Hvetur hið opinbera til að setja sér félagsleg markmið í skuldabréfaútgáfu

Stjórnar­formaður IcelandSIF segir tækifæri geta legið hjá ríki og sveitar­félögum í að skilgreina skýr félagsleg markmið samhliða skuldabréfa­útgáfum hjá sér, rétt eins markmið í umhverfis­málum eru sett fram samhliða útgáfu grænna skulda­bréfa.

Kristbjörg M. Kristinsdóttir, stjórnarformaður IcelandSIF.
Krist­björg M. Krist­ins­dóttir, stjórn­ar­for­maður IcelandSIF. Mynd: Aðsend

Hið opinbera gæti átt auðveldara með að fjármagna félags­lega þjónustu á sínum vegum ef skýr félagsleg markmið sem hægt væri að fylgja eftir væru sett fram samhliða skuldabréfa­útgáfu þess. Þetta skrifar Krist­björg M. Kristins­dóttir, fjármála­stjóri Stefnis og stjórnar­formaður IcelandSIF, í jólablaði Vísbendingar.

Áhugi á ábyrgum fjárfestingum

Samkvæmt Kristbjörgu hafa íslenskir stofnana­fjárfestar aukið stórlega við þekkingu sína síðastliðin ár þegar kemur að ábyrgum fjár­festingum og hafa þeir flestir sett sér stefnur og verklag til þess að innleiða aðferðar­fræði ábyrgra fjár­festinga með einhverjum hætti. Þar eru svokallaðar grænar fjár­festingar, sem eiga að hafa jákvæð umhverfis­áhrif, sérstak­lega áberandi.

Þó bætir hún við að grænir fjár­festinga­kostir eigi sér einnig skugga­hliðar í svokölluðum grænþvotti, þar sem villandi upplýsingum er teflt fram til að láta fjár­festingar líta út fyrir að vera umhverfis­vænni en þær virkilega eru. Til þess að koma í veg fyrir slíka háttsemi skipti máli að samræming upplýsinga og viðmiða á fjár­festinga­kostum sé skýr, en hún segir að nýjar reglur frá Evrópu­sambandinu sem taka gildi á næsta ári eiga að taka á þessu.

Tækifæri í félagslega þættinum

Krist­björg segir hins vegar að félags­legir þættir standi eftir, sem erfitt sé að skilgreina, en séu þó mikil­vægir svo hagkerfi okkar geti orðið sjálf­bærari. Yrðu þessir þættir betur skilgreindir gætu verkefni sem stuðla að félagslegri framþróun mögulega átt auðveldara með fjár­mögnun, þar sem áhugi fjárfesta á ábyrgum fjár­festingum hefur aukist.

Í því tilliti veltir Krist­björg því upp hvort tækifæri liggi hjá ríki og sveitar­félögum, sem sjá um mörg þeirra verkefna sem eru af félags­legum toga, í að setja sér skýr félagsleg markmið samhliða útgáfu skulda­bréfanna þeirra og standa skil á upplýsingum um stöðu þeirra mála. Verði það gert gætu félagsleg verkefni mögulega fengið auðveldari fjár­mögnun og betri kjör.

Á meðal mögulegra verkefna af félags­legum toga sem gætu fengið betri fjár­mögnun með þessum hætti nefnir Krist­björg til að mynda heilbrigðisþjónu og húsnæðis­uppbyggingu sem ýtir undir félags­lega sjálfbærni.

Hægt er að lesa grein Krist­bjargar, ásamt mörgum öðrum, í jólablaði Vísbendingar sem má nálgast með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár