Með sköpunargleði og leikgleði að vopni

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Djáknann á Myrká sem sett er upp af Miðnætti leikhúsi.

Miðnætti leikhús í samvinnu við Leikfélag Akureyrar og Tjarnarbíó: Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð

Handrit og söng­textar: Agnes Wild og leik­hópurinn

Leik­stjórn: Agnes Wild

Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðar­dóttir

Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson

Tónlist og hljóðmynd: Sigrún Harðar­dóttir

Leikarar: Birna Péturs­dóttir, Jóhann Axel Ingólfsson

Leik­hópurinn Miðnætti leikhús á rætur norðan heiða en hefur nú lagt land undir fót og sótt

höfuð­staðinn heim til að sýna Djáknann á Myrká – söguna sem aldrei var sögð. Undir­titillinn hljómar dálítið eins og öfugmæli, því ef það er eitthvað sem Miðnætti leikhús gerir, þá er það einmitt að segja söguna – kannski eins og hún hefur aldrei verið sögð, kannski eins og hefði átt að segja hana frá upphafi eða jafnvel eins og hún fær loksins að vera sögð. Hvað sem því líður, fer ekki á milli mála að Miðnætur­fólkið segir söguna af Djáknanum á Myrká, Guðrúnu, vinnukonu á Bægisá og fjöldamörgu öðru fólki í sveitinni á kostulegan hátt og óborganlegan! Það er auðséð að frásagnar­gleðin og leik­gleðin ræður ríkjum í leikhóp miðnættisins!

Það mætti ætla að sagan af djáknanum á Myrká er kunnari en svo að þurfi að eyða á hana mörgum orðum. Þó má rekja efni hennar stuttlega, lesendum til hægðar­auka við að átta sig á þræði hennar, þótt hann sé löngu orðinn hluti af okkar sameiginlega menningar­arfi, sem flestir gætu trúlega rakið í svefni.

Guðrún, áðurnefnd vinnukona prestsins á Bægisá, er í þingum við djáknann, sem er að Myrká; sá á gráföxóttan hest sem heitir Faxi. Nú ríður djákninn til Bægisár og býður Guðrúnu til jólagleði að Bægisá og kveðst munu sækja hana á tilteknum tíma. Þetta er auðvitað að vetri til og þegar djákninn er á leið heim á Myrká eftir fundinn með Guðrúnu er komin asahláka og leysing og þegar hann ríður yfir brúna á Hörgá fer ekki betur en svo að brúin brotnar undan honum og hestinum, djákninn ferst en hesturinn kemst til Myrkár. Nú fara engar fréttir milli Myrkár og Bægisár, þannig að Guðrún á ekki von á öðru en að djákninn sæki hana fyrir jóla­gleðina eins og um var samið. Þegar barið er að dyrum á Bægisá á tilsettum tíma fer Guðrún út og sér þar fyrir Faxa og mannveru hjá, sem hún telur vera djáknann, sem þó er eitthvað undarlegur í háttu. Hún hefur brugðið um sig hempu, en ekki haft tíma til að fara í ermarnar og sest á bak hestinum fyrir aftan djáknann. Tungl veður í skýjum en þegar ský rekur frá tungli sér Guðrún aftan á hnakka djáknans og glittir þar í bera höfuð­kúpuna. Djákninn ríður með Guðrúnu til kirkju­garðsins á Bægisá og ætlar þar að tæla hana með sér í opna gröf, en þegar hann kippir í hempu hennar kemur sér vel að hún hafði ekki farið í ermarnar, djákninn steypist ofaní gröfina sem lokast á eftir honum, en Guðrún bregður á það ráð að kippa í klukku­strenginn og hringir án afláts uns menn koma frá Myrká og bjarga henni til bæjar. Draugur djáknans – því það var hann sem hafði sótt Guðrúnu til Bægisár og ætlað að trylla hana ofaní gröfina – ofsótti Guðrúnu eftir þetta og þurfti að kveðja til galdra­mann frá Skaga­firði til að kveða hann niður. Það tókst, en Guðrún varð aldrei söm og áður.

Það má vel velta því fyrir sér hversu „happy“ þessi endir er – fyrir utan að vera áhrifa­mikil drauga­saga, sem sögumenn fyrri tíma hafa eflaust haft endalaust gaman af að segja auðtrúa áheyrendum í skammdegis­myrkri baðstofunnar hefur sagan hugsanlega líka verið sögð ungum stúlkum til varnaðar, að þær skyldu nú ekki hlaupa í granda­leysi á eftir hvaða slóða sem er; og jafnvel má hugsa sér að lægra settar vinnu­konur væru varaðar við því að leggja lag sitt við sér hærra setta í samfélaginu, að slíkt gæti aldrei endað vel.

Hvað um það – í sögunni um Djáknann á Myrká má finna merkilegt frásagnar­tæknilegt stílbragð, sem hún er nokkuð ein um í íslenskum sagnaarfi. Sagan breytir sumsé um sjónar­horn í miðjum klíðum og um stundar­sakir. Frá því að vera eins hlutlæg frásögn og hugsast getur – eins og líkt er farið um flestar þjóðsögur – gerist það að frásögnin lýsir því sem Guðrún ein er til vitnis um: fundinum með draug djáknans, hinni þöglu reið til Myrkár þar til kemur að Hörgá þar sem Guðrún sér hvítan blett í hnakka draugs og síðan reiðinni í kirkju­garð þangað til komið er að Guðrúnu hringjandi klukkunum. Það kemur hvergi fram í sögunni að Guðrún hafi sagt neinum öðrum frá atvikum en það er skýrt tekið fram að hún hafi aldrei orðið söm eftir sem áður. Í þeirri frumgerð sögunnar sem við þekkjum úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar er málið leyst þannig að vitnað er til tveggja ólíkra tilbrigða sögunnar – í öðru tilbrigðinu er það tilviljun sem veldur því að Guðrún sér hinn hvíta blett í hnakka draugs, í hinu lyftir hún hatti djáknans og sér þá blettinn. Áheyranda er gefinn frjáls kostur með það hvoru hann trúir, en með því að gefa kost á tveimur tilbrigðum er trúverðug­leiki sögunnar styrktur.

Þetta getur valdið nokkrum vandræðum hverjum þeim, sem ætlar að túlka söguna í öðru listformi og í þeim dæmum sem undir­ritaður man í svipinn hefur þetta staðið í mönnum; það hefur einfald­lega ekki tekist að skapa trúverðuga sögu þegar kemur að því að Guðrún er ein til frásagnar og ber þar tvennt til: annars vegar er valkosturinn úr sögunni, áhorfandi fær bara eitt tilbrigði sögunnar og fær því ekki að velja og hins vegar er sagan sögð með Guðrúnu sem aðal­söguhetju. Hversu viðfelldin sem Guðrún kann að þykja er það nú engu að síður hún sem gengur í gildru draugs djáknans og það hlýtur því að ganga illa upp að gera hana að hetju sögunnar.

Það er því ótrúlega gaman að sjá, að miðnættis­fólkið skýtur sér fimlega hjá þessu vandamáli og leysir það á frábæran hátt, einfald­lega með því að treysta leik­húsforminu og áhorf­endum þess. Lausnin er því eiginlega jafn einföld og hún er snjöll – en það er með hana eins og egg Kólumbusar, það þarf einhver að láta sér detta þetta í hug!

Hér er það einfald­lega gert með því að breyta í sífellu um sjónar­horn! Og það er hægt með því að leikhús­atburðurinn sjálfur er sögu­heimurinn, það eru leik­ararnir sem kynna söguna og persónur hennar og svo eru það hinar ýmsu persónur sem fá hver sína „fimmtán mínútna frægð“ til að baða sig í; með því að treysta á samband þeirra Birnu og Jóhanns Axels við áhorf­endur og að áhorf­endur fylgi þeim eftir – ekki Guðrúnu! – þá er vanda­málið með trúverðug­leika sögumanns og/eða Guðrúnar hreinlega leyst. Þar með er líka annað vandamál úr sögunni, sem oft hefur valdið vandræðum þeim, sem miðla vilja menningar­arfi til nýrra kynslóða, en það er sjálft tungu­málið og frásagnar­stíllinn. Tungumál nítjándu aldar, þegar sagan af Djáknanum á Myrká er færð í letur, er býsna fornlegt nú, í upphafi hinnar tuttugustu og fyrstu aldar, og frásagnar­stíllinn frábrugðinn því sem nú gerist í fjöl­miðlum. Miðnætti leikhús færir frásögnina sem slíka til nútímans, beitir nútíma stíl­brigðum í frásögn og fram­setningu og hikar ekki við að færa sér í nyt öll kómísk áhrif sem vinna má af því. Ef eitthvað er, eykur það trúverðug­leikann enn frekar og verður meðal annars til þess að atriðið þegar draugurinn er kveðinn niður verður áhrifa­mikið og átakanlegt. Eða, ef notast má við slangur­yrði: gæsahúðarlegt!

Sýningin var unnin af leikhópi og listrænum stjórn­endum í því sem í leikskrá er kallað „samsk­öpunar“ aðferð, á ensku „devised“. Í gamla daga, þ.e. í árdaga frjálsra leikhópa á Íslandi á sjöunda áratugnum, var slík hópvinna einfald­lega kölluð leiks­miðja, enda var hér starfandi leikhópur sem kallaði sig því nafni og sýndi nokkrar athyglis­verðar sýningar á sínum tíma. Það er ekkert að því að nota það góða orð, leiks­miðju, yfir sýningu Miðnættis leikhúss.

Það má hafa fleiri orð um vinnu Miðnættis leikhúss um umbreytinguna á þjóð­sögunni yfir í nútíma leik­húsverk – en látið nægja, að hér var fallegt þrekvirki unnið, sem svo sannarlega má kanna hvort henti ekki fleiri sögum úr menningar­arfi okkar Íslendinga og er Miðnætti leikhúss hvatt til þess.

Leikarar eru aðeins tveir, auk mjög virkrar hljóð­myndar, sem hönnuð er af Sigrúnu Harðar­dóttur. Þau Birna Péturs­dóttir og Jóhann Axel Ingólfsson eru bæði ungir leikarar, hún útskrifuð frá Rose Bruford College of Theatre & Performance í London, hann frá Stella Adler Studio of Acting í New York. Bæði hafa þau leikið nokkuð hér á landi að námi loknu, mestmegnis norðan heiða hjá Leik­félagi Akureyrar. Þau bera þess merki að vera menntuð sínu hvoru megin Atlantsála, leikstíll þeirra er nokkuð mismun­andi og má sjálfsagt benda á að Rose Bruford lagði á sínum tíma ívið meiri rækt við hið talaða mál en Stella Adler; báðir skólarnir styðjast þó að verulegu leyti við aðferð Stanislakvskíjs, sem kveður á um að leikarinn eigi að styðjast við tilfinningar sínar í karakter­sköpun og leik; þó hefur Stella Adler bætt þar í og kveður líka á um að leikarinn skuli styðjast við ímyndunarafl sitt líka.

Sá leikstíll sem Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð krefst er ákaflega hraður. Þau Birna og Jóhann Axel leika samtals um tuttugu hlutverk og hvert þeirra þarf að meitlast skýrum dráttum og hiklausum, ímynd karaktersins svo djúp og afdráttar­laus að hann beri sögu sína með sér. Það má styðja það rökum að þau sæki að sumu leyti hvort í sinn skólann við karakter­sköpunina og hefði leik­stjórinn, Agnes Wild, mátt stilla þau ívið betur saman hvað það varðar – Birna meitlar hvern karakter skýrum dráttum, en grunnum meðan karakterar Jóhanns Axels eru meira á dýptina en ekki að sama skapi skarpir. En þetta kemur þó lítið að sök; mestu skiptir að samleikur þeirra og tæknilegt öryggi er með ágætum og skilar sér í fjörlegri, bráð­skemmtilegri og mein­fyndinni sýningu sem gerir hvort tveggja í senn, að miðla mikil­vægum menningar­arfi þjóðarinnar á sínum eigin forsendum og skapa eftir­minnilega leik­sýningu sem bara allir ættu að sjá!

Aðeins er minnst á hljóðmynd Sigrúnar Harðar­dóttur, en má þó hnykkja á því að hún skapar ákaflega fallegan hljóm fyrir alla sýninguna, stemningin er í anda þess tíma sem sagan gerist, sem er í fyrri daga, í gamla daga og fyrir langa löngu. Leikmynd og búningar Evu Bjargar Harðar­dóttur eru með sama móti, einfaldir svo hægt sé að skipta um karakter eins snögglega og þarf, en jafnframt dæmi­gerðir fyrir fyrri daga, gamla daga og fyrir langa löngu og leik­myndin bregður sér líka í alls kyns hlutverk – þarna er kirkju­bekkur sem þjónar líka sem nokkrir hestar og orgel sem einnig er túngarður; að öðru leyti er leik­myndin míní­malísk sem hentar frásagnar- og leikstíl vel, lýsingin bætir við þar sem leik­myndinni sleppir og skapar ágæt hughrif.

Djákninn á Myrká – sagan sem aldrei var sögð er sýning sem hentar öllum aldri og kannski tilvalið fyrir kynslóðir að fara saman á hana. Eldri kynslóðin getur þá furðað sig á því eftirá hve vel yngri kynslóðir geta tekið til sín menningar­arfinn og gert að sínum. Ekki síst þegar hann er borinn á borð eins og Miðnætti leikhús gerir – með sköpunar­gleði og leikgleði að vopni og af virðingu fyrir arfinum og áhorf­endum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár