Alþingi kemur saman í dag til að fjalla um og samþykkja frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra sem stöðvar verkfall flugvirkja Icelandair. Verkfallið hófst á miðnætti og hefur fjölmörgum flugferðum félagsins verið aflýst það sem af er degi.
Kjaradeildur flugvirkja og Icelandair hafa staðið um nokkurt skeið og hefur lítið þokast í átt að lausn. Samningsaðilar hafa aðeins átt óformlega fundi síðustu daga og ekki þótt ástæða til að boða til formlegs fundar í deilunni.
„Ríkisstjórnin afgreiddi á fundi sínum í morgun frumvarp um frestun verkfallsins. Ég mun leggja fram frumvarp seinna í dag,“ sagði Eyjólfur í viðtali við RÚV að loknum ríkisstjórnarfundi sem boðað var til í dag.
Hann sagði jafnframt að Kristrún Frostadóttir hefði þegar rætt við formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, og þingflokksformann Miðflokksins, um frumvarpið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir