Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu

Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst að þeirri niður­stöðu að Meta hefði gefið notendum villandi upplýsingar um persónu­vernd og miðlun persónu­upplýsinga. Ríkið krefst sekta sem gætu numið milljörðum dala.

Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst í dag að þeirri niður­stöðu að Meta, móður­félag Facebook, hefði blekkt notendur um persónu­vernd. Málið tengist Cambridge Analytica-hneykslinu, að því er bandarískir fjöl­miðlar greina frá.

Cambridge Analytica var pólitískt ráðgjafar­fyrirtæki sem reyndist hafa aflað persónu­upplýsinga milljóna Facebook-notenda með óeðli­legum hætti til að beina pólitískum auglýsingum að þeim, einkum í tengslum við forseta­kosningarnar í Banda­ríkjunum árið 2016 og þjóðar­atkvæða­greiðsluna um Brexit.

Uppljóstranir á sínum tíma leiddu í ljós að fyrir­tækið keypti gögn sem safnað hafði verið með persónu­leika­prófs­forriti sem nefndist „thisisyourdigitallife“. Um 270 þúsund manns notuðu forritið, sem jafnframt fékk aðgang að upplýsingum um vini þeirra.

Með þeim hætti náði gagna­söfnunin að lokum til um 87 milljóna Facebook-notenda um allan heim.

Facebook vissi í desember 2015 að Cambridge Analytica hefði keypt gögnin en greindi ekki frá því fyrr en í apríl 2018, eftir að uppljóstrari steig fram. Í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár