í til­kynn­ing­unni að gert sé ráð fyrir að sú vinna taki ekki langan tíma.

Frétta­blaðið greindi fyrst frá fyr­ir­hug­aðri sam­ein­ingu í byrjun júlí síð­ast­liðnum, en þar sagði að æðstu stjórnir félag­anna beggja hafi staðið í sam­ræðum í nokkrar vikur, þótt enn hefði ekki náðst sam­komu­lag að hefja form­legar við­ræður.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins voru við­ræð­urnar „tíma­bundið á ís eins og sakir standa,“ meðal ann­ars vegna þess að ólíkar hug­myndir væru uppi um á hvaða verði félögin tvö yrðu metin ef af sam­ein­ingu yrði.

Kvika banki hafn­aði frétt­inni á sínum tíma og gaf frá sér til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar þar sem sagt að við­ræður um sam­runa við TM væru hvorki hafnar né fyr­ir­hug­aðar.

Samkvæmt til­kynn­ingu Lykils hf. er nú talið að sam­eig­in­legur kostn­aður nýja félags­ins muni verða einum millj­arði króna minni en núver­andi kostn­aður félag­anna tveggja vegna sam­legð­ar­á­hrifa. Gert er ráð fyrir að hægt sé að ná slíkri hag­kvæmi vegna þess að fjár­mögnun verður hag­kvæm­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár