Borgin steig inn í 140 milljóna fasteignakaup í Fossvogsdal

Borgarráð Reykja­víkurborgar samþykkti á dögunum að nýta forkaups­rétt sinn að fasteignum á Foss­vogsbletti 2. Fjár­festinga­félag ætlaði að kaupa eignina á 140 milljónir og gengur borgin inn í þau viðskipti.

Á Fossvogsbletti 2 stendur einbýlishús og geymsluhúsnæði.
Á Foss­vogs­bletti 2 stendur ein­býl­is­hús og geymslu­hús­næði. Mynd: Úr fundargerð borgarinnar

Reykja­víkurborg hefur ákveðið að nýta forkaups­rétt sinn að fasteigninni Foss­vogsbletti 2, sem stendur sunnan Foss­vogsvegar fyrir botni Foss­vogsdals, skammt frá Land­spítalanum í Fossvogi. Reykja­víkurborg kaupir í viðskiptunum einbýlishús sem byggt var 1951 og geymsluhús sem er á lóðinni.

Borgin mun greiða 140 milljónir króna fyrir, en samþykkt var á fundi borgar­ráðs í síðustu viku að borgin myndi nýta forkaups­rétt sinn að eigninni. Um er að ræða erfðafestu­land sem borgin leigði Hermanni Jónassyni fyrr­verandi ráðherra út til ræktunar árið 1943.

Fasteignamat eignanna við Foss­vogsblett 2 er 69,1 milljón króna á þessu ári en verður 90,7 milljónir á næsta ári.

Fjárfestar voru búnir að ná samkomulagi um kaup

Ísafold fjár­festingar­félag ehf., sem er meðal annars í eigu Ólafs D. Torfa­sonar eiganda Íslands­hótela og Baldurs Þórs Vilhjálms­sonar, var búið að komast að samkomu­lagi um kaup á fasteigninni á áður­nefndar 140 milljónir króna, en borgin kaus að stíga inn í viðskiptin eins og hún átti rétt á, samkvæmt leigu­samningi.

Kaup­samningur Ísafoldar fjár­festingar­félags og eigenda fasteign­anna var undir­ritaður 2. júní en borgin tilkynnti formlega þann 16. júní að hún ætlaði sér að stíga inn í fasteigna­viðskiptin og kaupa sjálf, með fyrirvara um samþykkt borgar­ráðs. Það var svo samþykkt á fundi borgar­ráðs á fimmtudaginn síðasta að ganga inn í kaupin.

Fram kemur í greinar­gerð sem lögð var fyrir borgarráð að landið sé skógi vaxið í dag og að því hafi verið skipt upp í Foss­vogsblett 2 og Foss­vogsblett 2A. Heildar­landið sem um ræðir er 1,25 hektarar eða 12.500 fermetrar og er land hvors blettar jafn stórt, eða 6.250 fermetrar hvor spilda.

Svæðið í heild sinni er skilgreint undir íbúabyggð í aðal­skipulagi Reykja­víkurborgar, en megin göngu- og hjóla­leiðin um Foss­vogsdalinn liggur í jaðri lóðarinnar við Foss­vogsblett 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár