Stendur valið um karlrembu eða femínista?

Donald Trump hefur ekki síst rekið kosn­inga­bar­áttu sína með niðr­andi ummælum um konur. Hillary Clinton hefur lagt áherslu á femín­isma í sinni kosn­inga­bar­áttu. Þau tvö eru lík­leg­ust til að berj­ast um for­seta­emb­ætti Banda­ríkj­anna í haust.

Hillary Clinton og Donald Trump eru líkegustu forsetaframbjóðendur stóru flokkanna í Bandaríkjunum.
Hillary Clinton og Donald Trump eru líkeg­ustu for­seta­fram­bjóð­endur stóru flokk­anna í Banda­ríkj­unum.

Það þarf mik­inn við­snún­ing hjá öld­unga­deild­ar­þing­mann­inum Bernie Sanders svo hann eigi mögu­leika á því að sigra Hillary Clinton, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, í for­vali Demókra­ta­flokks­ins. Þrátt fyrir kann­anir sem sýna að Sanders eigi meiri mögu­leika á að sigra Donald Trump, við­skipta­mó­gúl­inn frá New York, sem verður af öllum lík­indum sá sem hreppir útnefn­ingu repúblik­ana eftir að hafa lagt mót­fram­bjóð­anda sinn Ted Cruz að velli. Kannanir sýna að Cruz eigi hins vegar meiri mögu­leika á að sigra Clinton en Trump. Það er því margt skrítið í kýr­hausnum og ekki bætir úr skák að hafa kven­kyns fram­bjóð­anda sem gæti hrist all veru­lega upp í valda­kerfi karla í Banda­ríkj­unum – og standa við­brögðin ekki á sér.

Næstum vonlaust fyrir Sanders að snúa dæminu við

Úrslit for­vala síð­asta þriðju­dags hjá demókrötum komu ekki bein­línis á óvart, nema kannski fyrir þá sem héldu í von­ina um að kann­anir væru hættar að geta spáð fyrir um nið­ur­stöðu kosn­ing­anna með mik­illi vissu eins og gerð­ist í Michigan vik­una áður þegar Sanders vann óvænt þvert á spár. En eins og spáð var fyrir um þá sigr­aði Clinton öll þau ríki sem í pott­inum voru nema Illinois (156 kjör­menn). Þar sigr­aði Sanders með þriggja pró­sentu­stiga mun. Í lok þessa kvölds hafði hún sigrað Flórída (214), Missouri (71), Norður Karólínu (107) og Ohio (143). Af þeim 691 kjör­mönnum sem í pott­inum voru þetta kvöld, fór Hillary heim með 365 og Sanders með 326.

Til þess að vinna útnefn­ing­una þarf 2.383 kjör­menn eða atkvæði. Í dag er Hillary með í heild­ina 1.606 kjör­menn, sem skipt­ist í 1.139 kjör­menn og 467 ofur­kjör­menn en það eru atkvæði sem elíta flokks­ins hefur lofað henni og mun greiða á lands­fund­inum sjálfum í júlí. Sanders er með í heild­ina 851 kjör­menn og þar af aðeins 26 ofur­kjör­menn. Samkvæmt frétta­miðl­inum MSNBC þá þarf Sanders að vinna 65 pró­sent af öllum kjör­mönn­unum sem eftir eru í pott­inum svo hann eigi mögu­leika á útnefn­ing­unni, en enn eftir á að kjósa á 29 stöðum í land­inu. Til að tryggja sér útnefn­ing­una þarf Clinton aðeins að ná 35 pró­sent af þeim kjör­mönnum sem eftir eru í pott­inum. Kannanir benda til þess að hún muni á end­anum hafa mun meira en það sem hún þarf til að tryggja sér útnefn­ing­una. Viðbrögð við þess­ari stöðu af hálfu kosn­inga­bar­áttu Sanders eru ein­fald­lega að þau séu hvergi nærri hætt og nú sé ætl­unin að ein­beita sér á að sigra í stærri ríkj­unum sem eru framundan. Stóru ríkin í pott­inum eru nokkur; lang stærst er Kali­fornía þar sem kosið verður 7. júní og gefur ríkið heila 475 kjör­menn. Fram­bjóð­endur demókrata fá hlut­falls­lega jafn­marga kjör­menn og þeir fá í atkvæðum, en hjá repúblikönum er þetta mis­jafnt eftir ríkjum, þar sem þeir fá sums staðar alla kjör­menn­ina ef þeir ná meiri­hluta atkvæða. Kannanir benda til þess að Hillary Clinton hafi tölu­verða yfir­burði í stóru ríkj­unum sem á eftir að kjósa í. Það eru Kali­fornía, New York, Penn­syl­vanía og New Jersey.

Ríki í for­vali demókrata framundan sem gefa 50+ kjör­menn
Dags.RíkiKjör­manna­fjöldi
22. marsArizona75 kjör­menn
26. marsWashington101 kjör­maður
19. aprílNew York247 kjör­menn
26. aprílConnecticut55 kjör­menn
26. aprílMaryland95 kjör­menn
26. aprílPenn­syl­vania189 kjör­menn
3. maíIndiana83 kjör­menn
17. maíKentucky55 kjör­menn
17. maíOregon61 kjör­maður
5. júníPuerto Rico60 kjör­menn
7. júníKali­fornía475 kjör­menn
7. júníNew Jersey126 kjör­menn

Á demókrata­vængnum und­ir­búa margir sig þess vegna, leynt og ljóst, að Hillary verði næsti for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins. Stuttu eftir sigur hennar í vik­unni bár­ust fregnir af því að Barack Obama hefði sagt á fjár­öfl­un­ar­fundi með sterkum fjár­festum að nú væri orðið tíma­bært að stilla sér upp á bak við Hillary.

Hefð er fyrir því að frá­far­andi for­seti leggi sitt að mörkum í fjár­öflun fyrir flokk­inn. Fjár­öfl­unin er svo notuð til að styðja þann sem hlýtur útnefn­ing­una. Ekki eru allir stuðn­ings­menn Sanders til­búnir að leggja árar í bát og spá flestir því að Sanders muni ekki hætta fyrr en á lands­fundi flokks­ins í júlí, enda þykir það almennt gott fyrir flokk­inn að klára for­valið í öllum ríkjum.

Tekst repúblikönum að koma í veg fyrir að eigin frambjóðandi verði forseti?

Kapp­hlaupið að emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna hefur fá upp­hafi ein­kennst af því að kast­ljós fjöl­miðla hefur verið mest á Donald Trump. Þar var síð­asta vika engin und­an­tekn­ing. Hver ræðan og við­talið rak annað, þar sem hann margend­urtók sitt eigið ágæti og mön­tr­una um hvernig hann ætlar gera „Ameríku frá­bæra á ný“. Undir lok vik­unnar sagði hann spurður um hvernig hann und­ir­byggi það að taka við stjórn lands­ins. „Ég er að ráð­færa mig við sjálfan mig, af því ég er með góð­ann heila og ég hef sagt marga hluti. Sem dæmi skrif­aði ég um Osama bin Laden áður en árás­irnar áttu sér stað 11. sept­em­ber. Ég man að Joe [þátta­stjórn­andi Morning Joe þar sem við­talið fór fram] dró það í efa, en ég gerði það,“ svar­aði Trump að sama lít­il­læti og áður.

Það er því ekki skrítið að tölu­verð skelf­ing hefur gripið um sig meðal for­ystu Repúblikan­flokks­ins síð­ustu vik­urnar. Í ljós hefur komið að það þarf mikið að ger­ast til þess að hægt sé að koma í veg fyrir að Donald Trump tryggi sér útnefn­ing­una. Í for­völum síð­ustu viku var meðal ann­ars kosið í Flórída og Ohio. Þar er fyr­ir­komu­lagið þannig að sá sem fær flest atkvæði fær alla kjör­menn rík­is­ins. Trump náði sér þannig í 99 kjör­menn með því að sigra Flórída, John Kasich sigr­aði sitt eigið ríki Ohio og hlaut á sama hátt alla kjör­menn­ina sem í boði voru. Nú staðan hins vegar sú að Kasich er með 143 kjör­menn og á ekki fræði­legan mögu­leika á að vinna útnefn­ing­una. Hann þyrfti 107 pró­sent þeirra atkvæða sem eftir eru til að vinna. Marco Rubio hætti í fram­boði í síð­ustu viku en hann hafði nælt sér í 172 kjör­menn. Ted Cruz er aftur á móti er með 422 kjör­menn og þarf að sigra 80 pró­sent af öllum kjör­mönnum sem eftir standa til að ná meiri­hluta atkvæða. Það er því nokkuð ljóst að Trump hefur yfir­hönd­ina, kom­inn með með 683 kjör­menn og þarf að tryggja sér 54 pró­sent kjör­manna sem eru eftir í pott­inum til að sigra.

Ef hinn strang­trú­aði Cruz getur ekki fram­kallað krafta­verk, sem hann í raun­inni þarf til að geta nælt sér í þau atkvæði sem hann þarf, er eina leiðin til að stöðva Trump að kalla fram alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu kjör­manna eða þeirra sem fer fyrir atkvæðum hvers ríkis á lands­fundi flokks­ins. Með þeim hætti væri hægt að safna saman öllum þeim atkvæðum sem fallið hafa til hinna fram­bjóð­and­anna og nýta þau í þágu þess full­trúa sem menn sam­mæl­ast um gegn Trump. Þessi leið hefur verið farin örsjaldan í sögu Repúblikana­flokks­ins og hefur Trump hótað því að það verði óeirðir á lands­fund­inum ef af þessu verður. Hægt er að kynna sér betur þetta mál í nýrri grein sem birt­ist hér á Kjarn­anum fyrr í síð­ustu viku. 

Hver er líklegri til að geta sigrað repúblikana?

Margir stuðn­ings­menn Sanders halda því nú á lofti að í könn­unum þar sem Banda­ríkja­menn á öllu land­inu voru spurðir hvorn þeir myndu velja ef valið stæði á milli Sanders og Trump ann­ars vegar og Hillary og Trump hins vegar. Þar kom í ljós að Sanders skorar ívið hærra en Hillary.

Sýna kann­anir að allt að 6-18 pró­sentu­stig myndu skilja að Trump og Sanders, Sanders í vil. Á sama tíma hefur Hillary 5-13 pró­sentu­stiga for­skot í síð­ustu könn­unum ef valið stæði á milli hennar og Trump. 

Áhuga­vert er að skoða færslu á hluta af fylgi Sanders yfir á Trump. Kannanir hafa sýnt að allt að 20 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla kjósa Sanders myndu frekar kjósa Trump en Hillary ef Sanders tapar útnefn­ing­unni.

Þó menn­irnir tveir séu eins ólíkir og hugs­ast getur þegar það kemur að við­horfum þeirra til ofbeldis, við­bragða vegna átaka í heim­inum, ISIS og inn­flytj­enda þá tala þeir á svip­uðum nótum í mál­efnum sem snúa að atvinnu­leysi, flutn­ingi á störfum vegna alþjóð­legra frí­versl­un­ar­samn­inga, aðþrengdri milli­stétt­inni, hækkun skatta á þá allra rík­ustu og að stríðið í Írak hafi verið mikil mis­tök. Þá skal ekki gleyma því að báðir draga þeir upp sterka mynd af því hvernig þeir séu utan­garðs í valda­klíkunni í Washington. Þeir eru einnig sam­mála um að klíkan í höf­uð­borg­inni hafi ekki verið að miklu gagni lengi. Þetta leggst vel í kjós­endur sem finnst að stjórn­mála­menn í Washington hafi algjör­lega klúðrað mál­unum og hafa litla trú á að þeir hafi nokkurn áhuga á dag­legum vanda­málum sem steðja að milli­stétt­inni.

Þegar borið er saman hvorn fram­bjóð­and­ann Banda­ríkja­menn telja fýsi­legri, Cruz eða Sanders, sýna kann­anir að mun fleiri velja Sanders fram yfir Cruz og er 12-17 pró­sentu­stiga munur á milli þeirra í síð­ustu könn­unum. Þegar Clinton og Cruz eru hins vegar borin saman kemur í ljós að mjög mjótt er á milli og í flestum til­fellum sýna kann­anir að Cruz hefði vinn­ing­inn með um 1-3 pró­sentu­stigs mun. Þessar kann­anir eru gerðar á tíma­bil­inu febr­úar-mars og þó enn sé langt í nóv­em­ber þegar hinar raun­veru­legu kosn­ingar verða gefa þær vís­bend­ingu um það sem koma skal.

Það er hins vegar áhuga­vert að fylgj­ast með hvernig margir stjórn­mála­skýrendur líta á málið með þó nokkuð ólíku sjón­ar­horni. Þar er bent á að þessar tölur geti breyst mikið þegar sá eða sú sem verður útnefnd fái að finna raun­verlu­ega fyrir óhróð­ursmask­ínu hins flokks­ins. Sú stað­reynd að Hillary hefur staðið í kast­ljósi stjórn­mál­anna í ára­tugi og því hefur allt verið dregið fram gegn henni sem mögu­lega hægt er að finna, segja menn að sýni að lítið verði hægt að segja eða gera til að veikja hana frekar. Sanders aftur á móti hafi ekki verið á radar repúblik­ana áður og þeir hafi farið ein­stak­lega mjúkum höndum um hann á meðan hart er sótt að Hillary Clinton.

Þegar kyn skiptir máli

Það er þekkt í amer­ískri stjórn­mála­sögu að fara í nei­kvæða her­ferð gegn and­stæð­ingi sínum. Þá eru oft­ast dregin upp óþægi­leg mál sem stundum eru ekki endi­lega alveg í takt við sann­leik­ann. Margar rann­sóknir hafa sýnt að nei­kvæðar her­ferðir hafa í flestum til­fellum gríð­ar­lega mikil áhrif. Síðasta útspil Trump er aug­lýs­ing af þessum toga en sem minnir helst á verk ung­lings í upp­reisn, en þar er Hillary sýnd gelta ítrekað og Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, hlæja að henni.

Kven­fyr­ir­litn­ing Trump er ekki ný af nál­inni og hafi fólk efa­semdir um þá stað­reynd má benda á að hér vestra kepp­ast blöðin um að taka saman topp tíu karl­rembu­leg­ustu ummæli Trump. Huffington Post gerði gott betur og tók saman 18 þeirra.

Þar eru meðal ann­ars ummæli hans við ósk lög­fræð­ings, sem var vinna í máli sem sótt var gegn honum, um stutt hlé svo hún gæti mjólkað sig þar sem hún væri með korna­barn heima. Viðbrögð hans voru að segja að hún væri „ógeðs­leg“ áður en hann gekk út. Hann hefur í ára­tugi einnig verið stoltur eig­andi feg­urða­sam­keppna. Trum hefur einnig látið frá sér ummæli um að ef Hillary gæti ekki full­nægt mann­inum sínum, hvers vegna héldi fólk að hún gæti full­nægt banda­rísku þjóð­inni? Það er þó ekki bara í her­búðum Trump sem menn eiga erfitt með til­hugs­un­ina um að Hillary Clinton verði for­seti. Stuðn­ings­menn Sanders eru ekki allir sjálf­gefnir stuðn­ings­menn Hillary nái hún kjöri.

Það verður heil­mikil áskor­unin að færa fylg­is­menn Sanders yfir til Clinton, eða öfugt ef svo ólík­lega fer. Milli­færsla á kjós­endum eftir löng og hörð for­völ fram­bjóð­enda getur reynst flókin. Kapp­ræður Hillary og Sanders hafa reyndar farið fram með nokkuð yfir­veg­uðum hætti og þau hafa sýnt hvor öðru meiri virð­ingu en venja er. Telja því margir að það verði ekki of erfið aðgerð. Sanders hefur mik­inn stuðn­ing meðal hvítra karl­manna í yngri kant­inum, sem og yngri kvenna, en almennt hefur Hillary tek­ist að tryggja sér sterka stöðu meðal svartra kjós­enda, kjós­enda af rómansk-amer­ískum upp­runa, eldri og yngri, ríkra og fátækra í stór­borgum og á dreyf­býlli stöðum. Hins vegar kemur alltaf betur og betur í ljós að Clinton hefur ekki náð með jafn afger­andi hætti til hvítra karl­manna ef marka má sam­an­burð á nið­ur­stöðum í þeim ríkjum sem kosið var í í síð­ustu viku og sú nið­ur­staða borin saman við sömu ríki í for­val­inu árið 2008. Í nýrri grein í New York Times er þetta rakið og rætt við menn sem segj­ast ekki geta stutt hana nú. Þar eru margar ástæður taldar til svo sem Bengasi-málið, harð­ari afstaða gegn almennri vopna­eign, tengsl hennar við Wall Street og tölvu­pósts­hneykslið svo­kallað. Enn aðrir töldu ein­fald­lega það ekki vera hlut­verk kon­unnar að verða „commander in chief“ svo fátt eitt sé nefnt. Sú stað­reynd að nái hún kjöri verði hún fyrsti kven­kyns for­seta­fram­bjóð­and­inn er mikið rædd bæði af hálfu fram­boðs­ins sem og meðal frétta­skýrenda. Á meðan sumir segja að það sé akkúrat rétti tím­inn fyrir konu til að verða for­seti, vilja enn aðrir meina að Banda­ríkja­menn séu ekki endi­lega til­búnir að kjósa konu í æðsta emb­ætti lands­ins.

Frá árinu 2006 hafa kjós­endur verið spurðir hvort þeir telji Banda­ríkin vera til­búin til að hafa kven­kyns for­seta eða ekki. Árið 2006 svör­uðu 60 pró­sent þess­ari spurn­ingu ját­andi, sú tala hefur hækkað jafnt og þétt á milli ára og er nú svo komið að 80 pró­sent svara henni ját­andi. Aðeins 12 pró­sent telja það mjög áríð­andi, 19 pró­sent frekar áríð­andi, 28 pró­sent ekki mjög mik­il­vægt, 22 pró­sent ekki mik­il­vægt. Áhuga­vert er að rýna þessa könnun því þar kemur í ljós að konur eru svart­sýnni en karlar um að landið sé til­búið fyrir kven­kyns fram­bjóð­anda en 83 pró­sent karla svara spurn­ing­unni ját­andi en aðeins 76 pró­sent kvenna. Þá eru demókratar jákvæð­ari eða 90 pró­sent en aðeins um 68 pró­sent repúblik­ana telja það tíma­bært. Hafa ber í huga að það hefur án efa áhrif á þessar kann­anir hverjir eru svo í raun í fram­boði af hvaða kyni og fyrir hvaða flokk þegar könn­unin er tekin.

Stjórn­mála­spek­ingar hér vestra hafa margir bent á að sjaldan eða aldrei hefur verið í fram­boði til for­seta ein­stak­lingur með jafn víð­tæka reynslu af starfi for­seta og Hillary Clinton. Bæði sem fyrr­ver­andi for­seta­frú og fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Kvenna­sam­tök hafa því nær öll sam­mælst um að hún hafi staðið vakt­ina fyrir konur í ára­tugi og eigi því skilið stuðn­ing sinn. Við Íslend­ingar þekkjum það vel hversu mikil inn­spýt­ing inn í rétt­inda­bar­áttu kvenna það getur verið að hafa kosið sér kven­kyns for­seta og er það rauður þráður í allri bar­áttu Hillary að leið­rétta þurfi þennan hlut kvenna.

Fimmtán konur hafa frá upp­hafi boðið sig fram til for­seta í stjórn­mála­sögu Banda­ríkj­anna en engin haft árangur sem erf­iði. Hund­ruðir karla hafa boðið sig fram en fjör­tíu og fjórir karl­kyns for­setar hafa verið svarnir í emb­ætti frá árinu 1789.

Hin nýja aug­lýs­ing Trump gegn Hillary og löng saga hans af kven­fyr­ir­litn­ingu, ras­isma og almennum popúl­isma, fær marga til að telja að það gæti orðið eins­konar þema í bar­átt­unni þeirra á milli, verði þau tvö útnefnd full­trúar flokk­anna.

Berit Ås, norskur félags­fræð­ingur og fyrr­ver­andi þing­maður, er einna þekkt­ust fyrir að hafa greint hinar svoköll­uðu fimm leiðir, sem algeng­ast eru gegn konum með það að mark­miði að þagga niður í þeim. (Ås er einnig þekkt fyrir að hafa búið í íbúð John Lennons og Yoko Ono á meðan hún tók þátt í Kvenna­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 1973 en und­ir­rituð situr einmitt þá ráð­stefnu nú og er næsti kafli grein­ar­innar inn­blás­inn af þeirri veru).

Þessi fimm atriði eru í mjög stuttu máli notuð með því að:

  1. gera við­kom­andi ósýni­leg­ann, 
  2. gera lítið úr honum, 
  3. upp­lýs­ingum haldið frá við­kom­andi, 
  4. allir kostir við­kom­andi eru gerðir slæmir (e. „Damned if you do and dam­ned if you don’t“), 
  5. að koma sam­visku­biti fyrir hjá við­kom­andi og skömmustu­til­finn­ingu.

Þessi aðferð­ar­fræði er þekkt víðar en í stjórn­málum. Ófáar konur sem hafa komið að stjórn­málum kann­ast við að þessi aðferða­fræði hafi verið nýtt gegn þeim. Ås útskýrir aðferð númer tvö, það að gera lítið úr við­kom­andi, þannig að hún ein­kenn­ist af eft­ir­far­andi: „Þetta á sér stað þegar gert er lítið úr fram­lagi kvenna, það er gert grín af þeim, þeim líkt við dýr, þeim gert að vera of til­finn­inga­samar, eða of kynæsandi, eða of kaldar og stjórn­samar“. Án efa munum við sjá meira af þess­ari aðferða­fræði að hálfu Trump næstu vik­urnar og mán­uði og þá ekki ónýtt að geta brugðið fyrir sig grein­ingatóli Berit Ås.

Ms. Magazine, sem stofnað var af ofur­femínist­anum Gloriu Steinem, hefur ein­faldað málið fyrir kjós­endum sem hafa efa­semdir um Hillary Clinton og geta nú greint sjálfir hvort það sé vegna kven­fyr­ir­litn­ingar sem þeir geti ekki hugsað sér að kjósa Clinton. Mik­il­vægt er að átta sig á að kven­fyr­ir­litn­ing finnst ekki ein­vörð­ungu í karl­mönnum heldur konum líka. Ein­kennin eru þrjú sam­kvæmt blað­inu:

  1. Ef þér mis­líkar Hillary Clinton vegna stefnu hennar og vanda­mála þeirra hjóna, en elskar enn Bill Clinton, gætir þú verið haldin/n djúp­stæðri kven­fyr­ir­litn­ingu.

  2. Ef þú komst að þeirri nið­ur­stöðu að Hillary Clinton væri ómögu­leg fyrst og rýndir svo skoð­anir hennar til að rétt­læta skoðun þína, þá gæt­irðu glímt við djúp­stæða kven­fyr­ir­litn­ingu

  3. Ef þú dæmir Hillary Clinton fyrir hluti sem þú hefur fyr­ir­gefið karl­kyns stjórn­mála­mönnum, gætir þú verið með kven­fyr­ir­litn­ingu á háu stigi. Til dæmis með því að styðja Obama en dæma Clinton vegna starfa hennar fyrir hann.


Fyrir þá sem vilja skilja greinina­ferlið betur má lesa um það á vef Ms. Magazine.

Val Banda­ríkja­manna í næstu kosn­ingum mun þess vegna að öllum lík­indum standa á milli þess að kjósa fyrsta kven­kyns for­set­ann sem hefur langa sögu að berj­ast fyrir rétt­indum kvenna eða kjósa mann sem hald­inn er djúp­stæðri kven­fyr­ir­litn­ingu með til­heyr­andi aft­ur­hvarfi sem það hefði fyrir jafn­rétti kynj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár