Hættumat vegna eldgosa setur fókus á Hveragerði

Byggðin í Hvera­gerði liggur innan 10% mestu hættu­svæða vegna hraun­rennslis í mögu­legu eld­gosi.

Hveragerði
Hvera­gerði Hefur byggst hratt upp síð­ustu ár. Mynd: Shutterstock

Hvera­gerði liggur á svæði þar sem 10% mesta hættan er á vá vegna hraun­flæðis, komi til eld­gosa í einu af tveimur eld­stöðvakerfum sem geta haft áhrif á bæinn. Þetta kemur fram í nýju hættu­mati Veð­ur­stofu Íslands vegna eld­gosa­vár á Reykja­nesskag­anum og höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þá er talið mögu­legt að gosopnun geti verið innan bæj­ar­ins, þótt marg­falt lík­legra sé að slíkt ger­ist ofar, í Hengl­inum eða Hró­mund­ar­t­indi. Mikil óvissa er um hvenær eða hvort slíkt gos verði á næstu ára­tugum eða hund­ruðum ára, en eftir að gos­hrina hófst í eld­stöðvakerf­unum Fagra­dals­fjalli og Svarts­engi/Reykja­nesi er horft til sögu­lega for­dæma um að önnur elstöðvakerfi hafi vaknað ára­tugum síðar, þá lík­leg­ast Krýsuvík, Heng­il­svæðið, Brenni­steins­fjöll eða Hró­mund­ar­tindur.

„Þétt­býlin Grinda­vík og Hvera­gerði á svæðum sem eru á efsta hættu­stigi, þ.e. í efstu 10% líkum á hraunavá,“segir í kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar á nýju hættu­mati. Þar er bent á að skammt norður af Grinda­vík eru lík­leg gos­upp­tök, en þau eru hugs­an­leg allt niður í suð­ur­hluta bæj­ar­ins. 

Í Hvera­gerði eru metnar „nokkrar“ líkur á að gosopnun verði inni í byggð, en tekið er fram að mun meiri líkur séu á að hraun flæði en komi þar upp. „Hvera­gerði er aðeins á efsta hættu­stigi vegna lík­legs hraun­flæðis.“ 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldsumbrot á Reykjanesskaga

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár