Rarik telur fyrirséð að þekking og reynsla glatist við flutning höfuðstöðva frá Reykjavík

Forstjóri Rarik segir í umsögn til Alþingis að fengin reynsla „kenni okkur“ að ólíklegt sé að starfs­menn fylgi stofnunum og fyrir­tækjum hins opinbera út á land ef höfuð­stöðvar eru fluttar þangað. Þannig sé fyrirséð að þekking og reynsla glatist.

Dreifikerfi Rarik er að nær öllu leyti utan höfuðborgarsvæðisins og um 70 prósent starfsmanna fyrirtækisins líka. Þrír þingmenn Framsóknar vilja færa höfuðstöðvar Rarik út í landsbyggðirnar en það telja stjórnendur Rarik óráð.
Dreifi­kerfi Rarik er að nær öllu leyti utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og um 70 pró­sent starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins líka. Þrír þing­menn Fram­sóknar vilja færa höf­uð­stöðvar Rarik út í lands­byggð­irnar en það telja stjórn­endur Rarik óráð. Mynd: Rarik

Stjórn­endur Rarik telja að ef tekin væri ákvörðun um að flytja höfuð­stöðvar fyrir­tækisins af höfuð­borgar­svæðinu og á lands­byggðina þyrfti áfram að gera ráð fyrir því að fyrir­tækið væri með skrif­stofu í Reykjavík í allmörg ár. Að öðrum kosti myndi fyrir­tækið glata tæplega þriðjungi af mannauði sínum auk verulegrar þekkingar og reynslu. Það hafi fyrri reynslan af flutningi ríkis­fyrirtækja- og stofnana frá höfuð­borgar­svæðinu sýnt.

Þetta kemur fram í umsögn Rarik um þings­ályktunar­tillögu þriggja þingmanna Fram­sóknar, sem leggja til við þingið að stefnt verði að því að flytja höfuð­stöðvar Rarik frá höfuð­borginni. Höfuð­stöðvar opinbera hluta­félagsins, sem annast orku­dreifingu í flestum sveitar­félögum utan höfuð­borgar­svæðisins, eru að Dvergs­höfða í Reykjavík.

Halla Signý Kristjáns­dóttir er fyrsti flutnings­maður þingályktunartillögunnar. Í greinar­gerð sem tillög­unni fylgir segir að núverandi stað­setning höfuð­stöðvanna sé ekki talin endur­spegla starfsemi Rarik jafn vel og hægt væri.

Í umsögn Rarik kemur fram að um 70 prósent tæplega tvöhundruð starfs­manna fyrir­tækisins séu nú búsettir á lands­byggðinni, en starfs­stöðvar Rarik alls 20 talsins vítt og breitt um landið. 58 starfs­menn starfa í höfuð­stöðvunum í borginni.

„RARIK hefur verið mjög meðvitað um að dreifa starfsemi sinni til að þjóna viðskipta­vinum sínum sem best og hefur lagt áherslu á að halda störfum á lands­byggðinni,“ segir í umsögninni, sem Tryggvi Þ. Haraldsson forstjóri undir­ritar.

Starfsmenn hafa flutt með sér störf í borgina

Þar er rakið að starfs­mönnum hjá fyrir­tækinu hafi fækkað um 9 frá því árið 2007, þegar opinbera hluta­félagið tók við hluverki Rafmagn­veitna ríkisins. Ástæðurnar fyrir því séu margar og misjafnar, en í umsögninni segir að jafn margir starfs­menn starfi nú fyrir Rarik á höfuð­borgar­svæðinu og árið 2007. Sumir hafi flutt störfin með sér þangað.

„[N]okkrir starfs­menn sem áður störfuðu hjá fyrir­tækinu á lands­byggðinni og starf þeirra krafðist ekki viðveru á sérstöku lands­svæði, fluttu til Reykja­víkur og frekar en að missa þá þekkingu út úr fyrir­tækinu var orðið við ósk þeirra um að flytja starfið með sér til Reykja­víkur. Því miður er minna um að starfs­menn flytji frá Reykjavík til lands­byggðarinnar og taki með sér störf, þótt RARIK líti það mjög jákvæðum augum,“ segir í umsögninni.

Rétt eins og segir í umsögn Rarik er umræða um að flytja höfuð­stöðvar fyrir­tækisins ekki ný af nálinni, enda er dreifi­kerfi fyrir­tækisins fyrir utan höfuð­borgar­svæðið og allar verklegar framkvæmdir sem fyrir­tækið annast. Rarik telur þó rétt að taka fram að mun fleiri viðskipta­vinir fyrir­tækisins séu með lögheimili í Reykjavík en á öðrum svæðum, eða um þriðjungur viðskipta­vina. Þá séu fjölmargir „hagaðilar“ einnig stað­settir í Reykjavík, stjórn­sýsla, eftirlits­aðilar, verkfræði­stofur, birgjar og aðrir samstarfs­aðilar.

RARIK segir hugmyndir um flutning höfuð­stöðva hafa verið hvata til að skoða kosti þess og galla, en jafnframt gert stjórn­endur meðvitaðri um nauðsyn þess að huga að því hvar heppilegast er að staðsetja þau störf sem losna, eða þarf að bæta við.

Rarik segir að það sé ekki auðvelt fyrir fyrir­tækið að auglýsa störf án stað­setningar, en horft hafi verið til þess að auglýsa störf með þeim hætti að „letja umsækjendur sem búa á höfuð­borgar­svæðinu til að sækja um þau, eða krefjast þess að þeir sem þar búa flytji sig á lands­byggðina.“

Fyrir­tækið segist þurfa að skilgreina fyrirfram hvaða svæði eða starfs­stöðvar komi til greina, enda megi „annars búast við margfalt fleiri umsóknum af höfuð­borgar­svæðinu og þá er erfitt að hafna hæfustu umsækjendum vegna búsetu.“

Óhagræði fyrir þrjá landshluta ef einn fær höfuðstöðvarnar

Rarik segir að þegar skoðað hafi verið hvar heppilegast sé að vera með höfuð­stöðvar hafi niður­staðan alltaf verið sú að best væri að vera með sameiginlega skrif­stofu í Reykjavík.

„Þangað eru samgöngur bestar og auðveldastar frá öllum svæðum. Vegna þess hve starfsemi RARIK er dreifð um landið þá gæti flutningur höfuð­stöðva hentað vel fyrir nærumhverfi þess staðar sem höfuð­stöðvar yrðu fluttar til, en gagnvart öðrum svæðum væri það aukið óhagræði. Með slíkri aðgerð nyti eitt svæði hagræðis en þrjú óhagræðis.

Auk þess hentar stað­setning skrif­stofu í Reykjavík vel því þar eru ýmsir hagaðilar fyrir­tækisins, m.a. stjórn­sýslan, hvort sem um er að ræða ráðuneyti, eftirlits­aðila eða löggjafann. Þrátt fyrir bætta fjarfunda möguleika kemur það aðeins að hluta til í stað hefð­bundinna funda eins og þingið þekkir væntanlega vel. RARIK telur því að það skipulag sem nú er á starfsemi fyrir­tækisins sé það sem hentar því best,“ segir í umsögninni.

„Mjög ólíklegt“ að starfsmenn flyttu með

Fyrir­tækið vísar til fyrri reynslu af flutningum höfuð­stöðva frá Reykjavík og segir hana „kenna okkur“ að teljast verði „mjög ólíklegt“ að margir starfs­menn skrif­stofunnar í Reykjavík flyttu með höfuð­stöðvunum.

Væntanlega er forstjóri Rarik með flutning höfuð­stöðva Fiskistofu í huga, en Fiskistofu­stjóri var eini starfs­maðurinn sem flutti með stofnuninni frá Reykjavík til Akureyrar árið 2016.

Í umsögninni segir að flutningur höfuð­stöðva Rarik á næstu árum, í þeim skilningi að flytja öll þau störf sem nú eru í Reykjavík í heilu lagi á eitthvað af svæðum RARIK, yrði fyrir­tækinu „mjög erfiður“ í framkvæmd.

„Eins og dæmin sanna hefur reynst erfitt að flytja rótgróin fyrirtæki frá höfuð­borgar­svæðinu og væri heppilegra að staðsetja nýjar stofnanir, eða fyrirtæki í opinberri eigu á lands­byggðina strax við stofnun þeirra,“ segir forstjóri Rarik, í umsögninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár