Vill meiri tekjur af hverjum gesti

Forstjóri Bláa lónsins gerir ekki ráð fyrir að gestum muni fjölga mikið en býst við að ná meiri tekjum af hverjum gesti fyrir­tækisins.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins
Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins

Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins gerir ráð fyrir að ná meiri tekjum af hverjum viðskipta­vini þrátt fyrir að fjöldi gesta fyrir­tækisins muni að öllum líkindum. Þetta muni fyrir­tækið gera með auknu vöru-og þjónustu­framboði, samkvæmt viðtali Gríms við vefsíðuna túristi.is.

Í viðtalinu er greint frá vinsældum Bláa lónsins meðal erlendra ferða­manna, en í fyrra tóku starfs­menn lónsins á móti 1,3 milljónum gesta, á meðan 2,2 milljónir erlendra farþega flugu frá Keflavíkuflugvelli. Aðgangs­tekjur Bláa lónsins hafa einnig aukist gífurlega meðfram fjölgun ferða­manna á undan­förnum árum, eða úr rúmum tveimur milljörðum króna árið 2012 upp í rúma sjö milljarða króna í fyrra.

Samkvæmt Túrista hefur fjöldi ferða­manna hins vegar staðið í stað það sem af er þessu ári og spár geri ráð fyrir litlum vexti í ár. Samkvæmt Grími hefur hins vegar verið markvisst unnið að því að hækka tekjur af hverjum gesti frekar en að fjölga þeim. Það verði m.a. gert með því að tvinna saman ólíka þjónustu­þætti, vörur og upplifun gesta, auk fjöl­breyttara framboðs á vörum og þjónustu. Þessu til stuðnings bendir hann á nýstofnað fyrirtæki í þeirra eigu sem býður upp á áætlunar­ferðir í Bláa lónið.

Kjarninn fjallaði nýlega um síðustu ársskýrslu Bláa lónsins, en samkvæmt henni jókst hagnaður fyrir­tækisins um þriðjung milli ára. Hagnaður fyrir­tækisins eftir skatta nam 31 milljón evra árið 2017, saman­borið við 12,8 milljarða af rekstrar­tekjum. Tæplega þriðja hver króna sem kom í hendur félagsins árið 2017 var því hreinn hagnaður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár