Sala og dreifing fíkniefna í auknum mæli á samfélagsmiðlum

Rann­sóknir net­glæpa krefj­ast sér­hæfðra lög­reglu­manna og sér­fræð­inga en ekki hafa feng­ist fjár­veit­ingar til þess að stofn­setja slíkar rann­sókn­ar­deildir. Þetta segir í skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi árið 2017.

Sala og dreif­ing fíkni­efna hefur í auknum mæli færst á sam­fé­lags­miðla. Afskipti lög­reglu í formi frum­kvæð­is­lög­gæslu er tak­mörkuð vegna mann­eklu. Þetta kemur fram í mati grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi árið 2017 sem kom út í októ­ber síð­ast­lið­inn.

Í mat­inu segir að hér sé um að ræða nýjan brota­vett­vang sem kallar á sér­deildir til þess að sinna net- og tölvu­brota­rann­sóknum. Net­rann­sóknir og rann­sóknir net­glæpa krefj­ist sér­hæfðra lög­reglu­manna og sér­fræð­inga en ekki hafi feng­ist fjár­veit­ingar til þess að stofn­setja slíkar rann­sókn­ar­deildir.

Vís­bend­ingar eru um að inn­flutn­ingur sterkra fíkni­efna á borð við kókaín fær­ist í vöxt, sam­kvæmt mat­inu. Á síð­ustu miss­erum hefur auk­ist til muna það magn MDMA (Met­hy­lene­di­oxy­met­hamp­hetamine) og kóka­íns sem hald­lagt hefur verið.

„Mikið af sterku amfetamíni er á mark­aðnum og orðið hefur vart við metam­fetamín. Framboð á kanna­bis er sem fyrr mikið og mik­ill fjöldi rækt­ana sem gerður hefur verið upp­tækur er til marks um að inn­lend fram­leiðsla leit­ast við að anna eft­ir­spurn,“ segir í mat­inu.

Höfundar skýrsl­unnar draga þá ályktun að gott efna­hags­á­stand kunni að ráða ein­hverju um þær breyt­ingar sem orðið hafa en jafn­framt sé sú stað­reynd aug­ljós að fíkni­efna­mark­að­ur­inn á Íslandi hefur stækkað veru­lega á skömmum tíma. Við nátt­úru­lega fjölgun þjóð­ar­innar bæt­ist mik­ill fjöldi aðfluttra og ferða­manna. Spurn eftir fíkni­efnum hafi að öllum lík­indum aldrei verið meiri hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár