Sanders berst áfram þrátt fyrir að vera með „elítufjölmiðla“ á móti sér

Bernie Sanders er ekki sáttur við það hvernig stærstu fjöl­miðlar Banda­ríkjanna hafa staðið sig í kosninga­baráttunni. Svo virðist sem stuðningur þeirra við Hillary Clinton - oft opinber í leiðara­skrifum - sé að vega þungt þessa dagana.

Bernie Sanders, sem nú berst við Hillary Clinton um að verða forseta­efni Demókrata, hefur misst byr úr seglum baráttu sinnar að undan­förnu, og margir skrifa það á umfjöllun helstu fjölmiðla í Banda­ríkjunum, ekki síst dagblaða sem halda einnig út ritstjórnar­vinnu á vefnum. 

Hillary hefur fengið opinberan stuðning frá hverju stór­blaðinu á fætur öðru að undan­förnu, en þau sem hafa verið eindregnust í sínum stuðningi eru The New York Tímes, sem í ritstjórnar­skrifum, meðal annars frá 31. janúar síðastliðnum, hefur opinberða stuðning sinn við að hún verði næsti forseti Banda­ríkjanna, og síðan The Washington Post. Hinn 23. mars síðastliðinn bættist svo Rolling Stone í hópinn með opinberri stuðnings­yfirlýsingu.

Þetta hefur Sanders verið ósáttur með, og talað skýrt um að „elítu­fjölmiðlar“ Banda­ríkjanna vilji hann ekki og sniðgangi kraft­mikla baráttu hans nær alveg, og beinlínis vilji ekki ræða um málin sem skipta mestu máli.

Úrslit forvala að undan­förnu hjá Demó­krötum komu ekki beinlínis á óvart, nema kannski fyrir þá sem héldu í vonina um að kannanir væru hættar að geta spáð fyrir um niður­stöðu kosninganna með mikilli vissu eins og gerðist í Michigan vikuna áður þegar Sanders vann óvænt þvert á spár. Þessi staða var meðal annars til umfjöllunar í frétta­skýringu hér á vef Kjarnans í síðustu viku.

Orðið erfitt fyrir Sanders

En eins og spáð var fyrir um þá sigraði Clinton öll þau ríki sem í pottinum voru nema Illinois (156 kjörmenn). Þar sigraði Sanders með þriggja prósentu­stiga mun. Í lok þessa kvölds hafði hún sigrað Flórída (214), Missouri (71), Norður Karólínu (107) og Ohio (143). Af þeim 691 kjör­mönnum sem í pottinum voru þetta kvöld, fór Hillary heim með 365 og Sanders með 326.

Til þess að vinna útnefninguna þarf 2.383 kjörmenn eða atkvæði. Í dag er Hillary með í heildina 1.606 kjörmenn, sem skiptist í 1.139 kjörmenn og 467 ofur­kjörmenn en það eru atkvæði sem elíta flokksins hefur lofað henni og mun greiða á lands­fundinum sjálfum í júlí. Sanders er með í heildina 851 kjörmenn og þar af aðeins 26 ofur­kjörmenn. Samkvæmt frétta­miðlinum MSNBC þá þarf Sanders að vinna 65 prósent af öllum kjör­mönnunum sem eftir eru í pottinum svo hann eigi möguleika á útnefningunni, en enn eftir á að kjósa á 29 stöðum í landinu.

Í könnunum á landsvísu hafa Hillary og Sanders verið að mælast með sambærilegt fylgi, oft á tíðum, nú síðast í könnun Bloomberg, þá mældist Sandest með einu prósentu­stigi meira fylgi en Hillary. Kannanir sem þessar segja hins vegar litla sögu um hvor stendur betur að vígi, því rýna þarf í stöðu mála í hverju ríki til að þess að átta sig á því hvernig staðan er í reynd.

Trump það besta sem gat komið fyrir Hillary

Sanders er ennþá með mikinn kraft í sinni kosninga­baráttu og fyllir hallir víða, þegar hann heldur ræður um stefnumál sín. Hann hefur talað skýrt gegn „elítunni“ í Washington og náð þannig að miklum stuðningi hjá ungu fólki og þeim sem krefjast breytinga í Banda­ríkjunum, einkum þegar kemur að ójöfnuði. Þegar forvals­kosningarnar hófust, og úrslit komu fram, stefndi margt í jafna baráttu Hillary og Sanders, en nú virðist allt benda til þess að Hillary sé að hafa nokkuð þægilegan sigur.

Í frétta­skýringu á vef Washington Post í gær, kemur fram að uppgangur Donald Trump, hafi unnið með Hillary Clinton. Hatrammar deilur hafa víða verið milli stuðnings­manna Trump og Sanders, á meðan barátta Hillary hefur verið hófstilltari og margir þeir sem staðsetja sig nálægt miðjunni í bandarískum stjórn­málum, virðast vera að sýna Hillary stuðning, fremur en Sanders. Allt eykur þetta líkurnar á að Hillary verði forseta­efni Demókrata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár