Rússneska sendiráðið á Íslandi birti í gær stöðuuppfærslu á Facebook þar sem það mælti sterklega með að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, myndi biðjast afsökunar á ummælum sínum sem hann lét falla í ræðu á flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina.
Þar ræddi hann innrás Rússa í Úkraínu og sagði meðal annars: „Vonandi verður stríðið ekki of langt, það er búið að vera of langt nú þegar. Vonandi verður það ekki blóðugra en enn er orðið og vonandi tekst að stöðva þessi illvirki. Vonandi ber rússnesku þjóðinni gæfa til að losa sig við illmennin í Kreml sem eru yfir stjórn þessa merkilega lands, Rússlands.“
Í stöðuuppfærslunni sagðist sendiráðið hafa tekið eftir yfirlýsingum Sigurðar Inga og að það teldi orð hans vera gróf afskipti af innanríkismálum Rússlands og beint ákall fulltrúa íslenskra stjórnvalda um að skipta um forystu í Rússlandi. „Við viljum minna herra Jóhannsson á að það sem hann kallar „illmennin í Kreml" eru yfirvöld sem eru löglega kjörin af rússnesku þjóðinni, studd af yfirgnæfandi meirihluta rússneskra borgara. Og það er ekki íslenskra ráðherra að ákveða hvenær og hvernig þessum embættismönnum er skipt út. Í því sambandi mælum við eindregið með því að Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra biðjist formlega afsökunar á orðum sínum.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir