Ásjárvert um mann á miðjum aldri

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Ör eftir Auði Övu Ólafs­dóttur sem sýnt er í Þjóð­leikhúsinu.

Þjóðleikhúsið: Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur)

Höfundur: Auður Ava Ólafs­dóttir

Leik­stjórn: Ólafur Egill Egilsson

Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynis­dóttir

Tónlist: Damien Rice

Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason

Myndband Elmar Þórarinsson

Hljóðmynd: Aron Þór Arnarsson

Leikarar: Baldur Trausti Hreinsson, Guðrún Snæfríður Gísla­dóttir, Birgitta Birgis­dóttir, Pálmi Gestsson, Hildur Vala Baldurs­dóttir

Það fer ekki á milli mála að Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) er metnaðar­fullt verk – bæði af hálfu höfundarins, Auði Övu Ólafs­dóttur og svo þess listræna teymis sem hefur tekið verkið að sér, gert að sínu og ber það fram á svið. Og því er ekki að neita að hér er margt sem gleður auga og eyra. Verkið sjálft, leikritið, sagan, er fremur laust í reipum og leik­myndin grípur það á lofti. Sigríður Sunna Reynis­dóttir skapar umgjörð sem samanstendur af snúnings­hurðum sem þjóna marg­víslegum tilgangi en niður­staðan er sú að engu (eða fáu) er að treysta, fólk birtist og hverfur líkt og í draumi og það er fátítt að sjá leikmynd sem fangar svo gersam­lega anda leik­textans. Þessu er vandlega fylgt eftir í búningum, lýsingu og myndbands­vinnu og úr verður fjöl­breytileg og litrík sjónræn heild sem ein og sér nægir til að halda athygli áhorfanda frá upphafi til enda. Stílhrein og smekkleg. Má og bæta því við að lýsing Jóhanns Bjarna Pálma­sonar fylgir anda leik­myndar gersam­lega og bætir í þar sem þarf til að styðja atriða­skipti, inn og útkomur leikara og breyta stemningu; þar kemur einnig til vel unnið myndband Elmars Þórarins­sonar sem hnykkir á umhverfi og auðveldar áhorfanda að átta sig á hvar sagan er stödd í hinn óræðu umgjörð. Leik­myndin er á nær stöðugu iði frá upphafi sýningar til enda og það skapar ákveðinn ryþma sem einnig fylgir hugmynd sýningarinnar eftir.

Allt er þetta vönduð leikhús­vinna sem ber vitni faglegum vinnu­brögðum og mark­vissri leik­stjórn Ólafs Egils Ólafs­sonar, sem sannar enn og aftur hvers hann er megnugur þegar kemur að því að hlúa að frum­sömdum íslenskum verkum og koma þeim vel til manns (ef svo má að orði komast). Það er nefnilega talsverð vinna í því fólgin að vera hinn fyrsti könnuður möguleika nýs sviðs­verks, aðlaga það frásagnar­tækni og frásagnar­stíl leik­hússins án þess að hafa nokkrar fyrir­myndir að styðjast við, hvort sem er til að forðast eða fylgja.

Í þessari umgjörð er svo sögð saga Jónasar Ebenesar, manns á miðjum aldri sem hefur skilið við eiginkonu sína og er á fullkomnu reiki með það hver hann er og hvert hann stefnir – hann er að taka til í húsi sínu (og lífi) og stefnir að því er virðist í þá dapurlegu leið að stytta sér aldur; hefur enda fengið framan í sig hreytt að hann sé ekki faðir dóttur sinnar sem hann þó virðist elska; en það er kunnara en frá þurfi að segja að margur maðurinn hefur orðið fyrir verulegu lífs­hnjaski við að heyra að faðerni hans til margra ára sé í efa dregið.

Hvað þetta varðar er Ör saga sem sækir efnivið og næringu í veru­leikann og ekki nema gott eitt um það að segja. Í kringum Jónas Ebeneser er svo nokkur hópur fólks sem ýmist hrekur hann eða hvetur eins og sæmir í góðri dramatúrgíu – og það er rétt að segja, að hvað sem líður ýmsum ósamstæðum atriðum sem ýta undir hina óræðu draum­kennd, þá er leikritið vel samið hvað varðar byggingu og flæði og er eitt af þeim mikilvægu, ósýnilegu atriðum sem halda áhorf­andanum við efnið. Einnig þar fagleg vinnu­brögð og til verka vandað.

Hins vegar vandast málið aðeins þegar kemur að persónum verksins. Jónas Ebeneser er á vondum stað í lífinu, það er augljóst og hann þarf að ráða bót á því. Honum dugar augljós­lega ekki að syngja í kór og það er varla fyrr en dóttir hans spyr hann – og það er að mínu viti ein lykil­setning verksins – hvort hún eigi að fara skipta um föður, komin á fullorðins­aldur. Það atriði allt, í lok sögunnar, er fallegt og þar gangast persónur verksins við lífinu eins og það er. En Jónas Ebeneser hefði þurft að vera næringar­meiri af höfundar hálfu til að kveikja áhuga af eigin krafti – nú er það fólkið í kringum hann sem heldur uppi áhuganum á persónu hans og afdrifum.

Baldur Trausti Hreinsson hefur löngum verið vel skipaður leikari í auka­hlutverk, “sidekick” hlutverk og staðið sig einatt með stakri prýði. Hann er, ef eitthvað má segja um leikstíl hans, míní­malískur leikari og beitir litlum en áhrifa­ríkum meðulum til að tjá hug persóna sinna og setja þeim stað í sögu. Hann greinir hlutverk sín vandlega og gerir ekkert fyrir tilviljun eða órökstutt. Þessir eigin­leikar nýtast honum til fulls í hlutverki Jónasar Ebenesar og þar sem skortir á vinnu höfundar í persónu­sköpun bætir Baldur Trausti það fullkomlega upp með vandvirkni sinni í leik. Það er óhætt að tala um leiksigur, þótt hann sé unnin með smáum meðulum.

Í kringum Jónas Ebeneser eru aðallega tvær persónur sem reka hann áfram, með góðu og illu. Fyrsta skal telja móður hans, leikna af öryggi og hreint ekki lítilli kómík af Guðrúnu Snæfríði Gísla­dóttur. Það er eins og galdur hvernig ólíklegustu karakterar lifna við og verða trúverðugir í meðförum Guðrúnar Snæfríðar; móðir Jónasar Ebenesar er haldin þráhyggju hvað varðar tölfræði styrjalda og þótt erfitt sé að sjá hvernig það þjónar sögu sonar hennar, verður móðirin engu að síður mikilvæg í sögunni með því að hennar vegna er heimilis­hjálpin til staðar: útlenda þjónustu­stúlkan Maí, leikin af Birgittu Birgis­dóttur. Maí kemur frá stríðs­hrjáðu landi og hefur hér hlotið samastað og hlutverk hennar þjónar í raun aðeins einum tilgangi sem upplýsist í lokin og væri leitt að koma upp um hér; hins vegar er það veik lausn eins og hún birtist í sögunni og hefði höfundur mátt hugsa það betur.

Eitt atriði veldur undrun: Maí er útlend­ingur og framandi fugl í hinu íslenska umhverfi. Það er undir­byggt með því að á köflum tala þau Jónas Ebeneser og móðir hans ensku við hana. En hún talar aftur á móti lýtalausa íslensku og gæti þess vegna verið úr Húna­vatns­sýslunni eða Hafnar­firði. Er hér kannski um að ræða fíl í stofunni, óttann við að vera talinn gera grín að útlendingum með því að láta íslenska leikkonu tala með hreim? Það stangast þá algerlega á við hinn raunsæi­lega bakgrunn verksins og ástæða fyrir aðstand­endur sýningarinnar að skoða þetta betur.

Dóttirin, Vatna­lilja, kemur þekkilega fyrir í leik Hildar Völu Baldurs­dóttur. Hildur Vala er nýútskrifuð leikkona frá Lista­háskóla Íslands, hún hefur góða nærveru á sviði, heldur vel um hlutverk sitt og gæðir Vatna­lilju þeim þokka sem þarf til að mynda mótvægi við depurð föður hennar. Vatna­lilja er boðberi þeirrar hugsunar að skylt sé að gangast við lífinu og Hildur Vala skilar því trúverðug­lega.

Ekki verður hjá því komist að nefna að Hildur Vala glímir við sama vanda og margir ungir leikarar, sem er radd­beitingin; um leið og hún snýr sér frá áhorf­endum heyrist illa eða ekki hvað hún segir. Þetta myndi hugsanlega sleppa í öðru samhengi, en hér er hún á sviði með þraut­reyndum harðjöxlum íslensks leikhúss hvað þetta varðar; það er ekki heiglum hent að standa Pálma Gestssyni, Guðrúnu Snæfríði Gísla­dóttur og Baldri Trausta Hreins­syni á sporði hvað varðar radd­beitingu og radd­túlkun og í raun ógreiði gerður ungri leikkonu að standast slíka raun, nema til komi aðstoð leik­hússins til að bæta úr því sem augljós­lega virðist vera vanræksla þeirrar stofnunar sem hefur hlotið traust og fjármagn til að mennta leikara þjóðar vorrar og rís greini­lega ekki undir þeirri ábyrgð.

Enn hefur ekki verið nefndur Svanur, nágranninn, kórfélaginn og veiði­maðurinn, sem er “sidekick” Jónasar Ebenesar og gerir sitt til að örva hinn dapra vin sinn til dáða með ýmsum ráðum – ekki síst með því að miðla honum fróðleik um konur ef það mætti verða til að kæta hann. Hlut­verkið er verulega kómískt og veitir léttleika í söguna sem er þakkarverður á köflum; það hefur Pálmi Gestsson fullkomlega á valdi sínu enda ókrýndur meistari hinnar vel fram bornu replikku svo ekki sé minnst á vald hans á því sem kallast „timing”, sem er sú list að doka við nákvæmlega eins lengi og þarf til að vekja kæti áhorf­andans yfir því sem á sér stað í samskiptum persónanna á sviðinu. Pálmi bregður sér í fleiri hlutverk í sýningunni og alls staðar sýnir hann hvert vald hann hefur á þessum vandmeðfarna hluta af list leikarans.

Hins vegar læðist að þeim sem hér ritar sá grunur hvort ekki væri hreinlega meira spennandi að gefa þeim félögum, Svani og Jónasi Ebeneser, þeirra eigin tvíleik þar sem mætti flétta harmi og sorg beggja saman við kómíkina. Það hefði áreiðanlega betur byggt undir hinn óvænta endi, sem þó hefði mátt vera undir­rituðum fyrir­sjáanlegur þótt ekki væri nema velþekktra orða Tsjekovs um að ekki láta byssu hanga á vegg nema hún sé notuð áður en tjaldið fellur. Hér er orðum Tsjekovs fylgt út í æsar og samt kemur lausnin fullkomlega á óvart og hefði eins og nefnt var, mátt vera betur undir­byggð. Kómíkin ber þarna söguna ofurliði og hefði kannski verið auðvelt að komast hjá því.

Sem fyrr sagði er Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) metnaðar­fullt verk og fagmennska og vandvirkni einkennir sýninguna. Hún vekur einnig spurningar um tilgang lífsins og vegferð mannsins í þessu jarðlífi í því mikrókosmosi sem honum er úthlutað á bilinu milli vöggu og grafar. Ásjárverð – ekki spurning og full ástæða til að óska henni langra lífdaga á íslensku sviði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár