Peningaþvættismálum sem rata inn til rannsakenda fjölgar hratt

Pen­inga­þvætt­is­rann­sóknir eru orðnar fyr­ir­ferða­meiri hluti af starf­semi skatt­rann­sókn­ar­stjóra og hér­aðs­sak­sókn­ara. Miklir fjár­munir geta verið undir í mál­unum. Fjár­munir sem með réttu ættu að renna í rík­is­sjóð.

Ný lög um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti hafa leitt af sér að stór­aukin áhersla er nú lögð á rann­sóknir vegna gruns um slíkt athæfi hjá þeim emb­ættum sem þeim sinna.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri birti frétt á vef sínum 26. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem emb­ættið fór yfir aðgerðir sínar vegna pen­inga­þvættis á und­an­förnum árum. Þar kom fram að 37 pen­inga­þvætt­is­mál hefðu verið skráð hjá emb­ætt­inu á árunum 2016 til 2018. Meiri­hluti þeirra, eða 20 tals­ins, voru skráð í fyrra.

Á árinu 2018 lauk rann­sókn í alls sex málum sem áttu rætur að rekja til grein­inga pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu. Í frétt­inni sagði að gera megi ráð fyrir að rík­is­sjóður hafi orðið af á 178 millj­ónum króna í skatt­tekjur ein­ungis af þessum sex málum. „Nú eru á annan tug mála til með­ferðar og í ljósi áherslu stjórn­valda á þennan mála­flokk verður á næstu miss­erum lagður auk­inn kraftur í rann­sóknir þess­ara mála hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra.“

RÚV greindi svo frá því á mið­viku­dags­kvöld að til­kynn­ingar vegna grun­sam­legra pen­inga­færslna til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu hér­aðs­sak­sókn­ara, sem nú heitir skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu) hafi marg­fald­ast á síð­ustu árum. Árið 2015 hafi þær verið 158 en í fyrra hafi fjöldi þeirra verið tæp­lega átt­falt fleiri, eða um 1.200 tals­ins. Þar var haft eftir Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara að helsta skýr­ing þessa væri sú að höftin hafi verið afnumin árið 2017 og þá hafi fjár­mála­færslur auk­ist í fram­hald­inu. „Á sama tíma er verið að hvetja fjár­mála­stofn­anir og til­kynn­ing­ar­skylda aðila til þess að senda og gera við­vart þegar þeir sjá eitt­hvað grun­sam­legt. Síðan hefur sú ein­ing sem vinnur við þetta hjá okkur verið stækkuð sem gerir okkur fær um að herða aðeins á þessu.“

Í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varpi að nýjum heild­ar­lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem varð að lögum í byrjun árs 2019 kom fram að aukin umfjöllun um pen­inga­þvætti hefði leitt til þess að til­kynn­ingum um slíkt hefði fjölgað umtals­vert.

Þar kom enn fremur fram að fjölgun til­kynn­inga hafi leitt til fleiri rann­sókna að hálfu lög­reglu og að fyr­ir­séð væri að mála­fjöldi muni halda áfram að aukast með auk­inni fræðslu og eft­ir­liti sem stefnt sé að.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöðu mála hvað varðar varnir gegn pen­inga­þvætti í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í morgun. Þessi frétt er hluti af þeirri umfjöllun.

Hér að neðan má sjá brot úr við­tali við Ólaf Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ara í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut frá því í októ­ber 2018 þar sem hann ræðir meðal ann­ars pen­inga­þvætti á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár