Óskar eftir rannsókn á brotum á siðareglum vegna akstursgreiðslna

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur sent form­legt erindi til for­sætis­nefndar þess efnis að rann­saka þurfi meint brot á siða­reglum vegna akst­urs­greiðslna.

Björn Leví Gunnarsson hefur kallað eftir rannsókn á meintum brotum á siðareglum. Ásmundur Friðriksson hefur hlotið hæstar endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar.
Björn Leví Gunn­ars­son hefur kallað eftir rann­sókn á meintum brotum á siða­reglum. Ásmundur Frið­riks­son hefur hlotið hæstar end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar. Mynd: Samsett.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur sent form­legt erindi til for­sætis­nefndar þess efnis að rann­saka þurfi meint brot á siða­reglum vegna akst­urs­greiðslna.

Þannig taki nefndin það til umfjöll­unar hvort siða­reglur alþing­is­manna hafi verið brotnar og að nefndin fjalli einnig um hvort skrif­stofa og skrif­stofu­stjóri Alþingis hafi van­rækt skyldur sínar varð­andi eft­ir­lit með end­ur­greiðslum til þing­manna.

Þá óskar Björn þess sér­stak­lega að for­sætis­nefnd taki rök­studda afstöðu til eigin hæfis til þess að koma að þess­ari athugun, og vísar í því sam­hengi til 8. og 9. greinar siða­reglna þing­manna sem segja til um að þing­menn verði að greina frá sínum per­sónu­legu hags­munum við með­ferð mála og hvort uppi kunni að vera hags­muna­á­rekstrar sem leitt geti til van­hæfis.

Erindi Björns Leví má lesa í heild sinni hér að neðan:

Til for­sætis­nefndar,

Með vísan í 16. gr. siða­reglna alþing­is­manna og reglur for­sætis­nefndar um með­ferð erinda og máls­með­ferð sam­kvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn leggur und­ir­rit­aður fram eft­ir­far­andi erindi til for­sætis­nefndar:

Í þing­skjali 270, í 33. máli á 148. lög­gjaf­ar­þingi kemur fram svar for­seta Alþingis við

fyr­ir­spurn und­ir­rit­aðs um akst­urs­kostnað alþing­is­manna. Í svari for­seta má finna upp­lýs­ingar sem sýna að end­ur­greiðsla til þing­manna hafi ekki verið í sam­ræmi við reglur for­sætis­nefndar um þing­far­ar­kostnað. Telur und­ir­rit­aður að þetta kunni að varða við 14. gr. siða­reglna alþing­is­manna.

Und­ir­rit­aður hefur fengið bréf frá laga­skrif­stofu Alþingis, en í því kemur eft­ir­far­andi fram:

Hér gilda lögin um þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostnað, nr. 88/1995 og reglur for­sætis­nefndar frá 19. des­em­ber 2007 með síð­ari breyt­ingum. Um end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar þing­manna er fjallað í 7. gr. þing­far­ar­kaupslag­anna. Greint er á milli ferða­laga innan kjör­dæmis og milli heim­ils og Reykja­víkur (1. mgr. 7. gr.). Fjallað er nánar um end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar í 4. – 5. gr. reglna for­sætis­nefndar og í 6. gr. þeirra um til­högun á greiðslu ferða­kostn­aðar, en sú grein hefur einkum verið til umfjöll­unar. Skv. 16. gr. þing­far­ar­kaupslag­anna er gert ráð fyrir því að skrif­stofa Alþingis úrskurði um reikn­inga þá sem alþing­is­manni skulu end­ur­greiddir skv. lög­unum. Enn fremur að þing­maður geti skotið ákvörðun skrif­stof­unnar til for­sætis­nefndar sem úrskurðar end­an­lega í mál­inu. Að auki er gert ráð fyrir því að for­sætis­nefnd skeri úr um vafa sem kann að vera um rétt alþing­is­manns sam­kvæmt lög­unum. Í því felst túlkun lag­anna t.a.m. með setn­ingu reglna og að svara álita­efnum um fram­kvæmd þeirra.

Samkvæmt þessu er skrif­stofu Alþingis ætlað að bregð­ast við ef hún hefur vit­neskju um að reikn­ingur sé ekki réttur. Ef skrif­stofan neitar að greiða reikn­ing­inn, getur þing­mað­ur­inn skotið mál­inu til for­sætis­nefndar, sem sker úr.

For­sætis­nefnd fjallar einnig um rök­studd erindi um brot á siða­reglum alþing­is­manna, sbr. 16. grein regln­anna, t.a.m. hvort þing­maður hafi brotið 14. gr. þeirra. Þá er ekki heldur úti­lokað að meint brot þing­manns verði kært til lög­reglu, sem myndi þá fjalla um málið að öðrum skil­yrðum upp­fylltum, sbr. 1. mgr. 17. gr. siða­regln­anna. Af bréfi þessu má sjá að skrif­stofu Alþingis ber að bregð­ast við ef hún hefur vit­neskju um að reikn­ingur sé ekki réttur. Þannig hafi skrif­stofa Alþingis eft­ir­lits­skyldu þegar kemur að end­ur­greiðslum til þing­manna, en vit­neskja um að reikn­ingur sé ekki réttur getur aðeins komið til af því til­efni að skrif­stofa Alþingis hafi eft­ir­lit með end­ur­greiðsl­unum. Und­ir­rit­aður vísar til svars skrif­stofu­stjóra Alþingis við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þann 19. febr­úar 2018:

Skrif­stofa Alþingis hefur ekki talið það vera í verka­hring sínum að leggja mat á það hvort þing­maður á erindi á fund sem hann er til dæmis boð­aður á eða hvort rétt hafi verið að hann boð­aði til fundar. Slíkt verður að vera í höndum þing­manns­ins sjálfs. Telur und­ir­rit­aður að þessi túlkun skrif­stofu­stjóra Alþingis sé í and­stöðu við túlkun laga­skrif­stofu Alþingis á lögum um þing­far­ar­kaup og þing­far­ar­kostnað.

Þá vísar und­ir­rit­aður að lokum til blaða­greinar sem birt­ist í vef­út­gáfu Frétta­blaðs­ins þann 17. febr­úar 2018 sem bar tit­il­inn „ Röng skrán­ing í akst­urs­bók geti talist fjár­svik “, en í grein­inni lýsti Jón Þór Ólason, sér­fræð­ingur í refsirétti, því að röng skrán­ing í akst­urs­bók gæti talist fjár­svik í skiln­ingi almennra hegn­ing­ar­laga.

Í 14. gr. siða­reglna alþing­is­manna segir að þing­menn skuli sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar séu um slík mál. Ábyrgð

þing­manna er því skýr og óskar und­ir­rit­aður eftir því að fram fari rann­sókn á því hvort

sam­ræmi sé á milli reikn­inga þing­manna og end­ur­greiðslna sem inntar hafa verið af hendi.

Þess er óskað að tekin verði afstaða til þess hvort siða­reglur, hátt­ern­is­reglur eða lög hafi verið brotin þegar máls­at­hugun lýkur sam­kvæmt 17. gr. siða­reglna alþing­is­manna.

Með vísan til ofan­greindra atriða er þess óskað að for­sætis­nefnd taki til umfjöll­unar hvort

siða­reglur alþing­is­manna hafi verið brotnar, sbr. 16. gr. siða­regln­anna. Einnig er þess óskað að nefndin taki til umfjöll­unar hvort skrif­stofa og skrif­stofu­stjóri Alþingis hafi van­rækt skyldur sínar varð­andi eft­ir­lit með end­ur­greiðslum til þing­manna. Er í því sam­hengi vísað til 11. gr. laga um þing­sköp, þar sem segir að skrif­stofu­stjóri skuli starfa í umboði for­seta Alþingis.

Þess er sér­stak­lega óskað að for­sætis­nefnd taki rök­studda afstöðu til hæfis nefnd­ar­manna til aðkomu að athugun þeirri sem óskað er í þessu erindi. Meðal ann­ars hvað varðar per­sónu­lega hags­muni og hvort uppi kunni að vera hags­muna­á­rekstrar sem leiða til van­hæfis. Vísar und­ir­rit­aður í því sam­hengi til 8. og 9. gr. siða­reglna alþing­is­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár