Fyrrverandi starfsmenn gagnrýna Stígamót fyrir eigin rannsókn á einelti

Fimm nafn­greindir fyrr­ver­andi starfs­menn Stíga­móta óska eftir fag­legri rann­sókn á ásök­unum um ein­elti. Þær segja óheil­brigða vinnu­stað­ar­menn­ingu ríkja á Stíga­mótum og telja að eigin rann­sókn Stíga­móta hafi verið ófag­leg, þar sem ekki var rætt við brota­þola.

Thelma Ásdísardóttir
Thelma Ásdís­ar­dóttir Er ein fimm nafn­greindra kvenna í stærri hópi fyrr­ver­andi starfs­manna sem greina frá óheil­brigðri vinnu­stað­ar­menn­ingu á Stíga­mótum. Mynd: Kristinn Magnússon

Fimm nafn­greindar konur og fleiri ónafn­greindar hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau harma við­brögð Stíga­móta við fram komnum frá­sögnum af ein­elti innan sam­tak­anna. Stígamót rann­sök­uðu málið án þess að ræða við þolendur í mál­inu, þær sem kvartað höfðu undan ein­elti og and­legu ofbeldi. Að mati hóps­ins eru við­brögð Stíga­móta alls ekki í anda þess sem Stígamót starfar eftir.

„Við óskuðum eftir því áður að tekið yrði á mál­inu af fag­mennsku og ábyrgð og við getum ekki séð að það hafi verið gert,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Helga Baldvins Bjargar steig upp­haf­lega fram í júní og kvaðst vera í „ofbeld­is­sam­bandi við vinnu­stað­inn“, Stígamót, þar sem hún kvaðst hafa upp­lifað ein­elti og and­legt ofbeldi. Nokkrar konur, þar á meðal Thelma Ásdís­ar­dóttir, tóku undir með Helgu og kváð­ust hafa sam­bæri­lega reynslu af starfi hjá sam­tök­unum. Það er end­ur­tekið í yfir­lýs­ing­unni rétt í þessu. „Við getum stað­fest það að Helga er ekki sú fyrsta sem hefur brotnað undan sam­bæri­legum atlögum og hún hefur greint frá.“

Stígamót svör­uðu fyrir sig, en á end­anum fór Guðrún Jóns­dóttir, sem tengd­ist mest mál­inu, í leyfi frá störfum. Það varði hins vegar stutt og er Guðrún komin aftur til starfa í kjöl­far eigin rann­sóknar Stíga­móta á mál­unum. Stígamót eru gras­rót­ar­sam­tök sem berj­ast gegn kyn­ferð­is­of­beldi og veita aðstoð fyrir þolendur þess. Meg­in­mark­mið sam­tak­anna er að vera vett­vangur fyrir þolendur slíks ofbeldis til að fá stuðn­ing og deila reynslu sinni, en sam­kvæmt yfir­lýs­ingu fyrr­ver­andi starfs­manna gildir það ekki um slæma fram­komu sem þeir upp­lifa á vinnu­staðnum.

Yfirlýsing frá hópi starfsmanna

 

Nið­ur­staða mats á starfs­um­hverfi Stíga­móta olli okkur miklum von­brigðum. Ekki var rætt við neina okkar eða gerð til­raun til þess að ná í okkur, þó var það vegna yfir­lýs­ingar frá okkur sem Stígamót ákváðu að fara í áður­nefnt mat.

Við viljum ítreka að við trúum frá­sögn Helgu Baldvins Bjargar þar sem við eigum sam­bæri­lega reynslu af því að starfa á vett­vangi Stíga­móta. Að okkar mati hefur óheil­brigð vinnu­stað­ar­menn­ing verið við­var­andi innan Stíga­móta til fjöl­margra ára.  Við getum stað­fest það að Helga er ekki sú fyrsta sem hefur brotnað undan sam­bæri­legum atlögum og hún hefur greint frá.  

Við óskuðum eftir því áður að tekið yrði á mál­inu af fag­mennsku og ábyrgð og við getum ekki séð að það hafi verið gert. Því förum við ein­dregið fram á að annað og viða­meira mat verði gert þar sem rætt verður við brota­þola en ekki ein­göngu þá sem eiga hags­muna að gæta. Við reiknum að sjálf­sögðu með því að Stígamót skilji nauð­syn og rétt­mæti þess að ræða við brota­þola, enda hefur slíkt verið eitt af stóru bar­áttu­málum sam­tak­anna í mörg ár. 

Auk Helgu Baldvins Bjargar skrifa eft­ir­far­andi undir yfir­lýs­ing­una:

Thelma Ásdís­ar­dóttir

Guðrún Ebba Ólafs­dóttir

Ingi­björg Kjart­ans­dóttir

Guðný Haf­liða­dóttir

Við erum fleiri en  aðrar kusu að koma ekki fram undir nafni að sinni af ýmsum ástæðum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár