Reiðibylgja í kjölfar kæru og nafnbirtingar

DV nafn­greindi kærendur í Hlíða­málinu fyrir slysni og baðst afsökunar. Nauðgunar­kæra manns á hendur ungri konu hefur vakið hörð viðbrögð og Sóley Tómasdóttir forseti borgar­stjórnar kallar Vilhjálm H. Vilhjálmsson „fyrir­litlegan lágkúru­lögfræðing“.

DV.is birti í dag nöfn og kenni­tölur manns og konu sem kært hafa hvort annað fyrir nauðgun í íbúð Hlíða­hverfinu í Reykjavík.

Ágúst Borgþór Sverrisson, blaða­maðurinn sem skrifaði fréttina, segir í samtali við Stundina að um mistök hafi verið að ræða og gerðar hafi verið breytingar á umræddri grein. „Þetta eru bara mistök og ég er búinn að taka þetta út. Þetta er bara bömmer og mjög vont,“ segir hann.

Mistökin fólust í því að kæra mannsins á hendur konunni var birt í heild án þess að persónu­greinanlegar upplýsingar væru fjar­lægðar. Í kæru­skjalinu mátti einnig sjá nöfn þriggja annarra manna sem sagðir eru geta gefið lögreglu skýrslu „um háttsemi konunnar“. Nöfnin og kenni­tölurnar voru inni í um það bil korter áður en fréttinni var breytt.

Neðst í frétt DV er nú að finna afsökunar­beiðni frá ritstjóra DV.is. „Þegar fréttin birtist fyrst fylgdi henni, fyrir mistök, kæru­skjalið sem um ræðir. DV biður hlut­eigandi innilega afsökunar á þessum mistökum,“ segir þar.

Nokkur umræða hefur spunnist um málið á samfélags­miðlum og hafa mistökin meðal annars verið sett í samhengi við atvik sem vakti athygli fyrir þremur árum þegar Pressan, sem nú er í eigu sama fyrir­tækis og DV, birti mynd af stúlku sem kært hafði Egil Gillzenegger Einarsson fyrir kynferðis­brot. Myndin var fjarlægð og baðst þáverandi ritstjóri Pressunnar, afsökunar á birtingunni.

Hörð viðbrögð við kæru

Mikil reiði hefur blossað upp eftir að Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, verjandi tveggja manna sem kærðir voru fyrir kynferðis­brot gegn tveimur konum í Hlíðunum, lagði fram kæru fyrir hönd annars mannsins gegn annarri konunni. „Í dag sá ég glitta í afkima feðra­veldisins sem mér datt ekki í hug að væri til. Fyrir­litlegi lágkúru­lögfræðingur,“ skrifar Sóley Tómasdóttir, forseti borgar­stjórnar Reykja­víkurborgar á Twitter. „Afsakið meðan ég æli,“ skrifar Sveinn Arnarson, blaða­maður á Frétta­blaðinu, á Facebook.

Á umræðu­vettvanginum Beauty Tips tjáir fjöldi kvenna sig um málið og hneykslast á framgangi lögmannsins. „Ég held að þetta snúist bara um taktík, að reyna að þagga konurnar niður,“ segir ein þeirra sem leggja orð í belg. „Af hverju kærði hann þær fyrst fyrir rangar sakar­giftir en ekki konuna strax fyrir nauðgun? Hefði það ekki átt að vera í forgangi?“ spyr önnur. 

#þúertekkiein

Hildur Lilliendahl Viggós­dóttir, sem talsvert hefur látið að sér kveða í jafnréttis­umræðunni undan­farin ár, birtir stuðnings­yfirlýsingu við stelpurnar á Facebook-síðu sinni og í Beauty Tips-hópnum.

„Í dag talaði ég við konur sem eru mjög triggeraðar eftir nýjasta viðbjóðs­lega útspil lögmannsins sem ég vil ekki nefna. Okkur langar til að koma stuðningi á framfæri við þolendurna í þessu máli. Við vitum ekki hverjar þær eru en við viljum að þær viti að við erum að hugsa til þeirra. Og ég býð öllum í Beauty tips að kvitta hérna undir ef þið viljið taka undir þessi skilaboð til þeirra,“ skrifar Hildur og hundruð kvenna taka undir. 

„Ef þetta væru mínar dætur væri ég svo óskaplega þakklát dómstóli götunnar fyrir öskrin og deilingar, ástina og baráttuna,“ segir einn þeirra Facebook-notenda sem deilir færslu Hildar. „Ég held að ALLIR ættu að setja sig í spor þessarra stelpna og hugsa, hvað ef þetta væri mín dóttir, systir, bróðir, maður eða kona!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár