Hátt í sex þúsund skjálftar frá því á laugardag

Skjálfta­virknin í nágrenni Grinda­víkur hefur haldist stöðug frá því síðdegis á laugardag. Frá því á laugardags­kvöld hafa alls 11 skjálftar sem voru 4 að stærð eða stærri, mælst á svæðinu.

Hér sést fjallið Þorbjörn við Grindavík. Grindvíkingar hafa sumir lýst stóra skjálftanum á sunnudag sem þeim harðasta af öllum þeim skjálftum sem tengst hafa umbrotunum á Reykjanesskaga undanfarin misseri.
Hér sést fjallið Þorbjörn við Grinda­vík. Grind­vík­ingar hafa sumir lýst stóra skjálft­anum á sunnu­dag sem þeim harð­asta af öllum þeim skjálftum sem tengst hafa umbrot­unum á Reykja­nesskaga und­an­farin miss­eri. Mynd: Visitreykjanes.is

Hátt í sex þúsund jarð­skjálftar hafa mælst á Reykja­nesskaga frá því um hádegi á laugardag, er ný skjálfta­hrina hófst, líklegast vegna kviku­innskots við Fagradals­fjall við Grindavík. Stærsti skjálfti hrinunnar hingað til mældist 5,5 að stærð og voru upptök hans um þrjá kílómetra norðaustan við Grindavík.

Samkvæmt Veður­stofunni fannst hann um allt suðvestanvert landið, en tilkynningar hafa borist um að hann hafi fundist alla leið austur í Fljóts­hlíð og vestur á Snæfellsnes.

Áfram héldu öflugir skjálftar aðfara­nótt mánudags. Sá stærsti þeirra var 4,4 að stærð og reið yfir um 3,3 kílómetra norðvestan við Grindavík, en síðustu 48 klukku­stundir hafa alls orðið 11 jarð­skjálftar sem eru 4 að stærð eða stærri á svæðinu.

Fulltrúar frá Grinda­víkurbæ, lögreglunni á Suðurnesjum, almanna­varna­deild ríkis­lögreglu­stjóra, HS Orku og fleiri aðilum komu saman til fundar í dag í kjölfar þessara kröftugu jarð­skjálfta og fóru yfir stöðuna, út frá nýjustu vöktunar­upplýsingum Veður­stofunnar.

Kvika ekki á hreyfingu undir upptökum skjálftanna

Í tilkynningu frá Almanna­vörnum segir að samkvæmt Veður­stofunni sé líklegast að skjálftarnir séu vegna kviku­innskots við Fagradals­fjall, sem sé að valda spennu­breytingum bæði vestan og austan megin við fjallið, sem fram­kallar jarð­skjálfta.

Skjálftar af þessu tagi eru gjarnan kallaðir gikk­skjálftar og eru þeir merki um spennu­losun, en tákna ekki að kvika sé á hreyfingu á þeim svæðum þar sem þeir mælast. Í upphafi skjálfta­hrinunnar á laugardag voru skjálftarnir á um 6-8 kílómetra dýpi og fóru svo grynnkandi.

Skjálfta­virknin hefur hins vegar haldist stöðug frá því um eftir­miðdaginn á laugardag og er á um 2-5 km dýpi.

Grannt er fylgst með svæðinu af Veður­stofu Íslands. Þar sem óvissu­stig er nú í gangi vegna jarð­skjálfta­hrinunnar hefur vöktun veður­stofunnar verið aukin og skipulag Almanna­varna er í viðbragðs­stöðu. Jafnframt verða þau sveitar­félög sem mögulega verða fyrir áhrifum upplýst um leið um stöðu mála ef einhver frávik eiga sér stað sem benda til þess að eldgos sé í vændum.

Frá Almannavörnum - Viðbúnaður og viðbragð vegna jarðskjálfta

Eitt það mikil­vægasta fyrir íbúa á jarð­skjálfta­svæðum er að gera ráðstafanir sem eykur öryggi fólks og dregur úr mögulegu tjóni. Það sama á að sjálfsögðu við um alla starfsemi á jarð­skjálfta­svæði. Slíkar ráðstafanir auka einnig öryggis­tilfinningu fólks sem dregur úr vanlíðan í ástandi sem þessu. Ýmislegt er hægt að gera til að auka öryggi eins og að festa þunga hluti við gólf eða veggi og hafa ekki þunga hluti á veggjum eða ofarlega í hillum.

Hægt að kynna sér varnir og viðbúnað nánar hér á heimasíðu Almanna­varna.

Að kunna og æfa viðbrögð við jarð­skjálfta er einnig mikilvægt. Mörg slys í þessum aðstæðum eiga sér stað þegar hlaupið er af stað í jarð­skjálfta. Því er brýnt að fara yfir jarð­skjálfta­æfingar með fjölskyldu­meðlimum, í skólum, á vinnu­stöðum o.s.frv.

Hægt er að kynna sér viðbrögð við jarð­skjálfta nánar hér á heimasíðu Almanna­varna.

Veður­stofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að forðast brattar hlíðar.

Íbúum og fyrir­tækjum er bent á að hafa samband við Náttúru­hamfara­tryggingu Íslands ef tjón hafa orðið vegna skjálftanna.

Mörgum finnst jarð­skjálftar óþægilegir og í hrinu eins og þessari þarf að takast á við marga óvissu­þætti. Því er mikilvægt að gera það sem hægt er til að draga úr vanlíðan, hlúa hvert að öðru og aðstoða þau sem síður eru í stakk búin að takast á við þessar aðstæður. Við minnum á Hjálpar­símann 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Hjálpar­síminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár