Er Bang & Olufsen á leiðinni til Asíu

Bang & Olufsen er eitt þekktasta vörumerki Danmörku.
Bang & Olufsen er eitt þekktasta vöru­merki Danmörku.

Hið gamal­gróna og heims­þekkta danska fyrirtæki Bang & Olufsen hefur um margra ára skeið átt í umtals­verðum rekstrar­erfiðleikum. Margt hefur verið reynt til að rétta skútuna af en þær tilraunir hafa ekki skilað viðunandi árangri.

B&O, sem var stofnað 1924 í Struer á Jótlandi, hefur alla tíð einbeitt sér að fram­leiðslu útvarps-og hljóm­flutnings­tækja, síðar bættust sjón­vörpin við. Áherslan var frá upphafi á hljómgæði og útlits­hönnun. Tækin frá B&O hafa alla tíð verið dýr, saman­borið við margt annað, enda yfirlýst stefna að höfða til kaupenda sem vilja vandaða vöru og leggja mikið uppúr útliti tækjanna.

Í kjölfar banka­kreppunnar dróst einka­neysla saman, ekki síst á Vestur­löndum. Almenningur hélt, og heldur enn, fastar um budduna en á „góðæris­árunum”. B&O er eitt þeirra fyrir­tækja sem varð illa fyrir barðinu á samdrættinum. Þar að auki hefur breytt tækni og aukin áhersla margra fram­leiðenda á útlits­hönnun orðið til þess að dönsku tækin frá Struer hafa ekki lengur þá sérstöðu sem þau höfðu áður, þrátt fyrir að hönnun og gæði séu enn í allra fremstu röð

B&O Play

Á árunum 2011 og 2012 setti B&O á markaðinn „Play” nýja vörulínu. Play vörurnar voru ódýrari en áður hafði þekkst frá B&O, þetta var tilraun fyrir­tækisins til að mæta breyttum aðstæðum. Play vörurnar eru eigi að síður í dýrari kantinum, miðað við margt annað. Þótt salan á Play hafi gengið ágætlega hefur það ekki dugað til að skjóta nægilega styrkum stoðum undir reksturinn. Í fyrra seldi B&O bíla­hljómtækja­fram­leiðsluna, Automotive, til Harman fyrir­tækisins fyrir um einn milljarð danskra króna (nítján milljarða íslenska). Við það tækifæri sagði forstjóri B&O að fyrir­tækið hygðist stórefla sölu­starfsemi sína í Asíu. Hann nefndi sérstak­lega Kína og sagði að þar yrðu opnaðar fimmtíu B&O verslanir á næstu mánuðum. Síðar sagði forstjórinn að þeirri tölu hefði hann slegið fram „sí svona” en B&O er nú með fjörutíu og fimm verslanir í kínverska alþýðu­lýðveldinu.

Mikill áhugi í Asíu

Rekstrar­erfiðleikar B&O hafa ekki farið leynt. Fyrir nokkrum mánuðum greindu danskir fjöl­miðlar frá því að asískir raftækja­fram­leiðendur hefðu áhuga fyrir að kaupa B&O, að hluta eða jafnvel allt fyrir­tækið. Þá höfðu ákveðnar „þreifingar” átt sér stað en lengra var málið ekki komið. Nú síðustu daga hefur hinsvegar komið fram hverjir „þreif­ararnir” eru. Dagblaðið Berlingske birti 19. mars viðtal við framkvæmda­stjóra B&O. Þar greindi hann frá því að fyrir­tækið hefði gert samvinnu­samning við Suður-Kóreska fyrir­tækið LG um fram­leiðslu á B&O sjónvarps­tækjum. B&O mun áfram sjá um hönnun og fram­leiðslu sjónvarps­kassans en LG hinsvegar innmatinn, eins og framkvæmda­stjórinn orðaði það. „Sjónvarps­fram­leiðslan hefur verið steinninn í skónum” sagði forstjórinn. LG er næst stærsti fram­leiðandi sjónvarps­tækja í heiminum (Samsung er sá stærsti) og fram­leiðir árlega um 40 milljónir sjónvarps­tækja en B&O hefur framleitt um 30 þúsund tæki á hverju ári. „Það hafa verið erfiðir tímar hjá mörgum sjónvarps­tækja­fram­leiðendum en við höfum nú samið við eitt öflugasta fyrir­tækið á þessu sviði” sagði framkvæmda­stjórinn. Gert er ráð fyrir að „samvinnu­sjónvarps­tækin” komi á markaðinn árið 2017.

Kínverskur auðkýfingur vill eignast B&O

Fyrir þrem dögum greindi DR, Danska útvarpið frá því að kínverskur auðkýfingur, með aðsetur á Bresku Jómfrúreyjum vildi eignast öll hlutabréf í B&O. Kínverjinn, Qi Jianhong á lítinn hlut í B&O í gegnum félagið Sparkle Roll Group Limited (BVI) en hann á einnig samnefnt félag, án stafanna í sviganum, skráð í Hong Kong. Qi Jianhong hefur þegar átt í viðræðum við yfir­stjórn B&O en þær viðræður eru á byrjunar­reit og algjör­lega óljóst til hvers þær muni leiða. Qi Jianhong þekkir vel til B&O því fyrir­tækið hefur verið í samstarfi við hann í Kína, meðal annars varðandi áður­nefndar fjörutíu og fimm verslanir sem nú eru vítt og breitt í landinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár