10 ára gjaldþrotaskiptum Samson lokið: Erlendir bankar töpuðu tugum milljarða

Þýski Commerzbank tap­aði 23,8 millj­örðum íslenskra króna vegna gjald­þrots Samson eign­ar­halds­fé­lags og suð­ur­a­fríski bank­inn Standard Bank tap­aði 12,8 millj­örðum. Glitnir og gamli Lands­bank­inn í hópi stærstu kröfu­haf­anna.

Suður-afríski bank­inn Standard tap­aði 12,8 millj­örðum vegna gjald­þrots Samson eign­ar­halds­fé­lags ehf. og þýski bank­inn Commerzbank tap­aði 23,8 millj­örðum. 

Skiptum á búi Samson, fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs­feðga sem keypti hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum árið 2002, lauk með úthlut­un­ar­gerð þann 5. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Um tíu ár eru liðin síðan félagið var lýst gjald­þrota í kjöl­far banka­hruns­ins og yfir­töku rík­is­ins á Lands­bank­anum. Hlutaféð í Lands­bank­anum var helsta eign Samsons sem hafði veð­sett hlut­inn fyrir tug­millj­arða lánum frá Commerzbank og Standard.

Lýstar kröfur í þrotabú Samson námu 77,4 millj­örðum króna og feng­ust 6,5 millj­arðar upp í kröf­urnar eða 8,6 pró­sent að því er fram kom í Lög­birt­ing­ar­blað­inu á mið­viku­dag. 

Að sögn Helga Birg­is­sonar, skipta­stjóra þrota­bús­ins, lýsti Commerzbank 26 millj­arða kröfu í búið en Standard lýsti kröfu upp á 14 millj­arða. Kröfur Glitnis voru 9 millj­arðar og kröfur gamla Lands­bank­ans 5 millj­arðar. 

„Greidd­ust að fullu bús­kröfur að fjár­hæð 1.625.223 kr. og for­gagns­kröfur að fjár­hæð kr. 1.703.915. Upp í almennar kröfur sem voru sam­tals kr. 77.443.122.895 greidd­ust kr. 6.465.281.540 eða 8,593%. Ekkert fékkst greitt upp í eft­ir­stæðar kröfur,“ segir í til­kynn­ingu um skipta­lokin. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár