Akstur landsbyggðarþingmanna opinberaður

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til lands­byggð­ar­þing­manna um akstur þeirra. 15 svör­uðu efn­is­lega en fimm ekki. Auk þeirra hafði Ásmundur Frið­riks­son áður upp­lýst um sína keyrslu.

Myndin af aksturskostnaði þingmanna er að skýrast.
Myndin af akst­urs­kostn­aði þing­manna er að skýr­ast. Mynd: Samsett.

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins eru á lista Alþingis yfir þá sem hlotið hafa hæstu end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar.

Fram hefur komið að Ásmundur Frið­riks­son hafi hlotið alls 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar í fyrra vegna akst­urs­kostn­aðar.

Í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna kom fram að litið sé svo á að akst­ur­inn teng­ist starfi alþing­is­manna fyrir umbjóð­endur, varði sam­band þeirra við kjós­endur og sé því þeirra mál eins og ýmis­legur annar kostn­aður við starf þing­manna. „Þess vegna hafa almennt ekki verið veittar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um þessar end­ur­greiðslur,“ segir í svar­inu.

Fimm þingmenn svara ekki

Kjarninn spurði alla þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæma um þeirra akst­urs­kostnað. Spurt var hvort þing­menn hafi fengið end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar á árunum 2013 til 2017, hvaða ár væri um að ræða, hversu mikil keyrslan var og hversu há end­ur­greiðslu­upp­hæð var á hverju ári fyrir sig. Fimmtán efn­is­leg svör bár­ust Kjarn­anum.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins svar­aði ekki fyr­ir­spurn Kjarnans. Það gerðu ekki heldur Sigurður Ingi Jóhanns­son, og Ásmundur Einar Daðason, þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Haraldur Bene­dikts­son og Páll Magn­ús­son þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins svör­uðu fyr­ir­spurn­inni ekki efn­is­lega.

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins var ekki spurður þar sem upp­lýs­ingar um hans akstur liggja fyrir.

Þeir lands­byggð­ar­þing­menn sem komu glæ­nýir inn á þing nú í vetur voru eðli máls­ins sam­kvæmt ekki spurðir. Né heldur þau sem duttu út af þingi í kosn­ingum í lok árs­ins 2017, þau Teitur Björn Ein­ars­son, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, Val­gerður Gunn­ars­dóttir, Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Benedikt Jóhann­es­son og Eva Pandóra Bald­urs­dóttir.

Uppfært: Í svari Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur sem barst eftir að fréttin fór í loftið kemur fram að hún hafi engar greiðslur fengið, 0 krónur.

Vilhjálmur, Oddný og Silja á topplistunum

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi verið flest árin í öðru sæti og að hann sé ekki feim­inn við að við­ur­kenna það. Hann gagn­rýnir ein­hliða umræðu sem að hans mati hefur verið um akst­urs­kostnað þing­manna og vill benda á að hann rukki til að mynda aldrei fyrir mat­ar­kostnað og mjög sjaldan hót­el­her­bergi og fleira í þeim dúr. Hann segir mik­il­vægt að líta á heild­ar­mynd­ina og að ann­ars konar kostn­aður eigi einnig að vera til umræðu. Vil­hjálmur segir að þingið hafi náð góðum árangri við að minnka kostnað und­an­farið en bætir því við að alltaf hljóti að verða ein­hver kostn­aður við það að hafa lands­byggð­ar­þing­menn. Krafa sé á þá þing­menn að sinna kjós­endum sínum, hitta og vera við­staddir hina ýmsu við­burði. Vil­hjálmur var við akstur þegar Kjarninn náði tali af honum og hafði því ekki aðgang að nákvæmum tölum um end­ur­greiðslur sínar. Sé það rétt að hann hafi fengið næst hæstu greiðsl­urnar á eftir Ásmundi fékk Vil­hjálmur í fyrra tæp­lega 3,5 millj­ónir í end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar í fyrra.

[adspot]Í svari Oddnýjar Harð­ar­dóttur, sem er þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis, kom fram að akstur hennar árið 2017 hafi verið 23.469 kíló­metrar, þar af 17.290 kíló­metrar til og frá heim­ili. Samtals voru end­ur­greiðslur til Oddnýjar það ár rétt tæp­lega 2,5 millj­ónir. Á árinu 2016 námu þær 3,1 milljón fyrir heildar akstur upp á 31.874 kíló­metra, þar af 28.698 kíló­metra í heimakstri. Samtals hefur Oddný fengið 13.269.857 krónur í end­ur­greiðslu vegna akst­urs­kostn­aðar á árunum 2013 til 2017.

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi fékk á síð­asta ári 1.929.818 krónur í end­ur­greiðslur. Í heild var akstur Silju í fyrra 18.182 kíló­metrar, en í svari Silju var kíló­metra­fjöld­inn ekki var sér­stak­lega sund­ur­lið­aður í heimakstur og annan akstur. Árið 2016 voru greiðsl­urnar tæp­lega 2,8 millj­ónir og eknir kíló­metrar 27.881. Alls hafa greiðslur til Silju numið 12.250.135 krónum á árunum 2013 til 2017. Í svari Silju til Kjarnans kemur fram að hún telji gagn­legt að taka inn í umfjöllun af þessu tagi með­al­kostnað á þá þing­menn sem aka ekki heim til sín, þ.e. þá sem búa enn fjær þing­inu, til dæmis í Norð­vestur- og Norð­aust­ur­kjör­dæmum. „Taka þá inn kostnað við bíla­leigu­bíla, elds­neyti, hús­næð­is­kostnað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem og flug­miða. Umfjöllun um þá sem aka mest (vænt­an­lega við búum utan Reykja­víkur og ökum heim á kvöldin) nær í raun ekki utan um umfjöll­un­ar­efnið. Síðan væri hægt að raða þing­mönnum upp eftir hvað þeir kosta mikið per haus. Ég held að þeir sem búi fjærst kosti mest, við „kraga­fólk“ næst­mest og ódýr­astir eru þeir þing­menn sem búa og starfa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Silja Dögg.

Njáll Trausti Frið­berts­son þing­maður Sjálf­stæði­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fékk akst­urs­greiðslur fyrir þing­vet­ur­inn 2017. Hann tók 907 kíló­metra það árið og fékk end­ur­greiddar 99.770 krónur í akst­urs­kostnað.

Guðjón S. Brjáns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi seg­ist fyrst hafa ekið sínum eigin bíl til vinnu eftir að hann sett­ist á þing haustið 2016. Guðjón býr á Akranesi. Um og leið og kostur gafst gerði hann sam­komu­lag við Alþingi um afnot af bíla­leigu­bíl. Á árinu 2016 hafi honum því verið greiddar 220.550 kónur í end­ur­greiðslu vegna akst­urs­kostn­aðar og „síðan ekki sög­una meir“. Hann segir að um hafi verið að ræða akstur milli heim­ilis og þings, auk nauð­syn­legra ferða um kjör­dæmið en hafði ekki nán­ari upp­lýs­ingar um fjölda ekinna kíló­metra að svo stöddu.

Aðrir með minni kostnað eða engan

Aðrir þing­menn sem svör­uðu gáfu óná­kvæm­ari svör eða hafa ekki inn­heimt akst­urs­kostnað.

Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður Vinstri grænna, einnig í Suð­ur­kjör­dæmi, sett­ist á þing árið 2016. Eina heila árið hans á þingi er því árið 2017 og sam­kvæmt svari Ara nema end­ur­greiðslur til hans ekki einni milljón, þar með taldar þrjár utan­lands­ferðir. Ari sagði að senni­leg­ast hafi akst­urs­greiðslur verið í námunda við 300 þús­und og „þá fyrir innan við 3000 km akstur og örfáar gistinætur og flug­ferðir til Eyja og Hafnar eru inni í upp­hæð­inni,“ segir Ari sem boðar nán­ari upp­lýs­ingar en hann var á leið um kjör­dæmið í kjör­dæma­viku og hafði ekki aðstöðu til að skoða málið nánar.

[adspot]Í svari frá Jóhann­esi Þór Skúla­syni aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Fram­sóknar og nú for­manns Mið­flokks­ins og þing­manns Norð­aust­ur­kjör­dæmis, kemur fram að hann hafi þegið ein­hverjar greiðslur fyrir akstur á árunum sem spurt var um, en í litlum mæli. Hann hefur óskað eftir því við rekstr­ar­svið Alþingis að upp­lýs­ingar um greiðslur til hans vegna akst­urs og ann­ars starfs­kostn­aðar verði teknar saman fyrir hann.

Smári McCarthy, þing­maður Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi, segir í svari sínu til Kjarnans að hann hafi aldrei inn­heimt akst­urs­kostnað. Hann hefur tvisvar inn­heimt kostnað vegna bíla­leigu­bíls í nokkra daga vegna ferða á vegum þings­ins. „Annars keyri ég núna eigin bíl og finnst óþarfi að rukka þingið sér­stak­lega fyrir það. Nógu and­skoti mikið fá þing­menn greitt fyrir,“ segir Smári.

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir þing­maður Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi segir kjör þing­manna liggja fyrir á vef Alþingis og nán­ari per­sónu­grein­an­leg kjör falli undir per­sónu­vernd­ar­lög. Hennar end­ur­greiddi akstur á árs­grund­velli sé ekki á „topp tíu lista og er innan eðli­legra marka“.

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis seg­ist í svari sínu til Kjarnans ekki hafa fengið end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar. „Ég hef nýtt mér flug og bíla­leigu­bíla, eftir atvikum, í sam­ræmi við til­mæli skrif­stofu Alþingis.“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi seg­ist alla jafna taka bíla­leigu­bíl frá Akureyri til Ólafs­fjarðar þegar hún fer heim. Þrjú skipti hafi hún verið á einka­bíl á milli og einu sinni ekið á einka­bíl milli Reykja­víkur og Akur­eyrar. Hún hafi fengið þær greiðslur sam­kvæmt reglum en sam­tals hafi verið um að ræða 621 kíló­metra á árinu 2017. „En ég hef ekki yfir­lit yfir það frá árinu 2013 þar sem það var ekki raf­rænt fyrr en 2016 en það má telja á fingrum ann­arrar handar,“ segir Bjarkey í svari sínu.

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmis seg­ist nær alltaf taka bíla­leigu­bíl þegar um lengri ferðir sé að ræða. Hún noti einka­bíl í styttri ferðir og fái end­ur­greiðslur vegna þeirra, en sú notkun sé mjög lítil. Hún sat ekki á þingi þorra árs­ins 2017 en kom aftur inn í kosn­ing­unum þá um haustið.

Þórunn Egils­dóttir seg­ist not­ast nær alltaf við bíla­leigu­bíla. Að öðru leyti vísar hún til vinnu for­sætis­nefndar varð­andi þessi mál.

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og þing­maður norð­aust­ur­kjör­dæmis hafði ekki tök á að taka saman umbeðnar upp­lýs­ingar með þessum fyr­ir­vara vegna kjör­dæma­viku en vakti athygli á að hann hafi frá því um mitt ár 2013 gegnt ráð­herra­emb­ætti og því séu greiðslur hans vegna akst­urs­kostn­aðar litlar ef ein­hverjar.

Upplýsingarnar verði birtar

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og þing­maður Vinstri grænna, svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans með þeim hætti að hann hafi senni­lega öll þessi ár sem hann hafi setið á þingi fengið lít­ils­háttar end­ur­greiðslur vegna akst­urs á eigin bíl. Það heyri þó orðið til algerra und­an­tekn­inga að hann noti eigin bíl. Hann telur árlegan kíló­metra­fjölda síð­ast­liðin ár hafa verið í kringum 1.500 til 3.000 kíló­metra. „Ein tvær ferðir í kjör­dæmið þegar ég hef verið í lengri ferðum og viljað vera á eigin bíl og stundum kannski ein ferð í önnur kjör­dæmi þegar ég hef lagt til bíl í sam­eig­in­legar ferðir þing­flokks­ins eða svo­leiðis. En, að uppi­stöðu til nota ég flug til ferða til og frá kjör­dæm­inu og svo stundum bíla­leigu­bíl í einn tvo þrjá daga í tengslum við það,“ segir Stein­grímur.

Kjarninn sendi honum, sem for­seta þings­ins, ósk um nákvæmar upp­lýs­ingar um hversu háar greiðslur hver og einn þing­maður hefur fengið í end­ur­greiðslu fyrir útlagðan kostnað vegna akst­urs. „Þess er óskað að nöfn við­kom­andi þing­manna séu upp­gefin í svar­inu og þar sé, auk kostn­aðar, til­greint hversu marga kíló­metra þeir keyrðu á hverju ári fyrir sig. Þess er óskað að ofan­greindar upp­lýs­ingar verði veittar fyrir árin 2013-2017.“

Í beiðni Kjarnans um upp­lýs­ingar frá for­seta þings­ins sagði enn­fremur: „Augljóst er að fjöl­miðlar geta ekki sinnt aðhalds­hlut­verki sínu ef umræddar upp­lýs­ingar fást ekki afhentar. Ótækt er að beita fyrir sig þeim rökum að rík­ari hags­munir séu fólgnir í því að veita ekki per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar og láta sem að sá frið­helg­is­réttur ein­stakra þing­manna sé rík­ari en réttur almenn­ings, vinnu­veit­anda þing­manna, til þess að fá upp­lýs­ingar um með­ferð á opin­beru fé.

[links]Til við­bótar er þess óskað að fá tæm­andi upp­lýs­ingar um hvernig eft­ir­liti með akst­urs­kostn­aði þing­manna sé háttað? Er kannað með ein­hverjum hætti hvort að kröfur þeirra um end­ur­greiðslu fyrir útlagðan kostnað séu réttar? Hver sinnir því eft­ir­liti?

Í ljósi þess að ofan­greind fyr­ir­spurn snýr að máli sem er mjög í umræð­unni nú er þess óskað að lögð verði áhersla á skjót svör. Ef með þarf er þess óskað að umrædd fyr­ir­spurn verði tekin fyrir á næsta fundi for­sætis­nefndar og að afstöðu nefnd­ar­innar verði komið á fram­færi við fyr­ir­spyrj­anda strax og hún liggi fyrir.“

Í svari Stein­grím segir að þetta verði tekið fyrir ásamt öðrum tengdum erindum í for­sætis­nefnd á næst­unni, við fyrsta hent­ug­leika. Hann vís­aði enn­fremur í til­kynn­ingu sína frá því á þriðju­dag sem send var fjöl­miðlum þar sem fram kom að Alþing­is­mönnum hafi síð­ustu daga borist marg­vís­legar fyr­ir­spurnir um greiðslur tengdar starfi þeirra á Alþingi. „Af því til­efni vill for­seti Alþingis koma því á fram­færi að til skoð­unar hefur verið á und­an­förnum mán­uðum, og rætt m.a. í for­sætis­nefnd Alþingis, að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostn­að­ar­greiðslur alþing­is­manna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auð­veldur og þær birtar á vef þings­ins. Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyr­ir­komu­lagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upp­lýs­ingum um þessi mál. Mark­miðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þing­manna og full­komið gagn­sæi ríki. – Þing­mönnum er að auð­vitað í sjálfs­vald sett hvaða upp­lýs­ingum þeir koma sjálfir á fram­færi um sín kjör, eins og verið hefur. Alþingi hefur með mark­vissum hætti reynt að skapa góða umgjörð störf og kjör þing­manna, þar á meðal með siða­reglum og reglum um hags­muna­skrán­ingu þing­manna sem eru á vef þings­ins. Sú aukna upp­lýs­inga­gjöf sem í vændum er mun bæt­ast þar við,“ sagði í til­kynn­ingu for­seta þings­ins.

Í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun sagð­ist Stein­grímur vilja setja upp­lýs­ingar um akstur og fastar greiðslur til þing­manna á vef Alþingis. Eins og regl­urnar séu núna fylgist eng­inn með akstri þing­manna. „Auðvitað er það þannig að það er tals­vert í höndum þing­manns­ins að til­greina akst­ur­s­er­indið og við verðum rétt að treysta því að menn geri það sam­kvæmt bestu sam­visku,“ sagði Stein­grímur.

Birtir allan sinn ferðakostnað

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Vinstri grænna í Reykja­vík birti í gær yfir­lit yfir þann ferða­kostnað sem hann hefur fengið end­ur­greiddan síð­ast­liðið ár, sem var fyrsta árið hans sem þing­maður. Alls fékk hann end­ur­greiddar 292.197 krónur. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Andrés að umræðan um starfs­kostnað þing­manna und­an­farna daga sé af hinu góða. „Ef þing­menn eiga að sinna starf­inu af þeim metn­aði sem það á skilið, þá kostar það pen­ing. Við eigum að sinna land­inu öllu, hitta fólk á ólíkum stöðum, þiggja boð á ráð­stefnur og halda opna fundi. En á móti er sjálf­sagt að þau útgjöld séu birt opin­ber­lega og von­andi að fundin verði sam­ræmd leið til þess á vegum Alþingis sem fyrst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár